Fréttablaðið - 27.02.2008, Side 48
28 27. febrúar 2008 MIÐVIKUDAGUR
Frá framleiðendum Devils Wears Prada
Skemmtilegasta rómantíska gamanmynd
ársins með Katherine Heigl úr Knocked up
og Greys Anatomy í fantaformi.
Missið ekki af þessari!
FÓLK MEÐ ÓTRÚLEGA KRAFTA
SEM GETA BREYTT ÖLLU
KALLAST STÖKKVARAR!
NÝTT Í BÍÓ!NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
12
14
7
16
7
14
7
27 DRESSES kl. 8 - 10
RAMBO kl. 5.50
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.50 ÍSLENSKT TAL
BRÚÐGUMINN kl. 8
JUMPER kl. 10
16
7
12
12
16
27 DRESSES kl.5.30 - 8 - 10.20
JUMPER kl.6 - 8 - 10
BEFORE THE DEVIL KNOWS kl.5.30 - 8 - 10.20
MEET THE SPARTANS kl.6 - 8 -10
27 DRESSES kl. 5.30 - 8 - 10.30
27 DRESSES LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
JUMPER kl. 8 - 10.10
MEET THE SPARTANS kl. 6
CLOVERFIELD kl. 10
BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8 - 10.10
THERE WILL BE BLOOD kl. 5.50 - 9
INTO THE WILD kl. 6 - 9
ATONEMENT kl. 5.30 - 8 - 10.30
BRÚÐGUMINN kl. 5.50 - 8 - 10.10
5%
5%
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR BÍÓMIÐANN
MEÐ KREDITKORTI TENGDU AUKAKRÓNUM!
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
EITTHVAÐ SKELFILEGT
ER Á SVEIMI!
STÓRKOSTLEG MYND Í LEIKSTJÓRN SEAN PENN.
S.V. - MBL.
S.V. - MBL.
B.B - 24 STUNDIR
B.B - 24 STUNDIR
-V.J.V. - Topp5.is / FBL
- H.J. - MBL
drekktu betur
REYKJAVÍK AKUREYRI KEFLAVÍK SELFOSS
ÓSKARSVERÐLAUN
M.A. BESTA MYND ÁRSINS OG BESTU LEIKSTJÓRAR4 ÓSKARSVERÐLAUN M.A. BEST LEIKARI2
ÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
SELFOSS
AKUREYRI
KEFLAVÍK
STEP UP 2 kl. 5:50 - 8 - 10:10 7
THERE WILL BE BLOOD kl. 5:15 - 8:30 - 10:10 16
THERE WILL BE BLOOD kl. 5:15 - 8:30 VIP
NO COUNTRY FOR OLD MEN kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
MR. MAGORIUMS.. kl. 5:50 L
SWEENEY TODD kl. 10:10 16
UNTRACEABLE kl. 8 16
DEATH AT A FUNERAL kl. 6 - 8 7
STEP UP 2 kl. 6:10 - 8:20 - 10:30 7
P.S. I LOVE YOU kl. 5:30 - 8 - 10 L
JUMPER kl. 8 - 10:30 12
MR. MAGORIUMS... kl. 6 L
STEP UP 2 kl. 8 - 10:10 7
NO COUNTRY FOR OLD... kl. 10:10 L
JUMPER kl. 8 12
BRÚÐGUMINN sýnd lau og sun. 7
STEP UP 2 kl. 8 - 10 7
P.S. I LOVE YOU kl. 8 L
UNTRACEBLE kl. 10:10 16
STEP UP 2: THE STREETS kl. 8 7
CHARLIE WILSONS WAR kl. 10:10 12
RAMBO kl. 8 16
NO COUNTRY FOR... kl. 10 16
- bara lúxus
Sími: 553 2075
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
27 DRESSES kl. 8 og 10.10 L
RAMBO kl. 6, 8 og 10-P 16
JUMPER kl. 10 12
LOVEWRECKED kl. 6 L
ÁSTRÍKUR Á ÓLYMPÍULEIKUNUM kl. 5.30 ÍSL TAL L
2
- 24. Stundir
- V.J.V., Topp5.is
Poetrix er listamannsnafn rappar-
ans Sævars Daníels Kolandavelu.
Hann hefur verið að skrifa rímur
og rappað í nokkur ár, en Fyrir
lengra komna er hans fyrsta
plata.
Sævar er fínn rappari með
skýra framsögn og gott flæði og
textarnir hans eru margir á meðal
þess besta sem maður hefur heyrt
frá íslenskum rímnasmiðum í
langan tíma.
Alvara, Vegurinn til glötunar,
Rónaljóð, Havana Club og Gervi-
boðefni eru dæmi um frábæra
texta. Margir textanna draga upp
skuggalegar og kunnuglegar
myndir frá Reykjavík dagsins í
dag, en þeir eru líka mjög per-
sónulegir. Baráttan við eiturlyfja-
fíknina er eins og rauður þráður í
gegnum plötuna. Móri gerði þem-
aplötu um hassreykingar og smá-
glæpi fyrir nokkrum árum. Nú er
partíið búið. Fyrir lengra komna
fjallar um niðurtúrinn og með-
ferðina. Poetrix er fíkill sem er
búinn að ná áttum; rappari í bata.
Hann hefur alvöru boðskap fram
að færa og það gerir textana hans
áhrifameiri og sterkari. Þetta er
enginn leikaraskapur.
Á meðal taktsmiða á Fyrir
lengra komna eru Poetrix sjálfur,
Matti M.A.T. og Steve Sampling.
Það er margt vel gert hér. Takt-
arnir eru flestir einfaldir en
standa vel fyrir sínu og svo fá
lögin lit með lifandi hljóðfæraleik
sem hlaðið er ofan á grunnana.
Gaukur Úlfars kemur sterkur inn
á bassann í nokkrum lögum og
Smári tarfur sýnir snilldartakta í
mörgum þeirra. Platan væri áber-
andi fátæklegri án hans framlags.
Hann strömmar rafmagnsgítarinn
með fínum árangri, en ennþá flott-
ari eru gítarlykkjurnar og plokkið
sem prýða mörg laganna.
Það eru nokkur frábær lög á
Fyrir lengra komna. Eitt þeirra er
Alvara sem minnir mig mikið á
einhvern gamlan MC Solaar smell.
Það einkennist af djassi og afslapp-
aðri stemningu sem fæst með
kontrabassaleik Árna Hjörvar,
hammondleik Davíðs Þórs og
trompetleik Eiríks Orra. Mjög
flott. Það eru nokkrar gestaraddir
á plötunni og þær koma yfir það
heila vel út. Bubbi, Einar Ágúst og
Rósa úr Sometime eiga fínar inn-
komur að ógleymdum Reyni kokki
sem opnar Rónaljóð. Ég verð samt
að viðurkenna að röddunin hennar
Guðbjargar Elísu er svolítið ofnot-
uð á plötunni og verður þreytandi
til lengdar. Platan byrjar mjög
kröftuglega, en dalar aðeins þegar
á líður. En þó að lögin og textarnir
séu misgóð þá er heildarsvipurinn
samt sterkur. Þetta er hörkuplata.
Trausti Júlíusson
Tekið til eftir partíið
TÓNLIST
Fyrir lengra komna
Poetrix
★★★★
Fyrir lengra komna er mjög vel
heppnuð frumsmíð. Mörg laganna
eru flott og Poetrix sprettur fram
sem sannfærandi rappari með alvöru
boðskap.
Bandaríska tríóið Low er væntan-
legt til tónleikahalds í Reykjavík.
Hljómsveitin leikur á Nasa föstu-
dagskvöldið 4. apríl og hefst miða-
sala á midi.is á morgun.
Low kom síðast til Íslands árið
1999 og spilaði á eftirminnilegum
tónleikum í Háskólabíói með Sigur
Rós. Þá var hljómsveitin þekkt
fyrir ofurljúfa og hæga tónlist
(svokallað „slowcore“) en bandið
hefur verið að keyra sig aðeins
upp í rokkinu síðan þá. Nýjasta
platan, Drums and guns, sú átt-
unda í fullri lengd, kom út í fyrra
og er önnur plata sveitarinnar
fyrir Sub Pop merkið í Seattle sem
er þekkt fyrir að koma Nirvana á
framfæri.
Low var stofnuð árið 1993 í
Duluth í Minnesota af hjónunum
Alan Sparhawk, sem syngur og
spilar á gítar, og Mimi Parker sem
syngur og trommar. Bassaleikarar
hafa komið og farið í gegnum tíð-
ina. Tónleikarnir í Nasa verða þeir
fyrstu í Evróputúr sveitarinnar.
Íslenska hljómsveitin Skakka-
manage, sem einnig inniheldur
hjónakorn, hitar upp.
Low snýr aftur í apríl
BANDARÍSKA HLJÓMSVEITIN LOW Spilar
á Nasa 4. apríl.
200.000 naglbítar fagna
tíu ára útgáfuafmæli
sínu í haust. Áfanganum
verður fagnað með
eftirminnilegum hætti.
„Ég er búinn að vera með þetta í
maganum í nokkur ár. Það eru allir
búnir að vera að vinna með Sinfó,
Gospelkórnum eða einhverjum
big böndum, og mér fannst geð-
veikt töff að Naglbítar og Lúðra-
sveit verkalýðsins myndu slá
saman í púkk. Nöfnin passa líka
svo vel saman – 200.000 naglbítar
og Lúðrasveit verkalýðsins – rosa-
lega karlmannlegt eitthvað.“
Hér talar Villi Naglbítur um
samstarf hljómveitanna tveggja,
rokktríósins og 40 manna lúðra-
sveitarinnar. Í tilefni af tíu ára
afmæli fyrstu plötu Naglbítanna –
og 15 ára hljómsveitarafmæli –
verða tíu Naglbítalög af plötunum
þeirra þremur útsett upp á nýtt
fyrir lúðrasveit og rokktríó.
Útkoman verður svo gefin út á
plötu í haust og tónleikar haldnir í
kjölfarið. Þá ætlar Heimir Freyr
Hlöðversson að gera heimildar-
mynd um allt ferlið.
„Ég er búinn að heyra fyrstu
lögin og sat bara með gæsahúð,
þetta var svo þungt, kraftmikið og
æðislegt,“ segir Villi. „Ég spurði
sjálfan mig hvort þessi tónlist
væri í alvörunni eftir mig.“
Það er annars að frétta að Villi
segist vera að læra að vera pabbi
um þessar mundir því honum
fæddist sonur fyrir þremur mán-
uðum. Og svo eru það dómgæslu-
störf í Bandinu hans Bubba. „Það
er rosalega skemmtilegt. Vinur
minn benti mér á að einhverjar
kerlingar hafi verið að hneyklast á
mér á blogginu fyrir að muna ekki
nöfnin á keppendunum. Hvers
vegna ætti ég að hlusta á fólk sem
hefur ekki afrekað annað en að
kaupa sér tölvur til að geta skrifað
um það sem aðrir eru að gera? En
jæja, ég hlýt að geta munað nöfnin
á söngvurunum fyrir næsta þátt,
allavega nöfnin á þeim sem geta
eitthvað. Það er gaman að vinna
með Birni Jörundi og Bubba. Hann
er fínn húsbóndi, skemmtilegur
og almennilegur og alltaf segjandi
sögur. Það eru margir flottir
söngvarar að keppa svo ég hlakka
mikið til að vera í þættinum næstu
vikurnar.“ gunnarh@frettabladid.is
Spila með Lúðrasveit
verkalýðsins á afmæli sínu
FÆR GÆSAHÚÐ AF LÚÐRASVEITINNI Villi naglbítur hafði samband við Lúðrasveit
verkalýðsins sem var til í stuðið. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA