Fréttablaðið - 07.02.2008, Síða 55
Það verður ýmislegt um að vera á
Þjóðminjasafni Íslands á Safna-
nótt annað kvöld. Aðgangur að
safninu verður ókeypis og húsið
stendur opið frá kl. 19 og fram
yfir miðnætti. Draugar láta að
sér kveða; hin alíslenska Skotta
segir börnum sögur af draugum
og vættum kl. 19.30 og 20.30 og
Atli Rafn Sigurðarson leikari
segir hrollvekjandi draugasögur
kl. 21, 22 og 23.
Að auki opna á safninu tvær
ljósmyndasýningar kl. 20, en sýn-
ingarnar hverfast báðar um
klæðaburð Íslendinga, á ólíkum
tímum þó. Sýningin Tvö-þúsund-
og-átta verður opnuð á Veggnum,
en á henni má sjá ljósmyndir
Veru Pálsdóttur af fatatísku
nútímans eins og hún birtist utan
á fastagestum skemmtistaðarins
dauðadæmda, Sirkuss. Hug-
myndin að sýningunni kviknaði
þegar fregnir af lokun staðarins
bárust; vel þótti við hæfi að reyna
að varðveita stemninguna sem
þar ríkti með myndaþætti enda
fastagestir staðarins oft æði
skrautlegir í útliti. Vera Pálsdótt-
ir gekk því í verkið og fangaði
fatatísku staðarins með mynda-
vélinni.
Ljósmyndasýningin Til gagns
og til fegurðar – sjálfsmyndir í
ljósmyndum og klæðnaði 1860 til
1960 verður einnig opnuð annað
kvöld. Æsa Sigurjónsdóttir list-
fræðingur er höfundur sýningar-
innar, en rannsóknir hennar á
útliti og klæðaburði Íslendinga í
ljósmyndum frá 1860 til 1960 eru
kynntar á sýningunni og í sam-
nefndri bók sem kemur út við
þetta tilefni. Á sýningunni er
bent á hvernig Íslendingar hafa
notað ljósmyndir, þjóðbúninga og
tísku til að búa til mynd af sér.
Ljósmyndirnar á sýningunni eru
vísbending um hvernig Íslend-
ingar litu út og sýna hvernig þá
langaði til að vera.
Gestir Þjóðminjasafnsins geta
því notað Safnanótt til þess að
kynna sér óaðfinnanlegan fata-
smekk þjóðarinnar í nútíð og for-
tíð.
Draugar, sjálfsmynd og tískaTabori
í útvarpi
Í kvöld heldur áfram hátíð
Útvarpsleikhússins sem helg-
uð er þýska leikskáldinu Georg
Tabori en kl. 22.20 verður
fluttur fyrri hluti af verki hans
Andvaka í leikgerð og í leik-
stjórn Maríu Kristjánsdóttur.
María hefur tekið saman þátt
um Tabori og var hann fluttur
fyrir viku, en flutningur á síð-
ari hluta Andvöku er á dag-
skrá eftir viku. Þá er væntan-
legur endurflutningur á einu
hans frægasta verki: Móðir
mín hetjan í leikstjórn Hall-
mars Sigurðssonar. Með aðal-
hlutverkin fara Þorsteinn
Gunnarsson og Guðrún Þ.
Stephensen og meðal annarra
leikenda eru Bríet Héðinsdótt-
ir, Baldvin Halldórsson o.fl.
George Tabori fæddist í
Ungverjalandi 24. maí 1914.
Ungur fór hann til Þýskalands
til náms en flúði þaðan þegar
nasistar komust til valda, enda
gyðingur. Hann fluttist til Eng-
lands og fékk þar ríkisborg-
ararétt. Faðir hans lést í
útrýmingarbúðum nasista í
Auschwitz en móður hans
tókst að flýja. George Tabori
flutti til Bandaríkjanna 1947
og starfaði þar næstu tuttugu
árin. Hann vann þar við að
koma á framfæri verkum
sínum sem og vina sinna Bert-
olds Brechts og Max Fritz.
George Tabori sneri aftur til
Þýskalands 1971 og starfaði
þar og í Austurríki sem höf-
undur og leikstjóri allt til
dauðadags.
Leikendur í Andvöku eru
þau Erlingur Gíslason, Hjálm-
ar Hjálmarsson og Lilja Guð-
rún Þorvaldsdóttir. Þar segir
frá konu í Þýskalandi sem
leigir skömmu eftir stríð
erlendum farandverkamanni
svefnstað eina nótt, en ýmis-
legt heldur vöku fyrir þessum
tveimur einmana sálum. Verk-
ið er aðgengilegt á vef ríkisút-
varpsins í hálfan mánuð eftir
að flutningur kvöldsins er
afstaðinn.