Fréttablaðið - 27.02.2008, Blaðsíða 50
30 27. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Tveir af þremur nýliðum
í Landsbankadeild karla eiga ekki
löglegan keppnisvöll samkvæmt
leyfiskerfi KSÍ en leita nú allra
leiða í samvinnu við KSÍ og
Reykjavíkurborg til að búa þannig
um hnútana að þeir geti spilað á
sínum völlum.
Þróttur hefur spilað á aðalleik-
vangi Laugardalsvallar undanfar-
in ár en vill nú spila á Valbjarnar-
velli þar sem liðið hefur spilað í 1.
deildinni. Fjölnir er hinsvegar
komið upp í úrvalsdeild karla í
fyrsta sinn og vill halda áfram að
spila heimaleiki sína á grasvellin-
um í Grafarvoginum.
Þróttarar hafa ekki góða
reynslu af því að spila á Laugar-
dalsvellinum. „Það er gríðarlega
mikið undir fyrir félag eins og
Þrótt að spila í efstu deild. Ef við
getum fengið fleiri stig út á
stemmninguna á Valbjarnarvelli
þá er það virkilega þess virði að
setja allt á fullt til þess að geta
spilað þar. Við höfum fallið úr
deildinni síðustu þrjú skipti sem
við höfum spilað á aðalvellinum,“
segir Ásmundur Vilhelmsson,
framkvæmdastjóri Þróttar. „Þetta
er meiri heimavöllur. Það er meiri
stemmning þarna og meiri nálægð
milli leikmanna og áhorfenda,“
segir Ásmundur en völlurinn er
ekki löglegur eins og staðan er í
dag.
„Þetta er bara í ákveðnu ferli í
samvinnu við KSÍ og Reykjavík-
urborg. Við erum bara að reyna
verða okkur út um það sem vantar
til þess að uppfylla leyfið. Það er
ekki alveg komið á hreint hvað
það þurfa að koma mörg sæti í
stúkuna sjálfa. Það verða að vera
ákveðið mörg sæti og í dag erum
við bara með gömlu trébekkina í
stúkunni og það dugar ekki sam-
kvæmt leyfiskerfi KSÍ,“ segir
Ásmundur. Fjölnismenn þurfa
einnig að finna stað fyrir sæti á
sínum velli.
„Við höfum haft mestar áhyggj-
ur af heimavellinum okkar og
þetta er aðallega spurning um
sætafjöldann. Við þurfum að koma
upp einhverri bráðabirgðaaðstöðu
með einhverjum sætum. Það er
spurning hversu mörg þau verða
og hvort 400 til 500 sæti muni
duga. Við vonumst til þess að spila
okkar heimaleiki á Fjölnisvellin-
um. Það er alveg ljóst að við upp-
fyllum ekki skilyrði leyfiskerfis-
ins í dag,“ segir Ásgeir Heimir
Guðmundsson, formaður Fjölnis,
og bætir við:
„Borgin og KSÍ eru að henda
einhverju sín á milli og við höfum
lent á milli eins og Þróttur. Það
kom fram á KSÍ-þinginu að það sé
fullur skilningur á okkar stöðu,“
segir Ásgeir Heimir.
Það eru ekki góðar aðstæður
fyrir áhorfendur á Fjölnisvellin-
um og völlurinn fær risapróf strax
í fyrsta leik þegar stórlið KR
kemur í heimsókn. „Fyrsti heima-
leikurinn er á móti KR, við erum
að vonast til þess að sjálfur völlur-
inn verði orðinn sæmilegur og svo
þurfum við að koma öllum þessum
KR-ingum fyrir,“ segir Ásgeir
Heimir í léttum tón.
Vandamálið við Valbjarnarvöll-
inn hefur einnig verið sjálfur leik-
völlurinn sem hefur verið ósléttur
og illa farinn. Þróttarar brugðust
hinsvegar við því strax síðasta
haust.
„Það var farið í að laga sjálfan
völlinn strax og tímabilið var búið.
Við fórum í að gera við grasið og
verstu svæðin voru tekin upp. Við
erum bjartsýnir á að grasið verði
mjög gott í sumar,“ segir
Ásmundur.
Bæði félög eru með stærri plön
upp á borðinu því Fjölnismenn
ætla að ráðast í byggingu stúku og
framtíðarvöllur Þróttara er þar
sem gervigrasið í Laugardal er í
dag. Þau plön breyta þó engu með
vandamál liðanna í dag, nú þegar
aðeins rúmir tveir mánuðir eru í
fyrsta leik í Landsbankadeild
karla. Það er þó ekki annað að
heyra en að bæði félög ætli að
finna leiðir til þess að leika heima-
leikina á sínum velli næsta sumar.
ooj@frettabladid.is
Vantar pláss fyrir KR-ingana
Nýliðar Þróttar og Fjölnis leita nú allra leiða til þess að spila heimaleiki sína á
Valbjarnarvelli og Fjölnisvelli en hvorugur þeirra uppfyllir leyfiskerfi KSÍ.
NOKKRIR UPP Á HÓL Fjölnisliðið þakkar áhorfendum stuðninginn eftir að þeir höfðu tryggt félaginu sæti í efstu deild í fyrsta sinn.
Eins og sést er áhorfendaaðstaðan ekki góð við Fjölnisvöllinn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Knattspyrnusamband Íslands stendur nú fyrir átaki til þess
að fjölga konum í dómarastéttinni og því var haldið sérstakt
dómaranámskeið eingöngu ætlað konum undir leiðsögn
reynsluboltans Gylfa Orrasonar um síðustu helgi.
„Það er að mínu mati löngu tímabært að fá konurnar til
þess að taka einnig þátt í þessum hluta knattspyrnunnar,
að vera dómarar, en ekki bara sem þjálfarar og leikmenn.
Hingað til hefur ef til vill vantað fyrirmyndir fyrir stelpur til
þess að þær fari út í að gerast dómarar og við vonumst
til að bæta úr því sem fyrst,“ sagði Gylfi Orrason sem var
ánægður með hvernig til tókst um síðustu helgi.
„Mér fannst námskeiðið takast vel til og það var
greinilega mikill áhugi fyrir hendi hjá þeim stelpum sem
mættu. Þær fengu í hendurnar nýtt námsefni á vegum
Alþjóða knattspyrnusambandsins, FIFA, sem var greinlega
að hitta í mark og snéri vel að því verkefni sem við erum
með í gangi núna. Við munum svo halda áfram með
þennan hóp og stefnan er að mynda ákveðinn kjarna
sem mun dæma saman strax næsta sumar. Magnús
Jónsson, dómarastjóri KSÍ, hefur lagt mikla áherslu á að kýla þetta
verkefni í gegn og hann mun sjá til þess að þær fái verkefni í
næstefstu deild kvenna til að byrja með,“ sagði Gylfi sem kvað
það undir stelpunum sjálfum komið hversu langt þær geti svo
náð í framhaldinu.
„Við ætlum að vera þeim innan handar og aðstoða þær
og fylgjast vel með þeim dæma til að byrja með og svo
er framhaldið í raun í þeirra höndum. Ef þær eru nógu
ákveðnar og tilbúnar að leggja alla vinnuna á sig, þá geta
hlutirnir gerst tiltölulega hratt fyrir sig. Þær gætu fljótt
verið farnar að dæma í efstu deild og svo í framhaldinu
gætu þær aflað sér réttinda til þess að dæma erlendis,
sem er náttúrulega skemmtileg gulrót fyrir þá sem taka
dómarastarfið sér fyrir hendur. Knattspyrnusamband
Evrópu, UEFA, hefur stefnt að því að alþjóðlegir leikir í
kvennaknattspyrnu séu dæmdir af konum og þar skortir
ekki gæði heldur fjölda dómara. Að mínu mati eru bestu
kvendómararnir frá Norðurlöndum og ég sé ekki af hverju
Ísland gæti ekki náð sama stalli í framtíðinni,“ sagði Gylfi.
GYLFI ORRASON, FYRRVERANDI DÓMARI: VAR TIL LEIÐSAGNAR Á SÉRSTÖKU DÓMARANÁMSKEIÐI FYRIR KVENDÓMARA
Orðið löngu tímabært að konur láti til sín taka
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen
hefur ekki verið í náðinni hjá
Frank Rijkaard, þjálfara Barce-
lona, upp á síðkastið og það er liðn-
ir átta leikir og rúmar fimm vikur
síðan hann var síðast í byrjunalið-
inu hjá Börsungum í 1-0 sigurleik
á Racing í deildinni 20. janúar.
Síðan hefur hann aðeins fengið
að koma inn á sem varamaður
fjórum sinnum og í raun aðeins
spilað 54 af síðustu 720 mínútum í
boði. Það gerir aðeins 7,5 prósent
leiktímans. Barcelona mætir
Valencia í kvöld í fyrri leik lið-
anna í spænska bikarnum
og getur leikið sinn fimmt-
ánda leik í röð án taps.
Eiður Smári fékk
mikið af tæki-
færum frá
miðjum nóvem-
ber fram til 20.
janúar. Hann
var þá 11 sinn-
um í byrjunar-
liðinu í 14 leikj-
um og fékk að
spreyta sig í
samtals 747 mín-
útur af 1.260 í
boði eða 59,3 pró-
sent leiktímans.
Þegar farið yfir hvaða leikmenn
hafa fengið að spila í þessum und-
anförnum átta leikjum kemur í
ljós að Eiður Smári er langneðstur
og það þótt menn eins og Samuel
Eto´o hafi verið í burtu vegna Afr-
íkukeppninnar mestan hluta þessa
tíma.
Undrabarnið Lionel Messi hefur
spilað mest eða í 633 mínútur eða
þremur mínútum lengur en Andr-
és Iniesta. Ungu strákarnir Bojan
Krkic (248 mín. lengur en Eiður)
og Giovani Dos Santos (200 mín.
lengur en Eiður) fá miklu
meira að spreyta sig en
okkar maður sem
hefur þó verið í
hópnum í sjö af
þessum átta
leikjum. - óój
SPILATÍMI Í SÍÐUSTU
8 LEIKJUM BARCELONA:
(Byrjunarliðsleikir í sviga)
Lionel Messi 633 mínútur (7)
Andrés Iniesta 630 (7)
Thierry Henry 546 (7)
Deco 506 (6)
Xavi 479 (5)
Bojan Krkic 302 (3)
Ronaldinho 257 (2)
Giovani Dos Santos 254 (3)
Rafael Márquez 248 (3)
Touré Yaya 213 (2)
Edmílson 130 (2)
Samuel Eto´o 107 (1)
Eiður Smári Guðjohnsen 54 (0)
Eiður Smári Guðjohnsen í síðustu leikjum Barcelona:
Settur út í kuldann
SVEKKTUR Eiður
Smári Guðjohnsen
hefur verið mikið á
bekknum.
NORDICPHOTOS/GETTY
> Ekkert heyrt frá Guðmundi
Nokkur nöfn hafa verið nefnd til sögunnar í sambandi við
hugsanlegan aðstoðarmann Guðmundar Guðmundssonar,
nýráðins landsliðsþjálfara í handbolta. Aron Kristjánsson,
Patrekur Jóhannesson og Óskar Bjarni Óskarsson eru þar
á meðal en enginn þeirra hafði talað við Guðmund þegar
Fréttablaðið heyrði í þeim í gær. „Ég get staðfest að engar
viðræður hafa átt sér stað og ég er núna bara með hug-
ann við úrslitaleikinn í bikarnum,“
sagði Óskar Bjarni en kvaðst vera
til í að skoða málið ef til hans yrði
leitað. „Það yrði heiður að aðstoða
landsliðið og ég myndi íhuga boðið
vel ef til þess kæmi. Það eru annars
margir til kallaðir og ég er viss um
að Guðmundur finnur á endanum
góðan mann sér við hlið.“
575 1221
Renault Kerax
420.40 8x4
Ekinn 31.000 km.
Tilboðsverð:
8.500.000
án vsk.
Renault Mascott
130.65
Ekinn 130.000 km.
Tilboðsverð:
1.390.000
án vsk.
M.B. Atego
815
Ekinn 151.355 km.
Tilboðsverð:
1.950.000
án vsk.
Stórir og sterkir
á tilboði
KÖRFUBOLTI KR vann mikilvægan
þriggja stiga sigur, 70-73, á Val í
Iceland Express-deild kvenna í
Vodafone-höllinni í gær og eru
nýliðarnir úr Vesturbænum
ennþá í baráttunni um deildar-
meistaratitilinn.
KR var með örugga forustu
framan af leik, komst í 8-21 og
var 26-37 yfir í hálfleik. Vals-
stúlkur unnu sig hægt og bítandi
inn í leikinn og þriggja stiga skot
Molly Peterman rúllaði upp úr
um leið og lokaflautið gall. Cand-
ace Futrell skoraði 13 af 27 stig-
um sínum í fjórða leikhlutanum
og hélt KR á floti með því að
setja mörg ótrúleg sirkusskot
niður á lokasprettinum. Hildur
Sigurðardóttir átti einnig mjög
góðan leik í liði KR og var með
18 stig, 11 fráköst og 9 stoðsend-
ingar. Hjá Val skoraði Molly 26
stig og Signý Hermannsdóttir
var með 21 stig og 10 fráköst.
Hanna B. Kjartansdóttir sneri
aftur í boltann eftir barnsburð-
arhlé og var með 6 stig og 8 stoð-
sendingar á 18 mínútum.
- óój
KR vann Val 70-73 í Iceland Express-deild kvenna í Vodafone-höllinni í gær:
Mikilvægur sigur KR-kvenna