Fréttablaðið - 27.02.2008, Qupperneq 42
22 27. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
ELIZABETH TAYLOR LEIKKONA
ER 76 ÁRA.
„Mér finnst allt
stressandi, nema leika í
bíómynd.“
Elizabeth Taylor er ein skær-
asta stjarna Hollywood fyrr
og síðar. Hún hefur kvænst
átta sinnum og hefur barist
ötullega gegn útbreiðslu al-
næmisveirunnar.
MERKISATBURÐIR
1927 Kolakrani er reistur í
Reykjavíkurhöfn. Hann var
þá talinn með fullkomn-
ustu tækjum á Norður-
löndum.
1941 Togarinn Gullfoss frá
Reykjavík ferst með allri
áhöfn út af Snæfellsnesi.
1953 Barnaskólahúsið í Hnífs-
dal fýkur af grunni og
splundrast.
1964 Ríkisstjórn Ítalíu biður um
aðstoð til að varna því að
Skakki turninn falli á hlið-
ina.
1975 Hornstrandir norðan og
vestan Skorarheiðar í
Norður-Ísafjarðarsýslu eru
friðlýstar.
1999 Olusegun Obasanjo er
kosinn forseti Nígeríu í
fyrstu forsetakosningum í
landinu frá árinu 1983.
Þennan dag árið 1974 kom tímaritið People út í
fyrsta sinn í Bandaríkjunum. Ritið kemur út viku-
lega og fjallar um fræga fólk-
ið. Tæplega fjórar milljónir lesa
blaðið vikulega og hefur það
margoft komist á topplista
yfir vinsælustu tímarit í sínum
flokki vestanhafs. Vefsíða tíma-
ritsins hefur einnig milljón-
ir lesenda og nýjustu tölur sýna
39,6 milljónir heimsóknir dag-
lega. Þetta á sérstaklega við
þegar vinsælir viðburðir eru ný-
afstaðnir eins og Óskarsverð-
launahátíðin.
Stofnandi tímaritsins heitir
Dick Durrell, en ritið var stofn-
að upp úr vinsælli síðu í Time
Magazine, sem bar einmitt
nafnið People. Þetta var einskonar slúðursíða
sem var svo vinsæl að hún varð að tímariti.
Fyrsta heftið fjallaði aðal-
lega um leikkonuna Miu Far-
row sem var þá í aðalhlutverki í
stórmyndinni The Great Gatsby.
Árið 1996 kom ritið einnig út á
spænsku og árið 2006 kom út
unglingaritið Teen People sem
er slúðurrit sem á að höfða til
unglinga. Ritið hefur mjög oft
fengið á sig málssókn fyrir að
rjúfa friðhelgi einkalífs stóru
stjarnanna. Það hefur einnig
borgað stórar fjárhæðir fyrir
sögur og myndir af stórum við-
burðum í lífi fræga fólksins á
borð við nýfædd börn, skírn,
brúðkaup og aðra stórviðburði.
ÞETTA GERÐIST: 27.FEBRÚAR 1974
People kemur út í fyrsta sinn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Anna Magnea Gísladóttir,
frá Ísafirði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli hinn 19. febrúar,
verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 29. febrúar
kl. 15.00.
Páll H. Sturlaugsson Emma S. Rafnsdóttir
Sigríður E. Sturlaugsdóttir Ómar Ö. Þorbjörnsson
Guðrún I. Sturlaugsdóttir Karl Jensson
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Halldóra Óskarsdóttir
frá Hábæ, Þykkvabæ, lengst af búsett í
Hjarðartúni 12, Ólafsvík,
lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 24. febrúar.
Útförin auglýst síðar.
Unnsteinn Tómasson Ingibjörg Högnadóttir
Guðmundur Tómasson Hjördís Harðardóttir
Ágústa Tómasdóttir Tryggvi K. Eiríksson
Óskar Tómasson
Sesselja Tómasdóttir Bárður H. Tryggvason
Þórhildur Tómasdóttir
Steinunn Tómasdóttir Þröstur Leósson
Njörður Tómasson Gunnhildur L. Marteinsdóttir
Goði Tómasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigríður Jónsdóttir
Múlavegi 3, Seyðisfirði,
lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar 24. febrúar sl. Útförin
auglýst síðar.
Guðlaug Vigfúsdóttir Gunnar Ragnarsson
Grétar Vigfússon Jóhanna Sigurjónsdóttir
Borghildur Vigfúsdóttir Árni Arnarson
Ólafur Vigfússon
Gunnar Árni Vigfússon Ágústa Berg Sveinsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
Kæru ættingjar og vinir, innilegar þakkir
fyrir kærleik og vinarþel sem þið sýnduð
okkur við fráfall okkar ástkæru
Þórlaugar Aðalbjargar
Jónsdóttur
frá Möðrudal.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki Sjúkrahúss
Seyðisfjarðar fyrir hlýhug og fórnfúsa hjálp. Guð veri
með ykkur.
Sigbjörn Sigurðsson
Jón Hlíðdal, Soffía Sigríður, Jóhanna Birna, Margrét
Kristín, Gunnar Þór, Þórhalla Dröfn, Sigurður Steinar.
tengdabörn, ömmu- og langömmubörn og systkini.
„Upphaf Háskólans á Bifröst má rekja
til Samvinnuskólans sem var stofn-
aður í Reykjavík árið 1918,“ segir
Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á
Bifröst.
Þá var skólinn í núverandi húsa-
kynnum menntamálaráðuneytis en
það var Jónas Jónsson frá Hriflu sem
stofnaði skólann. „Samvinnuskólinn
var framhaldsskóli sem meðal ann-
ars kenndi bókhald, rekstur og al-
menn verslunarfræði. Síðan var hægt
að halda áfram námi og taka stúd-
entspróf,“ segir Ágúst. „Skólinn flutti
á Bifröst árið 1955, breyttist síðan
í Samvinnuháskólann, verður Við-
skiptaháskólinn og síðan Háskólinn á
Bifröst sem hann er enn í dag.“
Ágúst segir markmið skólans þó
hin sömu í dag þrátt fyrir nafnabreyt-
ingar. „Við viljum vera fremst í þeim
fræðum sem skólinn stendur fyrir.
Við höfum skapað okkur ákveðna sér-
stöðu og þar nægir að nefna BS-gráðu
í Hagfræði, heimspeki og stjórnmála-
fræði sem er einungis kennd hérlendis
á Bifröst. Þetta nám er mjög vinsælt
í enskumælandi löndum. Sérstaklega
fyrir verðandi stjórnmálamenn og
fólk sem hyggur á störf við fjölmiðla.
Þar má nefna Gordon Brown forsetis-
ráðherra Breta sem útskrifaðist með
þessa gráðu. Að vísu ekki frá Bifröst,“
segir Ágúst brosandi.
Í boði eru þrjár háskóladeildir, sjö
meistaranámslínur og frumgreina-
deild. Við skólann eru nú 1.100 nem-
endur.
Þegar skólinn flutti frá Reykjavík
fékk hann góða gjöf og Ágúst segir
skólann enn minnast þess með þakk-
læti. „Þegar skólinn flutti upp á Bif-
röst árið 1955 fékk hann að gjöf land.
Það var það mikla ágætisfólk við
Hreðavatn sem gaf þessa höfðinglegu
gjöf og á þessu landi stendur skólinn
enn,“ segir Ágúst.
Við Bifröst búa um sjö hundr-
uð manns og Ágúst segir nemendur
koma úr öllum áttum. „Hingað koma
bæði einstaklingar og fjölskyldufólk.
Bæði fólk sem er að hefja háskólanám
í fyrsta sinn og aðrir sem eru að bæta
við sig og byrja upp á nýtt. Við erum
með góðan leikskóla rekinn af Hjalla-
stefnunni þar sem áttatíu börn eru
við nám. Auk þess sem um hundrað
börn sækja skóla niður á Varmaland,
búsett hér,“ segir Ágúst.
Hann segir að brottfall sé minnst úr
námi frá Bifröst miðað við sambæri-
legt nám hérlendis og að 70 prósent
útskriftarnema séu komin í stjórn-
unarstöður innan fimm ára að námi
loknu. „Hér stundar fólk sitt nám og
vinnur ekki með skóla. Síðan er góð
reynsla af fólki héðan í atvinnulífinu
og það skilar sér í auknum möguleik-
um þeirra sem útskrifast héðan.“
Í tilefni afmælisins er unnið að
heimildarmynd um Bifröst og er
framkvæmdin í höndum Gísla Ein-
arssonar Borgfirðings og sjónvarps-
manns. Myndin er að sögn Ágústs gjöf
fimmtíu ára stúdenta frá Bifröst.
Fram undan eru fjölbreyttar ráð-
stefnur og málþing á afmælisárinu.
Ágúst nefnir þar opið hús á sumar-
daginn fyrsta þar sem kynning verður
á námi, ráðstefna um tengslanet
kvenna í lok maí og menningarhátíð
í júlí. „Við viljum svo gjarnan að fólk
gleðjist með okkur. Þess vegna reyni
ég að sneiða hjá ræðuhöldum og af-
mælisritum. Bifrestingar kunna að
skemmta sér og það er mikið afmæl-
isskap í öllum hér. Hins vegar ætlum
við að bjóða öllum Borgfirðingum í
afmæliskaffi og á tónleika í dag í til-
efni dagsins,“ segir Ágúst sem hlakk-
ar til að fagna með sínu fólki á þessum
stóru tímamótum.
rh@frettabladid.is
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST: NÍUTÍU ÁRA AFMÆLI
Fagnar með fólkinu í dag
Slysavarnadeildir og björgunarsveit-
ir Slysavarnafélagsins Landsbjargar
hafa í vetur gefið um 40 þúsund end-
urskinsmerki, þar af um 35 þúsund til
barna í leik- og grunnskólum landsins.
Endurskinsmerkin eru fjölbreytt að
lögun og lit og hafa slegið í gegn hjá
öllum aldurshópum að því er fram kemur
í Fréttatilkynningu frá Slysavarnar-
félaginu. Í mörgum bæjarfélögum
hafa öll börn fengið endurskinsmerki,
til dæmis í Reykjanesbæ, Akranesi,
Garðabæ og Seltjarnarnesi. Björgunar-
sveitin Mannbjörg í Þorlákshöfn gekk
skrefinu lengra og gaf öllum skóla-
börnum, öldruðum og fötluðum ein-
staklingum í bænum merki.
Sveitin vill enn og aftur leggja
áherslu á hve mikil slysavörn felst í
endurskinsmerkjum. Ökumaður sem
ekur bifreið með lágum ljósum sér
dökkklæddan einstakling án endur-
skins fyrst í 25 metra fjarlægð en ef
viðkomandi einstaklingur ber endur-
skinsmerki, sér viðkomandi ökumaður
hann úr 125 metra fjarlægð.
Slysavarnafélagið Landsbjörg
hvetur alla landsmenn til að vera sýni-
legir í umferðinni og nota endurskins-
merki.
35.000 börn hafa fengið endurskinsmerki
SKYNSAMLEG SLYSAVÖRN Slysavarnadeild-
ir og björgunarsveitir Slysavarnafélagsins
Landsbjargar hafa gefið börnum endurskins-
merki um land allt.
AFMÆLI ALLT ÁRIÐ
Ágúst Einarsson, rektor
á Bifröst, leggur mikið
upp úr því að fólk gleðj-
ist saman á þessum
merku tímamótum
skólans.