Fréttablaðið - 26.02.2008, Síða 40
20 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
UMRÆÐAN
Verslunarrekstur
Bæjaryfirvöld á Sel-tjarnarnesi hafa
lengi barist hatramm-
lega gegn lágvöruverðs-
verslun Bónuss á Sel-
tjarnarnesi. Í löngu og
ítarlegu viðtali við Jón-
mund Guðmarsson,
bæjar stjóra á Seltjarnar-
nesi, í Morgunblaðinu 17.
febrúar sl. var meðal
annars rætt um brott-
hvarf verslunar Bónuss
úr bæjarfélaginu. Því
miður fór Jónmundur bæjarstjóri
ítrekað með rangt mál og sneri
raunar ýmsu á hvolf, hvað varðar
samskipti Bónus við Seltjarnarnes í
gegnum árin.
Í nokkur ár hefur verið vitað að
húsnæðið sem hýsti verslun Bónuss
á Hrólfsskálamel yrði rifið vegna
nýs skipulags á svæðinu. Óhætt er
að segja að forsvarsmenn sveitar-
félagsins hafi vísvitandi skipulagt
Bónus út af Seltjarnarnesi, án þess
að skeyta nokkuð um þau lífsgæði
sem óneitanlega eru falin í því að
búa nærri lágvöruverðsverslun.
Þyrping þróunarfélag, sem er tengt
Baugi Group, hóf vinnu fyrir Bónus
við greiningu á möguleikum til upp-
byggingar á verslun og þjónustu á
Hrólfsskálamel. Farið var yfir
niður stöðu bindandi íbúakosninga
um nýtingu Hrólfsskálamels og
Suðurstrandar. Í þeirri tillögu sem
varð fyrir valinu er gert ráð fyrir
blandaðri byggð og varð niður-
staðan sú að þarna væri ekki svig-
rúm til uppbyggingar á öflugu
verslunarsvæði.
Eina stórverslunin á Seltjarnar-
nesi í dag er því Hagkaup við Eiðis-
torg, en eins og bæjarstjórinn veit
manna best býr sú verslun við mikil
þrengsli í um þrjátíu ára gömlu hús-
næði. Vegna þessa getur verslunin
ekki boðið viðskiptavinum sínum
upp á það vöruúrval og þá þjónustu
sem þeir óska eftir og eigendur
fyrir tækisins vilja veita. Skiljan-
lega hafa viðskiptavinir komið fram
með kvartanir þar að lútandi.
Uppbygging á Eiðistorgi
Seinni hluta árs 2006 vann Þyrping,
í samvinnu við Seltjarnarnesbæ, til-
lögur um mögulega uppbyggingu
verslunar á Eiðistorgi fyrir Bónus
og Hagkaup. Var m.a. kannað hvort
verslun Hagkaupa kæmist fyrir í
nýju húsnæði á lóð þar sem nú er
bensínstöð Orku, og að Bónus færi í
núverandi húsnæði Hagkaupa. Í
ljós kom að ekki er gerlegt að koma
verslunum Hagkaupa og Bónuss
fyrir á svæðinu, m.a. vegna tak-
markaðs landrýmis, þrengsla og
ófullnægjandi aðkomu. Það er
miður, þar sem eigendum Bónuss
og Hagkaupa er mikið í mun að efla
starfsemi fyrirtækjanna með stærri
verslunum og bættri þjónustu við
íbúa á svæðinu í takt við þróun
byggðar á vesturhluta höfuðborgar-
svæðisins. Ákvörðun um að engin
frekari uppbygging yrði
á Eiðistorgi af hálfu
Bónuss og Hagkaupa
var því tekin þar sem
annmarkarnir eru slíkir
að ekki var talinn grund-
völlur fyrir frekari
framkvæmdum.
Undirritaður átti þó
nokkra fundi með bæjar-
stjóranum, til þess að
ræða þessi mál og reyna
að tryggja að íbúar Sel-
tjarnarness og vestur-
hluta Reykjavíkur gætu
áfram nálgast ódýra og
góða dagvöru, án þess
að keyra bæjarhlutanna
á milli. Skemmst er frá því að segja
að Jónmundur gerði lítið til þess að
greiða götu viðskiptavina Bónuss.
Landfylling við Norðurströnd
Nánari rannsóknir Þyrpingar leiddu
fljótlega í ljós að vænlegur kostur
til uppbyggingar verslunar og þjón-
ustu væri landfylling norðanmegin
Norðurstrandar, á bæjarmörkum
Seltjarnarness og Reykjavíkur. Þar
væri hægt að byggja upp öfluga
þjónustu fyrir íbúa Seltjarnarness
og Vesturbæjar Reykjavíkur. Hag-
kaup, Bónus og aðrar verslanir
kæmust þarna fyrir og það svæði
sem losnaði á Eiðistorgi gæti farið
undir aðra byggð.
Þyrping gerði að auki tillögur um
að Bónusverslun yrði staðsett á lóð
við Austurströnd þar sem nú er
bensínstöð og að Hagkaupsverslun-
in yrði staðsett við Eiðistorg. Fljót-
lega kom í ljós að forsvarsmenn
olíufélagsins höfðu ekki áhuga á að
selja lóðina, auk þess sem rann-
sóknir sýndu að þessi kostur væri
ekki eftirsóknarverður þar sem
lítið rými er fyrir bílastæði og ljóst
væri að Hagkaup og Bónus yrðu
áfram hvort á sínum staðnum. Slíkt
er óheppilegt fyrir umferð á svæð-
inu, þar sem samlegðaráhrif af nýt-
ingu bílastæða tapast.
Það var því ákveðið af hálfu Þyrp-
ingar að skoða hugmynd um land-
fyllingu enn frekar og leggja tillögu
fyrir skipulagsyfirvöld á Seltjarnar-
nesi um 22.000 fermetra landfyll-
ingu norðan við Eiðsgranda. Það
ber að taka fram að svæðaskipulag
höfuðborgarsvæðisins gerir m.a.
ráð fyrir slíkum möguleika. Á land-
fyllingunni er gert ráð fyrir um
4.000 fermetra Hagkaupsverslun,
um 1.200 fermetra Bónusverslun og
um 1.200 fermetra rými fyrir aðrar
minni verslanir og þjónustu ásamt
rúmlega 200 bílastæðum. Fjölmargir
aðilar hafa komið að máli við undir-
ritaðan og lýst yfir áhuga á því að
leigja verslunarhúsnæði undir litlar
verslanir, kæmi til uppbyggingar á
landfyllingu við Norðurströnd.
Tillögur Þyrpingar eru mjög
metnaðarfullar. Þær taka tillit til
mögulegrar útivistar í tengslum við
göngu- og hjólreiðastíga sem fyrir
eru við ströndina og lögð er mikil
áhersla á að byggingarnar falli vel
inn í umhverfið, að húsin verði lág-
reist og að skjólveggir norðan megin
á fyllingunni hylji þá starfsemi sem
fram fer baka til við slíkar verslanir,
s.s. vörumóttöku og fleira.
Til að gera langa sögu stutta var
tillögum Þyrpingar hafnað af skipu-
lags- og mannvirkjanefnd Sel-
tjarnar nesbæjar. Rökin voru eink-
um þau að bæjaryfirvöld hefðu
nýlega lokið við gerð aðalskipulags
sem gerði ekki ráð fyrir landfyll-
ingu og að ekki væri, að mati for-
svarsmanna Seltjarnarness, áhugi
á meðal bæjar búa fyrir slíkri land-
fyllingu.
Rógsherferð gegn tillögunum
Það skal áréttað að í sömu andrá og
Þyrping lagði fram sínar tillögur
um landfyllingu við Austurströnd,
voru uppi hugmyndir annarra aðila
um landfyllingu við Suðurströnd á
Seltjarnarnesi sem mættu mikilli
andstöðu í bæjarfélaginu. Í júní-
mánuði árið 2005 var Seltirningum
gefinn kostur á að kjósa um skipu-
lagstillögur fyrir Hrólfsskálamel
annars vegar og Suðurströnd hins
vegar. Alls greiddu 1.727 atkvæði
eða 52% atkvæðisbærra á Seltjarnar-
nesi. Ekki var verið að kjósa um
landfyllingu við Norðurströnd.
Sjálfsagt er að draga þá ályktun
að hugmyndirnar varðandi Suður-
ströndina hafi vegið þungt hjá Sel-
tirningum. Þá er ekki loku fyrir það
skotið að rógsherferð óvilhallra ein-
staklinga – sem ráðist var í fyrir
umræddar kosningar – hafi skilað
árangri. Til þess að rugla fólk í rím-
inu tók einhver upp á því að dreifa
til íbúa bæjarfélagsins myndum
með upplýsingum sem skrum-
skældu tillögur Þyrpingar fyrir
Norðurströndina. Þar hafði meðal
annars hæð hugsanlegrar verslunar-
miðstöðvar verið hækkuð um nærri
helming og útlitið var í engu sam-
ræmi við tillögur Þyrpingar.
Andstaða frá upphafi
Eins og áður segir hafa forsvars-
menn Bónuss og Hagkaupa ítrekað
átt fundi með Jónmundi bæjar-
stjóra vegna þá væntanlegs flutn-
ings Bónuss, en ekkert orðið ágengt.
Í umræddu viðtali kom fram að það
hefði verið einhliða ákvörðun Bón-
uss að fara. Bæjaryfirvöld sögðu
upp leigusamningi við Bónus án
þess að bjóða nokkrar lausnir.
Bónus hafði ekkert val. Forsvars-
menn fyrirtækisins óskuðu eftir til-
lögum að lausnum og funduðu með
bæjarstjóra án nokkurra viðbragða.
Bæjaryfirvöld buðu Högum á sínum
tíma að kaupa á markaðsverði land
undir verslun fyrir Bónus á Hrólfs-
skálamel. Eins og Íslendingar vita
eru verslanir Bónuss þannig reknar
að álagningu og allri umgjörð er
haldið í algjöru lágmarki og aug-
ljóst að verslunin myndi aldrei
standa undir slíkri fjárfestingu á
þeim eftirsótta og dýra stað.
Nú kynni einhver að spyrja hvort
kostnaður við landfyllingu sé ekki
mikill og mun meiri en lóð við
Hrólfsskálamel. Það væri vissulega
rétt athugasemd en er þó fljótsvar-
að: Með því að hafa bæði verslun
Hagkaupa og Bónuss á henni og
rými fyrir minni verslanir og þjón-
ustu jafnast kostnaður út á fleiri
aðila og myndi ekki vera byrði fyrir
verslunareigendur og enn síður við-
skiptavini fyrirtækjanna.
Það er umhugsunarvert að strax
þegar forráðamenn Bónuss lögðu
fram óskir um verslunarrekstur á
Seltjarnarnesi árið 1992, urðu þeir
varir við að slíkar hugmyndir nutu
ekki hylli allra forvígismanna í
bæjar félaginu. Hvers vegna er ekki
gott að átta sig á. Það er í raun
óskiljanlegt að Jónmundur og vinir
hans skuli gera allt sem í þeirra
valdi stendur til þess að koma í veg
fyrir að íbúar Seltjarnarness njóti
þeirra kjarabótar sem verslanir
Bónuss óneitanlega eru. Hvað vakir
fyrir slíku fólki? Í þessu sambandi
er rétt að hafa í huga nýlega könnun
sem framkvæmd var af Capacent.
Þar kom fram að af þeim sem tóku
afstöðu töldu 77,47% íbúa á Sel-
tjarnarnesi mikilvægt eða mjög
mikilvægt að Bónus væri með
verslun á Seltjarnarnesi. Sem íbúi á
Seltjarnarnesi til langs tíma trúi ég
því ekki að Seltirningar líði það til
lengdar að sveitarfélaginu sé stjórn-
að af manni sem berst hatramm-
lega gegn hagsmunum íbúanna.
Höfundur er kaupmaður.
Um landfyllingu og Bónusverslun á Seltjarnarnesi
LANDFYLLING Myndirnar sýna hvernig verslanir Bónuss og Hagkaupa hefðu litið út, hefði verið ráðist í landfyllingu við Norður-
strönd Seltjarnarness og uppbyggingu lítillar verslunarmiðstöðvar.
JÓHANNES JÓNSSON