Fréttablaðið - 26.02.2008, Síða 42
22 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Öskjuhlíðarskóli tók form-
lega í notkun skynörvunar-
aðstöðu í lok síðustu viku.
Aðstöðunni, sem meðal ann-
ars samanstendur af vatns-
rúmi og boltabaði, er ætlað
að koma til móts við þá nem-
endur sem eiga við skynt-
ruflanir að stríða, eru með
skerta líkamsstarfsemi eða
skerta líkamsvitund.
„Við teljum að þessi að-
staða muni auka skynvitund
nemenda og þar með gæði
skólastarfsins,“ segir Dagný
Annasdóttir, skólastjóri
Öskjuhlíðarskóla. „Hug-
myndin að henni kviknaði
fyrir tveimur árum þegar
við gerðum þarfagreiningu
fyrir nemendur skólans.
Þá voru þeir um hundrað
talsins og kom í ljós að um
helmingur var á einhverfu-
rófi auk þroskahömlunar
eða fjölfötlunar. Þetta háa
hlutfall kom okkur á óvart,“
segir Dagný. Í kjölfarið var
farið að kanna hvað væri
hægt að gera til að bæta að-
búnað barnanna þannig að
skilyrði til skólastarfsins
yrðu betri.
„Við vissum að skyn-
örvunar aðstaða hentaði ein-
hverfum nemendum sérstak-
lega vel og kynntum okkur
slíka aðstöðu hjá frændum
okkar í Danmörku. Við völd-
um það besta sem þeir höfðu
upp á að bjóða og fengum
styrk frá Barnaspítalasjóði
Hringsins til að kaupa tæki
og annan búnað.“
Skólinn fékk síðan tvær
lausar skólastofur til að
hægt væri að losa rými
í skólahúsnæðinu sjálfu.
Reykjavíkurborg veitti svo
viðbótarframlag ásamt því
að bæta við stöðugildi til að
sérstakur starfsmaður gæti
haldið utan um aðstöðuna.
Dagný segir mikla
ánægju vera með aðstöð-
una hjá starfsfólki, foreldr-
um og sérstaklega börnun-
um. „Fyrir okkur sem telj-
umst eðlileg er sjálfsagt að
heyra, finna lykt og bragð
og að geta áttað sig á hlut-
um með snertingu. Þetta
er ekki eins sjálfsagt fyrir
okkar nemendur en þeir
eru margir með skerðingu á
þessum sviðum. Eins getur
stöðu- og jafnvægisskyn
þeirra verið takmarkað.“
Dagný segir börnin þurfa
miklu meiri örvun til að
koma jafnvægi á þessa
þætti. Boltabaðið ýtir undir
margs konar skynjun og í
gegnum vatnsrúmið koma
bylgjur og tónlist sem líkam-
inn skynjar.
vera@frettabladid.is
ÖSKJUHLÍÐARSKÓLI: NÝ AÐSTAÐA
Örvar skynvit-
und nemenda
EYKUR SKYNJUN Börnin skynja
bylgjur í gegnum vatnsrúmið.
ÖSKJUHLÍÐARSKÓLI Dagný Annasdóttir, skólastjóri Öskjuhlíðarskóla,
ásamt Ernu Líndal Kjartansdóttur sem mun halda utan um aðstöðuna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kristjánsborgarhöll í
Kaupmannahöfn brann,
í fyrra skiptið, þenn-
an dag árið 1794. Hún
var síðan endur reist en
brann aftur árið 1884.
Kristjánsborg hýsti
áður danska kóngafólkið
en eftir brunann 1794
flutti það yfir í Amalíu-
borg. Nú hýsir Kristjáns-
borg framkvæmdar-,
löggjafar- og dómsvald-
ið í Danmörku. Þingið á þó flest sætin í höllinni. Hvergi annars
staðar í heiminum þekkist það að meginstoðir stjórnkerfisins séu
hýstar í einu og sömu byggingunni.
Höllin státar af þremur ólíkum stefnum í arkitektúr sem rekja
má til brunanna tveggja árin 1794 og 1884. Aðalbygging hallar-
innar er þó mun yngri, eða frá árinu 1928, og er hún byggð í síð-
búnum barokkstíl.
ÞETTA GERÐIST 26. FEBRÚAR 1794
Kristjánsborg brennur
KRISTJÁNSBORGARHÖLL
timamot@frettabladid.is
Þakkir til þeirra sem sýndu okkur hlýhug
við andlát og útför
Sigríðar Garðarsdóttur
Aðalstræti 74, Akureyri.
Gylfi Garðarsson
Hafdís Pálsdóttir
Sigurpáll Pálsson
n
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, systir og mágkona,
Jónína Rannveig
Snorradóttir
Fögrusíðu 11c, Akureyri,
sem lést á heimili sínu miðvikudaginn 20. febrúar,
verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju 28. febrúar kl.
10.30.
Arngrímur Ævar Ármannsson
Daníel Snorri Jónsson Hulda Dagmar Reynisdóttir
Sigurbjörg Jónsdóttir Stefán Steinarsson
Ármann Pétur Ævarsson Rakel Hinriksdóttir
Sandra Björk Ævarsdóttir
Þórir Snorrason Guðrún Ingimundardóttir
Lovísa Snorradóttir Hilmir Helgason
Unnur Björk Snorradóttir Jónas Marinósson
Elskulegur eiginmaðurinn minn, bróðir
okkar og mágur,
Friðþjófur Þorkelsson
Bugðutanga 40,
lést á Líknardeild Landspítalans að Landakoti
miðvikudaginn 20. febrúar. Útförin fer fram frá
Hallgrímskirkju fimmtudaginn 28. febrúar n.k.
kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Louise Anna Schilt (Loekie)
Sigurlaug Þorkelsdóttir
Einar Þorkelsson Kristín G. Jóhannsdóttir
Svanhildur Þorkelsdóttir
Brynhildur Þorkelsdóttir Valdimar Kristinsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
sonur, bróðir og afi,
Ellert Eggertsson
Hraunbæ 90,
lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn
22. febrúar. Jarðarför auglýst síðar.
Elín Halla Þórhallsdóttir
Rebekka Rós Ellertsdóttir Páll Jónsson
Eggert Ellertsson
Andri Þór Ellertsson Anna Lilja Marteinsdóttir
Sigríður Elísabet Sæmundsdóttir
Sæmundur Eggertsson
Eyþór Eggertsson Ingveldur Ólöf
Björgvinsdóttir
og afabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
Jónas Reynir Jónsson
frá Melum, Sólheimum 23, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans, Landakoti föstudaginn
22. febrúar.
Elín Þórdís Þórhallsdóttir
Elsa Jónasdóttir Gunnar Guðjónsson
Ína H. Jónasdóttir Eggert Sv. Jónsson
Þóra Jónasdóttir
Birna Jónasdóttir Gunnar Vignisson
barnabörn og fjölskyldur.
Útför
Jóns Hilmars Sigurðssonar
frá Úthlíð
fer fram frá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 27. febrú-
ar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á SEM
samtökin. Reikningur 323-26-1323, kt. 510182-0739.
Systkini og aðrir aðstandendur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Elías Guðbjartsson
sjómaður, Hrafnistu Reykjavík,
áður til heimilis að Klapparstíg 11
Reykjavík,
lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 23. febrúar sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Viðar Elíasson Guðrún Halldórsdóttir
Hilmar Elíasson Linda B. Gunnarsdóttir
Svanur Elí Elíasson
Selma Björk Elíasdóttir
Halldór Guðbjartur Elíasson Sesselja Guðbjörg
Ragnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát okkar ástkæra föður,
tengdaföður, bróður, afa og langafa,
Eggerts Ólafssonar
Skarðshlíð 23e, Akureyri.
Guð blessi ykkur öll,
Sigurlaug Anna Eggertsdóttir Bergvin Jóhannsson
Steinunn Pálína Eggertsdóttir Jóhann Jóhannsson
Stefán Eggertsson
Elín Valgerður Eggertsdóttir Hilmar Stefánsson
Sigurður Grétar Eggertsson Rósa Helgadóttir
Kristín J. Swan
afa- og langafabörnin.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Margrét Sigurðardóttir
Hjallaseli 21 (áður Réttarholtsvegi 57)
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut, laugardag-
inn 23. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Ásmundur Sigurðsson
Ruth Woodward
Sonja Sigurðardóttir
Svanhvít Sigurðardóttir
Gunnar Kr. Sigurðsson Guðríður Jónsdóttir
Erla Hafdís Sigurðardóttir Sigurður V. Magnússon
Jenný Sigurðardóttir Ragnar Geirdal
Þorsteinn Sigurðsson Laufey V. Hjaltalín
Stefnir Páll Sigurðsson Ásdís Sigurðardóttir
Matthías Sigurðsson Ragnheiður
Guðmundsdóttir
Sigurður G. Sigurðsson Sigurveig Björgvinsdóttir
Kristín Ármannsdóttir Birgir Ómarsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.