Fréttablaðið - 27.02.2008, Blaðsíða 20
[ ]Eldsneyti hefur aldrei verið jafn dýrt. Drýgja má bens-índropann með sparakstri svo sem að aka á jöfnum hraða og sleppa því að spóla af stað á ljósum.
Lögreglustjóri gefur út stæð-
iskort sem heimila notkun á
bílastæði fyrir fatlaða.
Umsókn um stæðiskort þarf að
fylgja læknisvottorð og þær upp-
lýsingar fengust hjá Heiðu Gests-
dóttur lögfræðingi að ákvörðun
um veitingu þess væri byggð á
umsögn læknis. Skilyrði fyrir
útgáfu kortsins er að umsækjandi
hafi sérstaka þörf á ívilnun til að
leggja ökutæki í sérmerkt stæði
hvort heldur sem ökumaður eða
farþegi, geti ekki gengið eða eigi
mjög erfitt með að hreyfa sig.
Kortin eru gefin út í tiltekinn
tíma, að hámarki fimm
ár en ekki skemur en
tvö ár, þó er hægt er
að gefa út tímabund-
in kort í skemmri
tíma ef þörf er á.
Þegar ökutæki er
lagt í stæði skal kort-
inu komið fyrir innan
við framrúðu þannig að
framhlið þess sjáist vel að utan
og er lögreglumanni heimilt að
leggja hald á stæðiskort leiki
grunur á misnotkun. Lög-
reglustjóri getur afturkall-
að kortið sé það misnotað.
Synjun á umsókn um
stæðiskort er hægt að
skjóta til úrskurðarnefnd-
ar sem skipuð er einum
fulltrúa tilnefndum af
ríkislögreglustjóra, full-
trúa tilnefndum af
Sjálfsbjörgu landssambandi
fatlaðra og fulltrúa tilnefndum
af landlækni.
Sjá reglugerð um útgáfu og
notkun stæðiskorta fyrir
hreyfihamlaða, nr. 369/2000
www.reglugerd.is
Viðurlög við að leggja í
stæði merkt fötluðum án
þess að hafa stæðiskort er
líkt og fyrir almennt
stöðubrot eða 2.500
krónur.
Hægt er að fá sérmerkt stæði
fyrir utan einkaheimili og er þá
sótt um til Þjónustumiðstöðvar
Laugardals og Háaleitis og skal
skila inn læknisvottorði. Nefnd
metur umsóknina út frá læknis-
vottorði og getur veitt leyfi fyrir
merktu stæði til allt að fimm ára.
Umsækjandinn greiðir sjálfur
fyrir skilti en Reykjavíkurborg
sér um upppsetningu þess við
heimili umsækjanda.
heida@frettabladid.is
Bílastæðakort fatlaðra
Til þess að mega leggja í stæði merkt fötluðum þarf að vera með
sérstakt stæðiskort í bílnum.
Bremsuhlutir
í alla jeppa
og pickupa
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Diskar
Klossar
Dælur
Borðar
Ísetningarþjónusta
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
E
H
F
.