Fréttablaðið - 27.02.2008, Side 26
27. FEBRÚAR 2008 MIÐVIKUDAGUR8 ● fréttablaðið ● vetrarlíf
Rögnvaldur Eiríksson hefur mikið
ferðast um á fjórhjóli nú í vetur en
hann byrjaði í sportinu fyrir rúmu ári.
Áður var hann í rallíkrossi. Rögnvaldur
stundar sportið í félagi við syni sína,
föður og aðra vélhjólaáhugamenn.
„Faðir minn er 72 ára og strákarnir mínir
byrjuðu á æfingabrautunum tíu ára svo
þetta er fyrir fólk á öllum aldri,“ segir
Rögnvaldur en hann situr í stjórn Slóða-
vina sem er nýstofnað félag áhugamanna
um ferðamennsku og útivist á vélhjólum.
„Markmið félagsins er meðal annars að
auka þekkingu vélhjólafólks, almennings,
fjölmiðla og stjórnvalda á notkun vélhjóla
til ferðalaga og útivistar en það mun einnig
miðla upplýsingum um akstursleiðir,
standa fyrir ferðum og fræðslufundum,“
segir Rögnvaldur.
Hann segist aðallega fara í styttri dags-
ferðir yfir vetrartímann en hann notar hjól-
ið þó meira á veturna en á sumrin. „Við
förum gjarnan frá Bolöldusvæðinu, sem er
æfingasvæði vélhjólamanna við Litlu kaffi-
stofuna, og upp á Hellisheiði en þar liggja
vegslóðar inn eftir öllu. Síðan er líka vinsælt
að fara frá Þingvöllum, upp í Skjaldbreið og
niður Lyngdalsheiðina,“ segir Rögnvaldur.
Á sumrin segir hann menn fylgja vegum
og slóðunum í hvívetna en á veturna er líka
keyrt á snjónum. Fjórhjólin eru götuskráð
og þau má líka keyra á almennum vegum.
Rögnvaldur segir best að hjóla í harð-
fenni. „Við látum lausan snjó þó ekki aftra
okkur og erum stundum með skaflana upp
að mitti. Rögnvaldur tekur það fram að
mikil áhersla sé lögð á það að keyra ekki á
gróðursvæðum og að spæna ekkert upp.
Hann segir það reyna mikið á líkamann
að þeysast um á hjólunum. „Maður hristist
til og frá allan daginn og lendir í alls kyns
ævintýrum. Ég er með drif á öllum hjól-
um en faðir minn bara með að aftan sem er
miklu meira púl.“
Rögnvaldur segir það kosta sitt að koma
sér upp búnaði til að geta stundað sportið
að alvöru. Hjólin kosta frá 500.000 krón-
um og upp í tæpar tvær milljónir en síðan
verða menn að verða sér úti um fullkominn
hlífðarbúnað. „Það er nauðsynlegt að vera í
sérstökum, skóm, hjólagalla og með góðan
hjálm. Annað er alger óráðsía.“ - ve
Sport fyrir unga sem aldna
Sportinu geta fylgt mikil líkamleg átök.
Fjórhjólamenn á Lyngdalsheiði.
Erik Carlssen, faðir Rögnvaldar, sem er 72 ára, gefur hressilega í.
Rögnvaldur Eiríksson, sem situr í stjórn Slóðavina,
hefur stundað fjórhjólasportið í um eitt og hálft ár.
Skíðagöngufélagið Ullur er félagsskapur áhuga-
fólks um skíðagönguiðkun á höfuðborgarsvæðinu.
Félagsmenn ganga mikið í Bláfjöllum þar sem
öllum krökkum er boðið á æfingar á laugardögum.
Félagið var stofnað í júlí í fyrrasumar. Stofnfélagar voru
um fimmtíu og fyrir valinu varð nafnið Ullur sem er guð
skíðamanna samkvæmt Snorra-Eddu.
„Félagið var upphaflega stofnað í kringum fólk sem
hefur stundað almenningsgöngur. Til dæmis Vasagönguna í
Svíþjóð sem fer fram um þessar mundir. Það er lengsta al-
menningsganga í heimi og hefur verið farin síðan árið 1922.
Gangan er 90 kílómetra löng og er farin á milli tveggja
bæja sem nefnast Selen og Mora. Síðan eru í boði ýmsar
vegalengdir sem henta allri fjölskyldunni. Það er heil vika
sem fer í þennan viðburð og þó nokkrir félagsmenn frá
okkur sem taka þátt árlega,“ segir Anna Kristín Sigurp-
álsdóttir, varaformaður félagsins. Í dag eru félagar rúm-
lega áttatíu, sem flestir ganga sér til ánægju og heilsubótar.
Fæstir eiga keppnisferil að baki en þó keppa nokkrir félag-
ar endrum og eins.
„Markmiðið er að halda utan um skíðagönguiðkun á
höfuðborgarsvæðinu. Við tókum eftir hve stór hópur geng-
ur í Bláfjöllum og þá vaknaði sú hugmynd að stofna félagið.
Þennan hóp vantaði einhvers konar talsmann og nú beitum
við okkur fyrir því hvernig spor er best að leggja, veitum
upplýsingar og vinnum að því að koma upp aðstöðu,“ segir
Anna Kristín sem hóf skíðaiðkun fyrir tveimur árum.
Lítil hefð hefur verið fyrir skíðagönguiðkun á Íslandi.
Anna Kristín segir þó meiri hefð fyrir íþróttinni úti á landi
og nefnir Ísafjörð, Ólafsfjörð, Siglufjörð, Akureyri og
Strandir þar sem fólk er duglegra að leggja spor. „Starfs-
menn Bláfjalla hafa staðið sig gríðarlega vel upp á síð-
kastið. Þar hafa menn keppst við að hafa tilbúin spor frá
klukkan 17 á virkum dögum og frá kl. 10 um helgar þegar
veður leyfir,“ útskýrir Anna Kristín sem segir félagið í
miklu og góðu samstarfi við forsvarsmenn Bláfjalla. Hún
segir skíðagönguna mikið fjölskyldusport þar sem flestir
geta verið með. „Fjölskyldan getur gengið saman og mín
reynsla er sú að krakkar eru mjög fljótir að ná tækninni,“
segir Anna Kristín og bætir við að alla laugardaga séu
krakkaæfingar kl. 13 í Bláfjöllum, þegar veður leyfir, þar
sem allir séu velkomnir. Þar er þjálfari sem tekur á móti
krökkunum og til stendur að fara með hópinn á næstu
Andrésar Andar-leika sem fram fara á Akureyri í apríl.
Einnig tekur Anna Kristín fram að fólk geti gengið ann-
ars staðar en uppi í Bláfjöllum. „Skógræktin hefur verið
dugleg að leggja spor í Heiðmörk, þegar aðstæður leyfa.
Einnig hefur golfvöllurinn í Garðabæ líka lagt spor fyrir
okkur. Síðan er vel hægt að nota staði eins og Klambratún-
ið og Laugardalinn þó ekki séu lögð spor þar,“ segir Anna
Kristín og bendir á upplýsingar á heimasíðu félagsins.
Félagið stendur ekki fyrir reglulegum æfingum og til
stendur að halda námskeið fyrir byrjendur. Þau verða aug-
lýst á heimasíðu félagsins. Anna Kristín segir lítið um
leigu á skíðagönguútbúnaði og lýsir hér með eftir búnaði.
„Ef fólk á skíðagönguútbúnað, jafnvel bara stafi eða skó
sem það vill losna við, má það endilega hafa samband við
okkur. Síðan stendur til að koma upp lager í Bláfjöllum,“
segir Anna Kristín. Hún segir marga duglega við að ganga
eftir vinnu og nú er unnið að því að koma upp aðstöðu. „Við
erum að vinna að skipulagningu á svæðinu en einnig er
markmiðið að eignast aðstöðu einhvern tíma. Þar gæti fólk
fengið upplýsingar, leigt og smurt skíði og komist í kaffi,“
segir Anna Kristín. Allar nánari upplýsingar er að finna á
skidagongufelag.blog.is.
rh@frettabladid.is
Ullur er guð skíðamanna
Anna Kristín Sigurpálsdóttir notar hvert tækifæri til að skella sér á
gönguskíði í góðu veðri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA