Fréttablaðið - 27.02.2008, Blaðsíða 12
12 27. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
BER SIG EFTIR BJÖRGINNI Hvítrúss-
neski leigubílstjórinn Leonio Kulakov
er ekki sýklahræddur maður eins og
sést berlega þegar hann leyfir þresti
að tína upp fæðu af tungu sinni í
miðbæ Mínsk, höfuðborgar Hvíta-
Rússlands.
NORDICPHOTOS/AFP
SPÁNN, AP Skoðanakannanir bentu
í gær til þess að Jose Luis
Rodriguez Zapatero forsætisráð-
herra hefði staðið sig lítillega
betur en áskorandi hans úr her-
búðum íhaldsmanna, Mariano
Rajoy, í sjónvarpskappræðum
kvöldið áður. Þetta voru fyrstu
slíku kappræðurnar sem keppi-
nautarnir háðu í aðdraganda
þingkosninganna 9. mars.
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unar sem gerð var fyrir dagblað-
ið El País sögðust 46 prósent
aðspurðra telja Zapatero hafa
haft betur en 42 prósent töldu
Rajoy hafa gert það. Tólf prósent
töldu að um jafntefli hefði verið
að ræða. Aðrar kannanir skiluðu
mjög svipuðum niðurstöðum.
Sósíalistar, sem Zapatero fer
fyrir, hafa líka naumt forskot á
íhaldsmenn í nýjustu könnunum
á fylgi flokkanna.
Í kappræðunum áttu keppinaut-
arnir heitar umræður um efna-
hagsmál, aðskilnaðarhyggju
Baska og innflytjendamál. Þeir
gripu oft hvor fram í fyrir öðrum
og hitnaði stundum í hamsi.
Slíkar kappræður oddvita
beggja stjórnmálafylkinga hafa
ekki farið fram á Spáni síðan
fyrir fimmtán árum. Áformað er
að endurtaka leikinn 3. mars, sex
dögum fyrir kosningar. - aa
KEPPINAUTAR Zapatero og Rajoy takast
í hendur að kappræðustjórnandanum
Manuel Campo Vidal áhorfandi í sjón-
varpssal í Madríd í fyrrakvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Fyrstu sjónvarpskappræður oddvita beggja stjórnmálafylkinga á Spáni:
Telja Zapatero hafa haft betur
TÆKNI Fyrsta farþegavélin sem
notar vistvænt eldsneyti lenti í
Amsterdam síðustu helgi. Vélin
er að gerðinni Boeing 747 frá
breska flugfélaginu Virgin og var
flogið Heathrow-flugvellinum í
Lundúnum.
Einn af fjórum hreyflum
vélarinnar er knúinn með
vist vænu eldsneyti og er að sögn
talsmanna flugfélagsins unnið úr
brasilískum babassuhnetum og
kókóshnetum. Richard Branson,
forstjóri Virgin, var eini farþegi
ferðarinnar.
Talsmenn flugfélagsins segja
ferðina tímamót í nýtingu á
umhverfisvænu eldsneyti. - rh
Flýgur á vistvænu eldsneyti:
Flaug frá Lond-
on á hnetuolíu
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
-
9
0
8
0
2
9
8
Aseta ehf.
Tunguhálsi 19
110 Reykjavík
Sími 533 1600
aseta@aseta.is
WACKER hágæðabrotvélar og víbratorar
fyrir alvöruiðnaðarmenn
RV Unique örtrefjaræstikerfið
- hagkvæmt, vistvænt og mannvænt
Nánari upplýsingar
veita sölumenn og ráðgjafar RV
Bodil Fur,
sölumaður hjá
RV Unique í Danmörku
UniFlex II H Fiber ræstivagn
RV
U
N
IQ
U
E
02
08
02
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
SAMFÉLAGSMÁL Hjálpræðisherinn
hlaut Samfélagsverðlaun Frétta-
blaðsins í gær. Forseti Íslands,
Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti
verðlaunin við hátíðlega athöfn í
Þjóðmenningarhúsinu við Hverfis-
götu. Auk verðlaunagrips hlutu
samtökin eina milljón króna í
verðlaunafé.
„Hjá Hjálpræðishernum er
engum úthýst,“ sagði Steinunn
Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri
Fréttablaðsins og formaður dóm-
nefndarinnar. „Hann hefur starf-
að hér á landi í meira en hundrað
ár. Kærleikur knýr starfsemina
áfram og hefur starf hersins iðu-
lega beinst að þeim sem minnst
mega sín í samfélaginu.“
Auk Hjálpræðishersins voru
Saman-hópurinn, ABC-hjálpar-
starf, Lögfræðiaðstoð Orators og
BAS-hópurinn tilnefnd til Samfé-
lagsverðlaunanna. Verðlaunin eru
veitt félagasamtökum sem hafa
unnið framúrskarandi mannúðar-
eða náttúruverndarstarf og lagt
sitt af mörkum til að gera íslenskt
samfélag betra fyrir okkur öll.
Verðlaun voru veitt í fjórum
öðrum flokkum í gær: Hvunndags-
hetjan, Frá kynslóð til kynslóðar,
Til atlögu gegn fordómum og
heiðurs verðlaun.
Hvunndagshetjan var valin
Ragna Marinósdóttir, sem hefur
nýtt reynslu sína af umönnun fatl-
aðra sona sinna til hagsbóta öðrum
foreldrum fatlaðra barna. Í flokkn-
um Frá kynslóð til kynslóðar hlutu
hjónin Þorsteinn Bjarni Einarsson
og Sigríður Steingrímsdóttir verð-
launin, en þau tóku börn í skamm-
tímavist á heimili sínu í átján ár.
Í verðlaunaflokknum Til atlögu
gegn fordómum var tónlistarmað-
urinn Hörður Torfason verðlaun-
aður. „Það framlag hans að ganga
á sínum tíma fram fyrir skjöldu
sem samkynhneigður markaði
djúp spor á Íslandi, spor sem
aldrei mun fenna í,“ sagði Steinunn
við afhendinguna.
Að lokum hlaut Guðrún Hall-
dórsdóttir, fyrrverandi skólastjóri
Námsflokka Reykjavíkur, heið-
ursverðlaun. Þau eru veitt ein-
staklingi sem hefur helgað líf sitt
því verkefni að bæta samfélagið.
Guðrún var heiðruð fyrir framlag
sitt til menntunar ungmenna og
fullorðinna sem hafa staðið höllum
fæti í skólakerfinu.
Í dómnefnd voru, auk Steinunnar,
Reynir Ingibjartsson, formaður
Aðstandendafélags aldraðra, Gísli
Marteinn Baldursson borgarfull-
trúi, Hildur Petersen, stjórnarfor-
maður SPRON, og Svanfríður
Jónasdóttir, bæjarstjóri á Dalvík.
salvar@frettabladid.is
Hermenn
kærleikans
verðlaunaðir
Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins voru veitt í Þjóð-
menningarhúsinu í gær. Þau komu í hlut Hjálpræð-
ishersins fyrir meira en hundrað ára kærleiksknúið
starf hérlendis í þágu þeirra sem minnst mega sín.
VERÐLAUNIN VEITT Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði starf Hjálpræðis-
hersins vera ríkan þátt í skilningi Íslendinga á því hvað sé að vera hinn miskunnar-
sami Samverji. Í bakgrunni eru þeir sem tilnefndir voru til Samfélagsverðlaunanna.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kærleikur knýr starfsem-
ina áfram og hefur starf
hersins iðulega beinst að þeim
sem minnst mega sín í samfélag-
inu.“
STEINUNN STEFÁNSDÓTTIR
AÐSTOÐARRITSTJÓRI FRÉTTABLAÐSINS