Fréttablaðið - 26.02.2008, Síða 24
● fréttablaðið ● skipulag og hönnun 26. FEBRÚAR 2008 ÞRIÐJUDAGUR2
Hönnuðurinn Signý Kolbeins-
dóttir hefur hreiðrað vel um
sig við skrifborðið sitt en þar
ver hún miklum tíma.
Signý Kolbeinsdóttir situr löng-
um stundum við skrifborðið í stof-
unni hjá sér og kemur alls kyns
fantasíum á blað. „Þetta er eigin-
lega skrifstofan mín og þarna er
allt sem ég þarf. Ég ákvað nýlega
að gera svolítið fínt í kringum
mig og keypti nýja borðplötu og
hillur í IKEA,“ segir Signý.
Á skrifborðinu kennir ýmissa
grasa en tölvan, prentarinn og
skanninn eru þeir hlutir sem
Signý notar hvað mest. Þar eru þó
líka bækur, box undir smáhluti,
pennaveski, kerti, myndavélin
og sýnishorn af verkum hennar.
Signý hefur lengi verið undir jap-
önskum áhrifum í verkum sínum
en hún var þar á ferðalagi með
fjölskyldu sinni um skeið.
„Í nýjustu verkum mínum hef
ég verið að nota kolkrabba, sveppi,
sem eru mikið notaðir í japanskri
matargerð, og hið fræga Fuji-
fjall. Ég hef meðal annars gert
póstkort og plaköt með þessum
myndum.“ Undir glerplötu sem
er yfir skrifborðinu hefur Signý
komið myndunum fyrir auk ann-
arra hluta sem hún segir gott að
geta gripið til.
Signý útskrifaðist sem vöru-
hönnuður fyrir nokkrum árum en
hefur að mestu snúið sér að teikn-
ingu. „Draumurinn er þó að geta
tvinnað þetta eitthvað saman og
að búa til dæmis til veggfóður
með myndunum mínum,“ segir
Signý. Hún starfar sjálfstætt og
hefur meðal annars teiknað aug-
lýsingar fyrir hin ýmsu fyrir-
tæki. - ve
Undir japönskum áhrif-
um í vinalegu vinnuhorni
Á skrifborðinu geymir Signý ýmsa nytjahluti en einnig margt sem er henni kært. Myndirnar hennar eru á víð og dreif og eins
teikning eftir þriggja ára son gamlan hennar, Snorra, sem á kannski einhvern daginn eftir að feta í fótspor móður sinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Hönnunarvettvangur hefur undan-
farið þrjú ár starfað að undirbún-
ingi Hönnunarmiðstöðvar Íslands.
Þessum undirbúningi er nú lokið
og langþráður draumur hönnuða að
líta dagsins ljós.
Hönnunarvettvangur var tíma-
bundið þróunarverkefni rekið af
iðnaðarráðuneytinu, Nýsköpunar-
miðstöð Íslands, Samtökum iðnaðar-
ins, Útflutningsráði, Reykjavíkur-
borg og Form Ísland – samtökum
hönnuða.
Eitt af verkefnum Hönnunar-
vettvangs var að undirbúa og stuðla
að stofnun hönnunarmiðstöðvar.
Markmiðið er að efla hvers kyns
hönnun sem mikilvægan þátt í ís-
lensku atvinnulífi og að auka sam-
keppnishæfni og verðmætasköpun
íslensks efnahagslífs.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
gera þjónustusamning við miðstöð-
ina og fram undan er gerð starfs-
samnings menntamála- og iðnaðar-
ráðuneytis við fagfélög hönnuða
um rekstur hennar.
Stofnendur Hönnunar mið-
stöðvar innar eru fagfélög sem
áður störfuðu saman undir merkj-
um Form Ísland. Stofnendur Hönn-
unarmiðstöðvar Íslands og fulltrú-
ar þeirra eru: Leirlistarfélag Ís-
lands, Félag vöru- og iðnhönnuða,
Félag íslenskra gullsmiða, Félag
íslenskra landslagsarkitekta, Text-
ílfélagið, Félag húsgagna- og inn-
anhúsarkitekta, Félag íslenskra
teiknara, Arkitektafélag Íslands og
Fatahönnunarfélag Íslands.
Guðbjörg Gissurardóttir, fyrr-
verandi framkvæmdastjóri Hönn-
unarvettvangs, mun aðstoða við
stofnun og rekstur miðstöðvar-
innar fyrst um sinn eða þar til nýr
framkvæmdastjóri verður ráðinn.
Ekki er enn ljóst hvar Hönnunar-
miðstöðin verður til húsa en það og
annað mun skýrast á næstu dögum.
Sjá nánari upplýsingar á www.ice-
landdesign.is. - rh
Hönnunarmiðstöð
Íslands tekin til starfa
Guðbjörg Gissurardóttir aðstoðar við
stofnun og rekstur Hönnunarmiðstöðv-
ar Íslands þar til nýr framkvæmdastjóri
verður ráðinn.
!
"""!
!
Foss-stál
Tekur a› sér alla almenna stálsmí›i
fijónustar bæ›i fyrirtæki og einstaklinga
Stál, ál og rústfrítt
Logsu›a, rafsu›a, álsu›a
Gerum tilbo› í verk
Foss-stál ehf.
Gagnhei›i 9 - 800 Selfoss - Símar: 4824353, 8684292 - Netfang: foss_stal@simnet.is
Vi› leggjum metna› okkar í gó›a og vanda›a fljónustu!
Foss-stál
Tekur að sér alla almenna stálsmíði
Þjónustar bæði fyrirtæki og einstaklinga
stál, ál og rústfrítt
Logsuða, rafsuða, álsuða
gerum tilboð í verk
„...fyrst á visir.is“
...ég sá það á visir.is