Fréttablaðið - 26.02.2008, Page 50
30 26. febrúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
Hinn 22 ára gamli Óli Tómas Freysson úr FH gerði sér lítið
fyrir og bætti Íslandsmet karla í 200 metra hlaupi innanhúss
um 16/100 úr sekúndu þegar hann hljóp á 21,65 sekúnd-
um á Bikarkeppnismóti Frjálsíþróttasambands Íslands um
síðustu helgi. Fyrri methafinn, Sveinn Elías Elíasson,
hljóp einnig undir gamla Íslandsmetinu en varð
að sætta sig við annað sætið á tímanum 21,73
sekúndum. Óli Tómas Freysson var afar sáttur
með árangurinn þegar Fréttablaðið tók hann
tali í gær. „Þetta var mjög ánægjulegt. Ég setti
stefnuna á að ná metinu og það var svo sem
líklegt að bæði ég og Sveinn Elías myndum
hlaupa undir metinu og bara spurning hvor
færi lengra undir það,“ sagði Óli Tómas sem hefur
jafnan lagt megináherslu á 100 metra hlaup.
„200 metra hlaupið hefur verið að koma inn hjá mér
síðasta árið eða svo en ég hef jafnan einbeitt mér mest
að 100 metra hlaupi og 60 metra hlaupi. Munurinn er
talsvert mikill að hlaupa þær vegalengdir samanborið við
200 metra hlaupin þar sem hraðaúthaldið í lok hlaupsins skiptir
mestu máli og ég hef hingað til ekki verið nógu góður í að klára
200 metra hlaupin. Ég hef hins vegar lagt meiri áherslu á lengri
spretti upp á síðkastið og ég finn að þetta er að koma betur hjá
mér,“ sagði Óli Tómas sem telur sig eiga mikið inni og hefur sett
sér skýr markmið fyrir næsta sumar. „Undirbúningstímabilið
miðast náttúrlega fyrst og fremst við keppnina utanhúss
næsta sumar þó svo að vissulega sé aðeins hliðrað til
í æfingarprógramminu fyrir innanhússmótin. Fram
undan eru tvö innanhússmót þar sem ég ætla mér
að reyna að bæta Íslandsmetið í 60 metra hlaupi
en þjálfarinn minn, Einar Þór Einarsson, sem
er búinn að reynast mér mjög vel, á einmitt
það met. Fyrir næsta sumar horfi ég mikið
til Íslandsmetsins í 100 metra hlaupi sem
er 10,56 sekúndur en ég á best 10,83
sekúndur. Það ber svolítið á milli en ég
tel mig eiga talsvert inni og set stefnuna á
að bæta metið,“ sagði Óli Tómas ákveðinn.
SPRETTHLAUPARINN ÓLI TÓMAS FREYSSON: BÆTTI ÍSLANDSMETIÐ Í 200 METRA HLAUPI INNANHÚSS UM HELGINA
Stefnan sett á metið í 100 metra hlaupi utanhúss
FÓTBOLTI Sigurður Ragnar
Eyjólfsson, landsliðsþjálfari
kvenna í fótbolta, tilkynnti í gær
20 manna hóp sem fer á Algarve
Cup. Tveir nýliðar eru í hópnum,
Hallbera Gísladóttir úr Val og
Rakel Hönnudóttir úr Þór. - óój
LANDSLIÐSHÓPURINN
Markverðir: Guðbjörg Gunnars-
dóttir, Val og Sandra Sigurðardóttir,
Stjörnunni. Aðrir leikmenn: Katrín
Jónsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir
Dóra María Lárusdóttir, Ásta Árna-
dóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir, Sif
Atladóttir, Pála Marie Einarsdóttir og
Hallbera Guðný Gísladóttir, allar úr
Val, Edda Garðarsdóttir, Guðrún Sóley
Gunnarsdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir
og Katrín Ómarsdóttir, allar úr KR,
Greta Mjöll Samúelsdóttir og Harpa
Þorsteinsdóttir, báðar úr Breiðabliki,
Dóra Stefánsdóttir, Malmö, Erla
Steina Arnardóttir, Kristianstad, Sara
Björk Gunnarsdóttir, Haukum og
Rakel Hönnudóttir, Þór.
Kvennalandsliðið í fótbolta:
Tveir nýliðar
HANDBOLTI Guðmundur Guðmunds-
son og HSÍ tilkynntu í gær skamm-
tímasamning sín í milli um það að
hann þjálfi íslenska landsliðið
fram yfir komandi Ólympíuleika
takist Íslandi að tryggja sér sæti á
leikunum í Peking. Guðmundur
þjálfaði landsliðið áður á árunum
2001-2004 og náði meðal annars 4.
sætinu á EM 2002 í Svíþjóð og 7.
sætinu á HM 2003 í Portúgal.
„Ég hef ennþá brennandi áhuga
á handbolta og er búinn að vera
viðloðin þjálfun í átján ár. Það er
mikill heiður að fá að taka við
landsliðinu en ég var samt ekki að
stefna á þetta á neinn hátt. Þetta
þróaðist bara þannig að þetta kom
upp og þá var bara að hrökkva eða
stökkva og ég ákvað að stökkva,“
segir Guðmundur, sem fékk ekki
langan umhugsunarfrest. „Ég
íhugaði þetta yfir helgina og það
skipti mig öllu máli að hafa stuðn-
ing minna æðstu stjórnenda hjá
Kaupþingi til þess að taka þetta að
mér. Ef að það hefði ekki verið þá
hefði ég ekki gefið kost á mér í
þetta. Það er nú þannig með mig
að ég hef oft verið ginkeyptur
fyrir ögrandi verkefnum,“ segir
Guðmundur.
Formaður HSÍ þakkar einum
helsta styrktaraðila sambandsins
sinn þátt í að samninganefnd HSÍ
fann loksins nýjan þjálfara.
„Kaupþing er að sýna okkur mikið
traust og styðja vel við íslenskan
handbolta með því að gefa Guð-
mund lausan í þessi verkefni. Það
var mikið atriði að nýr þjálfari
þekkti vel til liðsins og þekkti til
boltans og það vó þungt,“ sagði
formaðurinn um af hverju leitað
var til Guðmundar. Hann kannast
vel við leikmenn og umhverfi
landsliðsins.
„Ég fylgst gríðarlega vel með
liðinu, var að aðstoða Alfreð og
var síðan með liðið í þrjú og hálft
ár. Ég þekki hvað þarf til í þetta
starf,“ sagði Guðmundur, sem ját-
aði það á blaðamannafundinum að
fjölmiðlafárið í kringum ráðningu
í landsliðsþjálfarastöðuna hafi
ekki truflað sig í að taka þessa
ákvörðun.
„Það er bara eðlilegt að menn
hafi skoðanir og skoðanaskipti í
kringum landsliðið. Þetta er lands-
lið þjóðarinnar og það er engum
sama um það og þess vegna er öll
umræða í kringum það eðlileg.
Aðalatriðið er að það er búið að
taka ákveðna ákvörðun núna og nú
mun ég leggja allt kapp á það að
undirbúa liðið sem best fyrir þessa
leiki sem fram undan er,“ sagði
Guðmundur en hann er ekki enn
búinn að finna sér aðstoðarmann.
„Ég fæ hjálp frá HSÍ í því en ég
hef mínar skoðanir á því hver það
muni verða,“ sagði Guðmundur,
sem vildi ekki gefa upp hvert hann
myndi horfa í leit sinni að aðstoðar-
manni.
Þetta verður í fyrsta sinn í 28 ár
sem HSÍ leitar til þjálfara sem
hefur verið með íslenska landslið-
ið áður en síðastur til að koma
aftur að landsliðinu var Hilmar
Björnsson árið 1980, sem áður
hafði hann þjálfað liðið frá 1968-
1972. Hilmar þjálfaði liðið síðan til
1983 þegar Bogdan Kowalczyk tók
við því. ooj@frettabladid.is
Sá fyrsti í 28 ár
Guðmundur Guðmundsson er aftur tekinn við
handboltalandsliðinu en það gerðist síðast 1980 að
þjálfari sneri aftur í landsliðsþjálfarastólinn.
GUÐMUNDARNIR TVEIR Guðmundur Guðmundsson, nýráðinn landsliðsþjálfari og
fjær er Guðmundur Ingvarsson formaður HSÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
ÞESSI ER MEÐ TUDOR
EKKERT MÁL
CTEK HLEÐ
SLUTÆKI V
ERÐ FRÁ K
R 7.900.-
> Margir vænlegir kostir í stöðunni
Það er ekki ljóst hver verður aðstoðarmaður Guðmundar
Guðmundssonar, nýráðins landsliðsþjálfara í handbolta.
Guðmundur var sem kunnugt er áður með landsliðið og
þá var núverandi framkvæmdastjóri HSÍ, Einar Þorvarðar-
son, aðstoðarmaður hans. Einar kvað í samtali við Frétta-
blaðið ekkert vera ákveðið með hugsanlegan aðstoðar-
mann nema þá að hann sjálfur myndi ekki taka það
hlutverk að sér. „Það er engin hætta á því að ég taki starfið
að mér, svo mikið er víst. Það eru hins
vegar margir vænlegir kostir í stöðunni
og við komum til með að skoða þá
vandlega, en ekki á þeim hraða sem
fjölmiðlarnir vilja að við gerum,“ sagði
Einar á léttum nótum.
FÓTBOLTI Everton sigraði
Manchester City 0-2 á Borgar-
leikvanginum í Manchester í
gærkvöld.
Heimamenn í City voru
meira með boltann framan af
leik en vel skipulögð vörn
Everton gaf engin færi á
sér.
Everton komst
svo yfir stuttu
síðar þegar hinn
eitraði Yakubu
fékk góða send-
ingu frá Cahill
og afgreiddi
boltann í netið
framhjá Joe Hart í
markinu.
Varnarmaðurinn
Joleon Lescott bætti
svo öðru marki við
fyrir Everton með hnitmiðuðum
skalla eftir sendingu Lee Carsley
utan af vinstri kantinum og þar
við sat í hálfleik.
Everton hélt uppteknum
hætti í byrjun seinni hálf-
leiks og Richard Dunne
þurfti að bjarga á línu en
eftir það náði City að kom-
ast betur inn í leikinn og
auka pressuna á Evert-
on en sem fyrr gekk lið-
inu illa að skapa sér
marktækifæri.
City-maðurinn Martin
Petrov fékk svo að líta
rauða spjaldið í uppbótar-
tíma en sigur Everton var
þá vitanlega í höfn. - óþ
Everton vann City í ensku úrvalsdeildinni í gær:
Everton í 4. sætið
EITRAÐUR Varnarmenn City
réðu illa við Yakubu í gærkvöld.
NORDIC PHOTOS/GETTY