Fréttablaðið - 02.02.2008, Qupperneq 68
44 2. febrúar 2008 LAUGARDAGUR
utlit@frettabladid.is
DAÐRAÐ VIÐ TÍSKUNA
Bergþóra Magnúsdóttir
Litadýrð einkennir vor- og sumartískuna fyrir 2008 þar sem blóm og
blómamunstur af öllum stærðum og gerðum gegna stóru hlutverki. Á
Haute Couture-sýningu Jean Pauls Gaultier voru blómamunstur með
austurlensku ívafi áberandi í gullfallegum kjólum hans sem minntu einna
helst á ævintýri 1001 nætur. Útfærsla Balenciaga á blómunum var þó með
aðeins öðru sniði þar sem litir blómanna voru tempraðri og heildarútlitið
dramatískara. Christan Laxcroix notaði blóm óspart í Haute Couture-línu sína
sem sýnd var í janúar en sýning hans hefur hlotið töluverða gagnrýni þar sem
hún þótti að mörgu leyti minna á margt sem hann hefur gert áður. Sýningin
var engu að síður ævintýri líkust þar sem andi mexíkósku listakonunnar Fridu
Kahlo sveif yfir vötnum.
BRÁÐUM KEMUR
BETRI TÍÐ
Guðdómlega karrígula Marc
Jacobs-tösku frá Kron kron.
Æðislegan
peysukjól
frá Soniu Rykiel,
fæst í verslun-
inni Kron kron.
OKKUR
LANGAR Í
…
BLÓMAMUNSTUR
Æðislegur kjóll
alskreyttur blómum
frá Eley Kishimoto
fyrir sumar 2008.
SUMARLEGT
Blómstrandi
kjóll frá Haute
Couture-
sýningu Jean
Pauls Gaultier
fyrir sumar
2008.
Fagurrauðan Soniu
Rykiel-blómakjól
frá versluninni
Kron kron.
BLÓMLEGUR
Unaðsleg-
ur kjóll frá
Soniu Rykiel
fyrir sumar
2008.
ÆVINTÝRA-
HEIMUR
LAXCROIX
Guðdómlega
fagurt himin-
blátt pils með
blómamunstri
og hvítur
rómantískur
jakki frá Haute
Couture-línu
Christan Laxcroix.
> TÍSKUFRÉTTIR VIKUNNAR
Lífsbjörg vikunnar. Andlitsvatn frá Bobbi Brown,
sem hressir, frískar og kætir frostbitna húð. Bobbi
Brown var stofnað af sjálfri Bobbi Brown, þriggja
barna móður og förðunarfræðingi,
árið 1991 en vörurnar frá fyrirtæk-
inu hafa notið mikilla vinsælda um
heim allan. Andlitsvatnið þykir ein
af snilldaruppfinningum fyrirtæk-
isins og ætti að vera skyldueign
hverrar konu.
DRAMATÍK Seiðandi blómakjóll
með dramatískum undirtón frá
sýningu Balenciaga fyrir sumar
2008. Ermarnar á kjólnum minna
einna helst á blómaknúppa.
Háhraðatíska fyrir alla, alltaf
Þar sem ég er ekki á útrásarlaunum bankastjóra tók ég spænsku verslun-
arkeðjunni Zöru fagnandi þegar hún opnaði fyrstu verslun sína á Íslandi
árið 2002. En Zara býður upp á eftirlíkingar af hátískufatnaði á viðráðan-
legu veðri. Amancio Ortega stofnaði verslunina Zöru í heimaborg sinni,
Galicia á Spáni, árið 1975 en velgengni hennar fór strax fram úr björtustu
vonum og nú eru rúmlega eitt þúsund Zöru-verslanir víðs vegar í
heiminum. Í byrjun áttunda áratugarins tók Ortega að þróa nýjar
framleiðsluaðferðir sem gerðu honum kleift að flýta framleiðsluferli
fatnaðarins. Á þessum tíma voru yfirleitt tvær til þrjár fatalínur í boði á
hverju ári þar sem framleiðsla hverrar línu tók um sex mánuði. Ortega
vildi geta fylgt tískustraumum líðandi stundar og þróaði því líkan sem
kallað hefur verið „instant fashion“ eða skynditíska. Í stað þess að vera
með einn aðalhönnuð réði Ortega til sín marga hönnuði en í dag vinna
kringum tvö hundruð fatahönnuðir í hönnunardeild Zöru. Zara framleiðir
sömuleiðis efnin sem keðjan notar og sparar þannig tíma og fjármuni um
leið og Zara nær þannig ákveðnu forskoti á samkeppnisaðilana. Hjá Zöru
tekur það tíu daga frá því hugmynd er komin á borðið hjá hönnuði þangað
til flíkin er komin í verslanir Zöru en sama ferli tekur í kringum 30 daga
hjá sænska stórrisanum H&M sem hefur á síðustu árum átt undir högg að
sækja vegna velgengni Zöru. Eftirlíkingar á fatnaði hátískuhönnuða koma
meira að segja oft fyrr í verslanir Zöru en í sjálf tískuhúsin og það dregur
vissulega úr glansinum og eftirvæntingunni sem ríkti hér á árum áður í
kringum „Ready to wear“-línurnar. Þessir framleiðsluhættir hafa haft
veruleg áhrif á tískuheiminn þar sem neysluvenjur og kröfur viðskipta-
vinarins hafa breyst frá því sem áður var. Markaðsstefna Zöru tekur mið
af því að halda viðskiptavininum áhugasömum með því að bjóða upp á
nýjar vörur í hverri viku. Zara auglýsir ekki en opnar búðir sínar við
stærstu og fjölförnustu göturnar í hverri borg þannig að gluggaútstilling-
arnar gegna mikilvægu hlutverki en um leið er þessi markaðsstefna enn
einn liðurinn í því að halda verðinu niðri. Veldi Zöru hefur svo sannarlega
breytt hugsunarhætti hins almenna neytanda þótt vissulega mætti finna
einhverja vankanta á því „fjöldaframleidda“ þjóðfélagi sem við lifum í,
þar sem allt snýst um verð fremur en gæði. Zara hefur engu að síður gert
okkur öllum kleift að klæðast því sem hæst ber hverju sinni án þess þó að
fara á hausinn.
RÓMANTÍSKUR
SUMARKJÓLL
Fyrir þær sem
leggja ekki
í blóma-
munstrin,
kjóll frá Eley
Kishimoto
fyrir sumar
2008.
Bowel Biotics+
Einstök formúla fyrir heilbrigði maga og ristils
- ráðlagt af meltingarlæknum og heilsusérfræðingum
Physillium Husk
Prebiotica Inulin FOS
Probiotics 5 tegundir
mjólkursýrugerla
Vinsælasta magaheilsuefnið
í Bretlandi og víðar
Ummæli íslenskra neytenda:
„Það besta og fljótvirkasta sem við höfum prófað”
Bowel Biotics+ Kids Sérstaklega
samsett svo hæfi meltingu barna
Fæst í apótekum og heilsubúðum Celsus