Fréttablaðið - 27.02.2008, Síða 4

Fréttablaðið - 27.02.2008, Síða 4
4 27. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR GENGIÐ 26.02.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 128,6169 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 65,82 66,14 129,76 130,4 97,84 98,38 13,119 13,195 12,409 12,483 10,536 10,598 0,6096 0,6132 104,61 105,23 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR Er mataræðið óreglulegt? LGG+ er fyrirbyggjandi vörn! Skyndibitafæði, sætindi, óreglulegar máltíðir – allt þetta dregur úr innri styrk, veldur þróttleysi, kemur meltingunni úr lagi og stuðlar að vanlíðan. Regluleg neysla LGG+ vinnur gegn þessum áhrifum og flýtir fyrir því að jafnvægi náist á ný. Dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. H V Í T A H Ú S IÐ / S ÍA VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 7° 6° 4° 4° 6° 12° 11° 10° 8° 10° 21° 17° 12° 10° 21° 4° 16° 16° Á MORGUN 3-8 m/s en 10-15 m/s við suðurströndina 5 -4 FÖSTUDAGUR 5-15 m/s, hvassast við SA- ströndina -5 -5 -6 -3 -1 0 -1 -2 -3 -8 4 4 4 5 7 6 6 4 8 4 -5 -6 -5 -3-2 -7 -7 -5 -4-4 FROST ÚT MÁNUÐINN Við höfum verið í frostakafl a síðustu daga og ekki horfur á að breytist um sinn. Frostið verður almennt á bilinu 0-9 stig næstu daga, kaldast til landsins nyrðra en mildast syðst. Þar gæti raunar orðið frostlaust yfi r há- daginn einkum úti við ströndina. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur EFNAHAGSMÁL Steingrímur J. Sig- fússon, formaður VG, segir grein- arskrif Illuga og Bjarna til marks um að þeir meti ástandið alvarlegt. „Þá er spurning hvort það sé dul- inn tilgangur greinarinnar að ýta við sinni for- ystu; flokks og ríkisstjórnar. Ég er svo sammála því að grípa þurfi til aðgerða.“ Steingrímur vill endur- skoða verðbólgumarkmið bankans. „Ég hef bent á að ríkisstjórnin getur beitt sér fyrir því að endur- skoða samkomulag sitt við bank- ann. Það þarf ekki lagabreytingu til og ég tel visst svigrúm fyrir Seðla- bankann, ef hann svo kýs, til að meta stöðuna sjálfstætt og breyta sínum markmiðum.“ - shá Steingrímur J. Sigfússon Dulinn tilgang- ur með skrifum EFNAHAGSMÁL Arnór Sighvatsson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, segir að skilaboð Illuga Gunnars- sonar og Bjarna Benediktssonar, þingmanna Sjálfstæðisflokksins, í grein í Morgunblaðinu í gær skjóti skökku við. „Þá ekki síst í ljósi upplýsinga um vaxandi verðbólgu, að senda þá út skilaboð um að Seðlabankinn hverfi frá verð- bólgumarkmiðinu. Þetta eru mjög hættulegar hugmyndir.“ Bjarni Benediktsson og Illugi Gunnarsson, þingmenn Sjálfstæð- isflokksins, varpa fram þeirri spurningu í gær hvort í ljósi þeirr- ar áhættu sem steðjar að fjármála- kerfinu í landinu sé ekki nauðsyn- legt að ræða hvort Seðlabankinn eigi að bregðast við og breyta áherslum sínum. Bankinn víki tímabundið frá verðbólgumark- miði sínu því mjög brýnt sé að stýrivextir lækki. Þingmennirnir vara við fjármálakreppu þegar bankarnir þurfa að endurfjár- magna sig á komandi misserum. Þeir telja að við núverandi aðstæð- ur sé betra að taka áhættuna af verðbólgu en af kreppu í fjármála- kerfinu. Núverandi löggjöf veitir að þeirra mati svigrúm til aðgerða sem taka meira tillit til slíks stöð- ugleika, þótt það sé á kostnað verðbólgu og viðleitni bankans til að nálgast lögbundið verðbólgu- markmið. Illugi Gunnarsson segir að þeir Bjarni hafi ekki tölu í huga þegar rætt er um lækkun stýrivaxta enda taki þeir ekki afstöðu til þess hvort stýrivextir eigi að lækka. „Það sem við erum að segja er að áhersla bankans á fyrst og fremst að vera á fjármálastöðugleikann. Ég er þeirrar skoðunar að því fyrr sem við komumst í að lækka vexti því betra, því ekkert hagkerfi getur búið við þennan stórfellda vaxta- mun til lengdar.“ Arnór segir að verið sé að ræða um fjármögnunarvanda banka- kerfisins. „Hann leysist ekki með fimm punkta lækkun eða eins pró- sents lækkun. Það þarf miklu meira til ef leysa á þann vanda með vaxtalækkun.“ Arnór telur að lækka þurfi stýrivexti úr 13,75 prósentum niður í allt að sjö prósent. Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins, segir jákvætt að fá umræðu um það hvernig Seðlabankinn getur komið inn í að lækka vexti. „Vaxtastefna Seðlabankans er í sjálfheldu. Þetta er orðið þannig að vextir bankans eru okkur stór- kostlegur fjötur um fót. Vaxta- hækkanir hafa ekki unnið gegn verðbólgu og vaxtalækkanir munu held ég ekki magna hana neitt held- ur. Gengið sveiflast þrátt fyrir vaxtahækkanir.“ Vilhjálmur segir að um trúverðugleikavanda sé að ræða hjá Seðlabankanum. „Þegar vel gengur þá talar bankinn um þenslu og verðbólgu þess vegna. Þegar illa gengur talar bankinn um gengisfellingu, launaskrið og verð- bólgu af þeim ástæðum. Það er sama hvernig gengur í efnahagslíf- inu. Bankinn sér aldrei ástæðu til að lækka vexti.“ svavar@frettabladid.is Telur hættulegt að hverfa frá verðbólgumarkmiði Aðalhagfræðingur Seðlabankans undrast skilaboð um að hverfa eigi frá verðbólgumarkmiði í ljósi vaxandi verðbólgu. Tveir þingmenn Sjálfstæðisflokksins telja áhættu af verðbólgu minni en af fjármálakreppu. VILHJÁLMUR EGILSSON ARNÓR SIGHVATSSON SEÐLABANKI ÍSLANDS Aðalhagfræðingur Seðlabankans segir hugmyndir um að hverfa frá verðbólgumarkmiði hættulegar á þess- um tímapunkti. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA EFNAHAGSMÁL Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, segir mikla erfiðleika blasa við þjóðinni og til greina komi að breyta áhersl- um Seðlabank- ans tímabundið. „Við höfum bent á þetta og rætt um mikilvægi þess að ríkis- stjórnin, Seðla- bankinn, fjármálafyrirtæki og atvinnulífið móti þjóðarsátt og vinni saman við þessar erfiðu aðstæður. Ég tek þó ekki undir það að bankarnir fái Íbúðarlánasjóð sem hráefni. Ég minni á að efna- hagsstefnan er ríkisstjórnarinnar og Seðlabankinn hefur tiltölulega fábrotin tæki.“ - shá Guðni Ágústsson: Aðstæður kalla á þjóðarsátt DÓMSMÁL Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi og svipt ökuleyfi í eitt ár í þvagleggsmál- inu svokallaða. Hún var fundin sek um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og að hafa hótað lögreglu- mönnum auk þess að hrækja framan í einn þeirra. Atvikið átti sér stað í mars á síð- asta ári þegar lögregluþjónar komu að konunni undir stýri eftir að hún hafði ekið út af veginum við Þingborg. Vegna gruns um áfengisdrykkju var konan flutt á lögreglustöðina á Selfossi. Þar var meðal annars tekið úr henni þvag- sýni með þvaglegg án hennar samþykkis. Reyndist töluvert magn af alkóhóli í blóði konunnar. Fyrir dómi sagðist konan hafa drukkið tvö rauðvínsglös tveimur tímum áður en hún settist undir stýri. Síðan hafi vegfarandi gefið henni áfengi að drekka eftir að hún ók út af. Annað muni hún ekki af vettvangi slyssins. Aðspurð neitaði konan að hafa haft í hótunum við lögreglumenn og að hafa hrækt framan í einn þeirra, en mundi að öðru leyti ekki eftir atvikunum. Hún var sakfelld fyrir þá liði ákærunnar út frá vitnisburði lögreglu- og sjúkra- flutningamanna. Konan var auk þess látin greiða 160 þúsund króna sekt til ríkis- sjóðs og allan sakarkostnað, um 350 þúsund krónur. - sþs Fékk þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi og var svipt ökuleyfi í eitt ár: Kona dæmd í þvagleggsmáli Í DÓMSSAL Konan ásamt verjanda sínum, Jóni Egilssyni, við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Suðurlands fyrr í þessum mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ORKUMÁL Sultartangastöð í Skeiða- og Gnúpverjahreppi í Árnessýslu er farin að framleiða rafmagn á ný eftir tveggja mán- aða stopp. Í lok síðasta árs biluðu báðir spennar stöðvarinnar með skömmu millibili en gert var við annan þeirra skömmu fyrir helgi og er stöðin farin að framleiða rafmagn á hálfum afköstum. Að sögn Þorsteins Hilmarsson- ar, upplýsingafulltrúa Lands- virkjunar, urðu almennir not- endur ekki varir við bilunina því nánast full afhending á ótryggðu rafmagni og afgangsorku var meðan spennarnir voru í lama- sessi. Hinn spennirinn verður líklegast kominn í lag í apríl. - jse Sultartangastöð: Framleiðir á ný

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.