Fréttablaðið - 28.02.2008, Page 33
FIMMTUDAGUR 28. febrúar 2008 3
Eftir dálítið þunglyndislegan febrúarmánuð með útsölulokum og
tómlegum búðum hressist andinn við með tískuviku þar sem sýnd
er vetrartískan 2008-9. Vetrartískan boðar hér vorið á sérstakan
hátt. Á eftir Mílanó og New York er komið að París.
John Galliano er með hressara móti eftir tilþrifalitlar sýningar
undanfarið. Andinn er á árunum kringum ´60 með tilkomumiklum
hárgreiðslum og undir hljómar Mrs. Robinson Simons og Garfun-
kels. Litirnir fushíableikur, turkisblár og sítrónugulur svo einhverj-
ir séu nefndir. Næsti vetur verður því ekki dapurlegur í dökkum
litum eins og oft áður, heldur í sterkum, áberandi litum. Kjólarnir
eru þröngir, hálfsíðir en ekki snarstuttir eins og undanfarið og
engar buxur í boði. Til að auka á verðmætið eru yfirhafnir úr strúts-
skinni, krókódíl og loðfeldi, sannkallaðir gangandi dýrakirkjugarð-
ar. Það vakti hins vegar athygli hversu fáar stjörnur létu sjá sig á
sýningunni. Kannski of mikið að gera á milli þess að fara á Cesar-
verðlaunaafhendinguna á föstudag í París og Óskarsverðlaunin á
sunnudagskvöld í Hollywood. Það hefur reyndar verið sagt um fleiri
tískusýningar að þessu sinni að stjörnurnar hafi látið sig vanta.
Sharon Stone, Nicole Kidman og Janet Jackson hafa ekki enn sést í
París.
Manish Arora, indverski hönnuðurinn sem hefur slegið í gegn síð-
ustu misseri, gladdi svo sannarlega augað á sunnudagskvöld á ann-
arri Parísarsýningu sinni, hvort sem hönnunin heillar eða ekki.
Arora sem byrjaði sinn feril sem búningahönnuður í Bollywood er
tryggur uppruna sínum og reynir alls ekki að elta vestræna tísku.
Höfuðstöðvar hans eru enn í Indlandi þar sem hann skapar vinnu
fyrir fjölda manns þrátt fyrir aukin umsvif í vestrænum tískuheimi.
Hönnun Arora er eins og ævintýri fyrir börn, full af litum, fígúrum,
litríkum perlum og pallíettum eins og Indverjum einum er lagið.
Fyrirsæturnar báru skrautlegar grímur á andlitum líkt og þær væru
komnar beint út barnaleikriti. Umgjörð sýningarinnar var sömu-
leiðis litrík og hann, eins og fleiri um þessar mundir, fer þá leið að
hafa lifandi tónlist á sýningunni.
Martin Margiela er þekktur fyrir að gera tilraunir í hönnun sinni
og hann brá ekki út af venjunni í þetta skiptið með skóhælum gerð-
um úr nöglum, flíkurnar nákvæmlega hannaðar líkt og eftir stærð-
fræðiformúlu, uppháir bogalagaðir kragar á kápum frá öxlum næst-
um upp að nefi. Litirnir dökkir. Í bland dálítið af hlébarðamunstri og
blómum, rétt til hressingar í drunganum. Hann skreytir sömuleiðis
flíkurnar með smáatriðum eins og rennilásum og áprentuðum mynd-
um. Athyglisverðar tilraunir í efni. bergb75@free.fr
Dýrakirkjugarðar og naglar á
sýningarpöllum í París
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Kremaður málmur
í ýmsum litum
NÝJU AUGNSKUGGARNIR FRÁ
NIVEA BEAUTÉ GEFA HUGTAKINU
AÐ MÁLA SIG NÝJA MERKINGU, ÞVÍ
LITAGLEÐIN FÆST Í FRUMLEGUM
MÁLARATÚBUM.
Augnskuggarnir frá Nivea Bea-
uté koma í öllum regnbog-
ans litum og gefa áferð bráðins
málms, en útkoman er ægifögur
og ljómandi og endist lengi. Með
Creamy Metal-augnskuggum
Nivea Beauté er fegurð augn-
anna undirstrikuð, en í þeim er
púður sem gefur góða endingu
og kemur í veg fyrir smit, þannig
að augun virðast alltaf nýmál-
uð. Auðvelt er að blanda litunum
saman og leyfa listræna fagur-
keranum að njóta sín fyrir fram-
an spegilinn. - þlg
H
im
in
n
o
g
h
a
f
/
S
ÍA
Vantar þig
aukapening?
Pósthúsið leitar að duglegu og morgunhressu fólki
til að bera út blöð milli 6 og 7 á morgnana. Um er
að ræða holla og hressandi útiveru, annars vegar á
virkum dögum og hins vegar um helgar.
Njóttu þess að taka daginn snemma, hreyfðu þig og
fáðu borgað fyrir það.
Allar nánari upplýsingar veitir dreifingardeild
Pósthússins í síma 585 8330. Einnig er hægt að
sækja um á www.posthusid.is
– ódýrari valkostur
Pósthúsið ehf | Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 585 8300 | posthusid.is
Pósthúsið er ungt og öflugt
dreifingarfyrirtæki á sviði
blaða- og vörudreifingar.
Hjá Pósthúsinu starfa um
sjöhundruð manns að
uppbyggingu á fjölbreyttum
og skemmtilegum vettvangi.