Fréttablaðið - 07.02.2008, Síða 11
FIMMTUDAGUR 7. febrúar 2008
KÍNA, AP Vetrarhörkur í Kína
hafa skapað mikið álag á
samgöngur og hafa milljón-
ir manna ekki komist leiðar
sinnar á mesta ferðatíma
ársins í kring um tunglárs-
áramótin. Nú sér þó fyrir
endann á vetrarveðrinu og
var helsta samgönguæð
landsins sem liggur frá
norðri til suðurs opnuð eftir
að hafa verið lokuð vikum
saman.
Er þetta versta veður sem
geisað hefur í mið- og
austurhluta Kína í yfir hálfa
öld. Húsakostur er víða illa búinn til að þola slíkt vetrarveður og í
mörgum bæjum eru engin tæki til snjómoksturs. Sums staðar hefur
verið rafmagnslaust í tólf daga. - sdg
Milljónir strandaglópar í Kína:
Vetrarveður loks í rénun
ÓFÆRÐ Unnið að því að losa bíl sem festist á
járnbrautarteinum í ófærðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Rúm
196x168 cm
Sæti Sæti
Eldhús
Rúm
196x122
cm
Geymsla Geymsla
SAMGÖNGUMÁL Nýr vegarkafli um
Svínahraun á Suðurlandsvegi
hefur gefið góða raun, en það er
svokallaður 2+1 vegur. Engin
alvarleg slys hafa orðið á vegar-
kaflanum síðan hann var tekinn í
notkun haustið 2005. Vegrið hafa
komið í veg fyrir alvarleg slys.
Reynsla Svía af 2+1 vegum er afar
góð og öryggi er litlu minna en á
vegum þar sem tvær akreinar eru
í hvora átt. 2+1 vegur er samt
margfalt ódýrari.
Þetta var meðal þess sem kom
fram á fundi sem Lýðheilsustöð
stóð fyrir í gær. Tekin var fyrir
spurningin hvaða vegagerð hent-
aði á stofnbrautum út frá borginni
og almennt á Íslandi, út frá öryggi
vegfarenda og með tilliti til kostn-
aðar.
Haraldur Sigþórsson, verkfræð-
ingur hjá Línuhönnun, hélt því
afdráttarlaust fram að 2+1 vegir
væru allt eins góð lausn og að
leggja tvær akreinar í hvora átt.
Vitnaði hann til reynslu Svía sem
hafa valið 2+1 lausnina víða í sínu
vegakerfi. „Sænskar rannsóknir
sýna að ef tveggja akreina þjóð-
vegi er breytt í 2+1 veg má búast
við allt að 70 prósent fækkun
alvarlega slysa og banaslysa.“
Ágúst Mogensen, forstöðumað-
ur rannsóknarnefndar umferðar-
slysa, hélt erindi um framan-
ákeyrslur. Þær eru helsta orsök
alvarlegra umferðarslysa hér á
landi en 70 einstaklingar hafa far-
ist í 54 slíkum slysum síðan 1998 á
öllu landinu. Niðurstaða Ágústs
var afdráttarlaus. „Það verður að
aðgreina umferð úr gagnstæðum
áttum á Suðurlandsvegi og Vest-
urlandsvegi sem fyrst. Hvert ár í
töf þýðir fleiri banaslys og slys
með miklum meiðslum.“
Ágúst minntist einnig á að þrátt
fyrir að mikið væri búið að kvarta
yfir 2+1 vegarkaflanum í Svína-
hrauni væri samt ljóst að hann
hefði komið í veg fyrir mörg slys.
Í fyrirlestri Haraldar kom fram
að í Svíþjóð hafa dæmin sannað að
2+1 vegir koma jafnt í veg fyrir
framanákeyrslur og tvær akrein-
ar í gagnstæðar áttir. Aðalatriðið
er miðjuskipting vegarins með
vegriði.
Á fundinum var nokkuð fjallað
um kostnað þessara tveggja lausna
til vegalagningar. Kom fram að
2+1 vegur er margfalt ódýrari. Ef
kostnaður við tvöföldun Suður-
landsvegar er tekinn sem dæmi þá
má leggja 2+1 veg frá Hvalfjarð-
argöngum að Borgarnesi fyrir það
fé sem sparast við að velja 2+1 á
þeirri leið. svavar@frettabladid.is
2+1 vegur góð
og ódýr lausn
Öryggi vegfarenda er álíka vel tryggt á 2+1 vegi
og þar sem tvær akreinar eru í hvora átt. 70 ein-
staklingar hafa farist í bílslysum á áratug; flestir í
framanákeyrslum á stofnbrautum út frá Reykjavík.
2+1 Í SVÍNAHRAUNI Vegarkaflinn á Suðurlandsveginum er umdeildur en hefur reynst
afar vel. 61 bíll hefur keyrt á vegriðið sem aðskilur akreinarnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FÆREYJAR Í nýskip-
aðri landstjórn
Færeyja eru þrír
af átta ráðherrum
konur, en engin
kona var í stjórn-
inni á síðasta kjör-
tímabili. Þá voru
sjö konur kjörnar
á Lögþingið í kosn-
ingunum 19. jan-
úar.
Þar sem þeir þingmenn sem
setjast í landstjórnina segja af sér
þingmennsku setjast varamenn
þeirra á þing; við það fjölgar um
eina konu og eru þær nú átta af
alls 33 þingmönnum. Áður sátu
aðeins þrjár konur á þingi.
Kristina Háfoss, nýr mennta-
málaráðherra úr Þjóðveldis-
flokknum, var ekki í framboði í
lögþingskosningunum.
- aa
Breytingar á færeyska þinginu:
Stóraukið hlutfall kvenna
KRISTINA
HÁFOSS