Fréttablaðið - 27.02.2008, Qupperneq 44

Fréttablaðið - 27.02.2008, Qupperneq 44
24 27. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Overli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell ■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott Já, reyndar er þetta fyrsti dagurinn hans Lenna... Hvernig vissirðu? Já, já, já! Þetta er lífið! Engar konur! Bara strákar! En þannig er það eiginlega alltaf hjá okkur, Húgó! Það er það sem ég er að segja, Ívar! Svona er lífið! Palli, nennirðu að setja diskinn þinn í vélina og setja hana af stað? Geturðu sagt þetta aftur? Hvað er á listanum mínum í dag? Standa hlekkjaður í bakgarðinum. Ohh.. . Ég vildi óska að ég gæti strikað yfir það. Allt í lagi... Betra en flestir... Að vera foreldri: Ekki slæmt fyrir þriggja barna föður! Ég tók upp á því í vik- unni að tylla mér á skólabekk. Það er í hálfgerðri diet-útgáfu í þetta skiptið, enda í formi tveggja kvölda námskeiðs. Maður hefði haldið að ég, sem á að baki sautján ára skólagöngu, væri ágætlega búin undir þessa léttvægu æfingu í einbeitingu og glósunarstörfum. Í staðinn komst ég að því að þetta er svipað og með húsmóðurvöðvana, sem slappast fljótt ef þeir eru ekki í stöðugri æfingu. Ég sannreyndi það um daginn, þegar ég starði á þvottavél og þurrkara í hálftíma eins og tækin væru arameískumæl- andi geimverur. En það er önnur saga og öllu sorglegri. Ég hef haft lítil afskipti af súlurit- um frá því að ég yfirgaf grunnskól- ann. Ég mátti þess vegna alveg eiga von á því að heilinn slökkti á sér meðan á námskeiðinu stóð, svona svipað og myndavélin sem ég var mætt til að læra á. Það kom mér samt á óvart. Ég er að uppgötva að ég hef bara kolranga mynd af eigin skólagöngu. Ég telst ansi fram- bærilegur námsmaður á hefðbund- inn mælikvarða. Það er hins vegar að rifjast upp fyrir mér að ég hef aldrei skarað fram úr í eiginlegri námsástundun. Í staðinn sækja á mig löngu grafnar minnismyndir af stærðfræðibókinni sem ég opnaði ekki fyrr en þremur dögum fyrir próf, og mánudögunum sem ég svaf mig í gegnum fjórfalda tíma í grísku. Einhvern veginn hef ég haldið lífi í ranghugmyndum um sjálfa mig með gleraugu (sem ég nota ekki), hnút í hárinu og snyrti- legan stafla af penum glósum, sitj- andi við lítið skrifpúlt undir frönskum glugga. Óekkí. Það sem ég kann er að taka örvæntingarfullt lærdómskast skömmu fyrir erfitt próf og ná á yfirskilvitlegan hátt að festa allar upplýsingar, ásamt blaðsíðutölum, einhvers staðar í afkimum hugans. Ég vona því bara að yfirstandandi námskeiði ljúki á átta tíma prófi með fimm ritgerðarspurningum. Þá á ég séns. Annars mun ég halda áfram að stara tómeygð á töfluna og finna súlurnar spýtast út um eyrun. STUÐ MILLI STRÍÐA Að spenna námsmannavöðvann SUNNA DÍS MÁSDÓTTIR FINNUR SÚLURITIN SPÝTAST ÚT UM EYRUN Miðasala hafin á midi.is! www.lokal.is Baðstofan e. Hugleik Dagsson sýn. lau 1/3 örfá sæti laus norway.today e. Igor Bauersima sýn. fi m. 28/2, uppselt fös. 29/2 örfá sæti laus Vígaguðinn e. Yasminu Reza sýn. fös 29/2, lau. 1/3 örfá sæti laus Pétur og úlfurinn e. Bernd Ogrodnik sýningar sun. 2/2 örfá sæti laus Skilaboðaskjóðan e. Þorvald Þorsteinsson Sýningar sun. 2/3 örfá sæti laus Kynningarfundir á nýgerðum kjarasamningum Félags iðn- og tæknigreina (FIT) verða haldnir á eftirtöldum stöðum: • Miðvikudaginn 27.febrúar í Borgartúni 30 kl. 20. • Fimmtudaginn 28.febrúar í Kaffi -Duus í Grófi nni, Reykjanesbæ kl.20 • Föstudaginn 29.febrúar í Austurvegi 56, Selfossi kl. 18:30 • Mánudaginn 3.mars á Akranesi Dagskrá fundanna: 1. Kynning nýgerðra kjarasamninga 2. Önnur mál Stjórn FIT 27. febrúar 28. febrúar 2.mars frábær röksemdafærsla

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.