Fréttablaðið - 27.02.2008, Síða 8
8 27. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
1 Hvaða bankastjóri lækkaði
laun sín um helming?
2 Hvað heitir dávaldur söngv-
arans Friðriks Ómars?
3 Hvort sýnir könnun Frétta-
blaðsins að 55 prósent séu með
eða á móti aðildarumsókn
Íslands að Evrópusambandinu?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
EXISTA hf. ı Ármúla 3 ı 108 Reykjavík ı Sími 550 8600 www.exista.com
AÐALFUNDUR EXISTA HF.
28. FEBRÚAR 2008
Aðalfundur Exista hf. verður haldinn fimmtudaginn 28. febrúar 2008
á Hilton Reykjavík Nordica að Suðurlandsbraut 2 og hefst fundurinn kl. 17:00
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins árið 2007.
2. Ársreikningur félagsins fyrir árið 2007 ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.
3. Ákvörðun um ráðstöfun hagnaðar vegna ársins 2007.
4. Kosning stjórnar.
5. Kosning endurskoðunarfélags.
6. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
7. Tillaga stjórnar um að samþykkja starfskjarastefnu Exista hf.
8. Tillaga um að samþykkja heimild stjórnar til þess að breyta og gefa út hlutafé í evrum.
9. Tillögur til breytinga á samþykktum Exista hf.:
a. Breyting á 2. mgr. 4. gr. um heimild stjórnar til að hækka hlutafé félagsins um allt að 7.000.000.000 kr. að nafnverði
eða samsvarandi fjárhæð í evrum með útgáfu nýrra hluta.
b. Breyting á 1. mgr. 7. gr. um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum.
10. Önnur mál.
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis. Ennfremur er hægt að
nálgast fundargögn á vefsíðu félagsins www.exista.com.
Aðalfundur Exista mun fara fram á ensku. Boðið verður upp á túlkun á íslensku.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á aðalfundardaginn frá kl. 16:00 á fundarstað að Hilton Reykjavík Nordica.
STJÓRNMÁL „Í fyrsta lagi hefur þróunin síðustu
misserin í þessum viðhorfsmælingum heldur
verið í þá átt að sífellt fleiri hafa stutt það að látið
verði reyna á aðildarumsókn,“ segir Björgvin E.
Sigurðsson viðskiptaráðherra um skoðanakönn-
un Fréttablaðsins, en samkvæmt henni eru 55
prósent landsmanna hlynnt því að sækja um
aðild að ESB.
„En svo hefur ólgan á erlendum fjármála-
mörkuðum og óróinn í efnahagslífinu hér undir-
strikað fyrir mörgum mikilvægi þess að skoða
þessi mál í alvöru. Ég held að það endurspeglist í
þessari könnun að bæði almenningur og atvinnu-
rekendur telja að spurningin um þetta sé
aðkallandi.“
Slæmt að sækja um og sjá til
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, lítur málið öðrum augum. „Ég tel þetta
meðal annars sýna það að nokkuð eimi eftir enn
af þeim málflutningi að Ísland ætti að sækja um
til að prófa og sjá hvað okkur býðst. En þetta tel
ég vera mikinn misskilning því í meginatriðum
liggur það alveg fyrir hvað fylgir aðild að Evr-
ópusambandinu og það hefur margoft komið
fram að samningssvigrúmið er ósköp lítið,“ segir
hann.
Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins, tekur í sama streng. „Það er ekk-
ert bjart fram undan,“ segir hann. „Við fórum í
gegnum niðurskurð í þorski, ekkert ætlar að
verða úr loðnuvertíðinni, bankakerfið er í hálf-
gerðum lamasessi og menn fá ekki lán nema á
einhverjum ofurvöxtum og svo erum við að horfa
upp á verulegan samdrátt á byggingamarkaði.
Það vill brenna við þegar þrengir að, eins og nú,
að menn vilji stökkva á næstu patentlausn enda
er umræðan á slíku stigi hér á landi.“ Hann segir
ennfremur að Frjálslyndi flokkurinn sé á móti
aðild á meðan fiskveiðistjórnunarkerfið er
óbreytt. „Eins og það er núna
myndi aðild þýða að erlendir
útgerðarmenn gætu keypt
auðlindina af okkur og við
sættum okkur ekki við það.“
Umræðan orðin jákvæðari
„Ég tel að umræðan um þreng-
ingar í okkar mikilvæga hag-
kerfi hafi mikil áhrif á afstöðu
fólks,“ segir Hannes G.
Sigurðs son, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins.
Hann segir enn fremur að
afstaða samtakanna gagnvart
upptöku evrunnar og aðild að
ESB sé óbreytt. „Þetta er til
umfjöllunar hjá okkar aðild-
arfélögum og við sem heildar-
samtök höfum ekki neina
heildarafstöðu en það er þó
mikilvægt að fólk átti sig á að
hvorugt leysir þann bráða-
vanda sem við stöndum frammi fyrir,“ segir
hann.
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ,
segir það ekki koma á óvart að fólk sé jákvæðara
gagnvart ESB nú. „Í ljósi þess óróleika sem verið
hefur í efnahagsmálum og svo þeirrar umræðu
um Evrópusambandið og evruvæðingu sem
hefur verið mun jákvæðari nú en oft áður þá
kemur þetta ekki á óvart.“
jse@frettabladid.is
Efnahagsþrengingar auka
stuðning við aðild að ESB
Stjórnmálamenn og verkalýðsleiðtogar eru sammála um að þrengingar í efnahagslífinu auki á stuðning
við aðild að ESB. Skoðanakönnun Fréttablaðsins sýnir að um 55 prósent eru hlynnt því að Ísland sæki um.
GYLFI
ARNBJÖRNSSON
BJÖRGVIN E.
SIGURÐSSON
X VIÐ EVRÓPUSAMBANDIÐ Svo virðist sem
Íslendingar séu í auknum mæli jákvæðir fyrir
því að setja X við Evrópusambandið. Þetta X
er hins vegar komið frá þotum sem svifu yfir
höfuðstöðvum sambandsins í Brussel.
AFGANISTAN Danskur hermaður
lést vegna voðaskots í Afganistan
um síðustu helgi. Slysið varð við
Bastion-búðirnar í Helmand-
héraði í suðurhluta landsins.
Slysið varð þegar hermenn í
búðunum voru að taka sig til fyrir
æfingu í hæðunum við búðirnar.
Hermaðurinn, sem var 21 árs,
komst strax undir læknishendur
en ekki tókst að bjarga lífi hans.
Ekki er vitað með vissu að svo
stöddu hvað gerðist en rannsókn
hófst tafarlaust á því hvernig
slysið bar að. - þo
Slysaskot á æfingu:
Dani lét lífið í
Afganistan
SERBÍA, AP Dmítrí Medvedev,
varaforsætisráðherra Rússlands
sem fastlega er gert ráð fyrir að
verði kjörinn eftirmaður Vladi-
mírs Pútín forseta, undirritaði í
Belgrad á mánudag samninga um
lagningu gasleiðslu fyrir rúss-
neskt jarðgas um Serbíu til
Vestur-Evrópu. Samningarnir
þykja endurspegla nánari tengsl
Rússlands og Serbíu, en Rússar
standa heilshugar að baki Serbum
í höfnun þeirra á sjálfstæði
Kosovo.
Medvedev lét hafa eftir sér að
gasleiðslusamningarnir og tengdir
samningar myndu „mynda
grunninn að orkustöðugleika í allri
Evrópu í framtíðinni“. - aa
Medvedev í Belgrad:
Samið um efna-
hagssamstarf
BANDAMENN Serbneski forsætisráðherr-
ann Vojislav Kostunica, t.h., heilsar gest-
inum frá Moskvu í Belgrad. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL „Mér sýnist að
stuðningur við aðildarumsókn hjá
Evrópusambandinu sveiflist
svolítið eftir ástandi í efnahagslíf-
inu,“ segir Bjarni Benediktsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks, um
niðurstöður skoðanakönnunar
Fréttablaðsins en þar mælist
stuðningur við aðildarumsókn 55
prósent.
Stuðningur við aðildarumsókn
mældist nú um 40 prósent meðal
sjálfstæðismanna sem er 12
prósentustigum meira en í
könnuninni í september. Aðspurð-
ur hvort forystan þyrfti að
endurskoða þá stefnu segir Bjarni:
„Við sjálfstæðismenn höfum
aldrei útilokað að við gætum
einhvern tímann séð hagsmunum
okkar betur borgið innan ESB en í
dag teljum við að við njótum alla
helstu kostanna í EES.“ - jse
Bjarni Benediktsson:
Njótum kost-
anna í EES
VEISTU SVARIÐ?