Fréttablaðið - 01.03.2008, Blaðsíða 16
1. mars 2008 LAUGARDAGUR
KLIPPIÐ HÉR!
- Ekkert hlé á góðum myndum
Engin truflun3Minna af auglýsingum2Ekkert hlé1
2 fyrir 1 allar frumsýningarhelgar gegn framvísun þessarar úrklippu.
www.graenaljosid.is - Skráning í Bíóklúbb Græna ljóssins margborgar sig
„Sannkölluð veisla. Það er engu líkara
en að kvikmyndaformið hafi hér með
gengið í endurnýjun lífdaga.“
- David Denby, The New Yorker.
„Stórfengleg! Skemmtilega ljóðræn
og snertir gríðarlega við manni.“
- Andrew Sarris, New York Observer.
„Vitnisburður um takmarkalausa
möguleika og getu mannshugans.“
- Steven Rea, The Philadelphia Inquirer
„Tilfinningalega sannfærandi
og konfekt fyrir augun.“
- Jan Stuart, Newsday
KÖFUNARKÚPAN OG FIÐRILDIÐ
Besta handritið - Ronald Harwood
Besta myndatakan - Janusz Kaminski
Besta klippingin - Juliette Welfling
TILNEFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA4
BESTI LEIKSTJÓRI
Julian Schnabel
Besti leikstjórinn - Julian Schnabel
Besta erlenda myndin
GOLDEN GLOBE
VERÐLAUN2
FRUMSÝND 29. FEBRÚAR Í REGNBOGANUM
VIÐURKENNING Fyrirtækið ORF Líftækni hf fékk í ár
Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunar-
miðstöðvar og Útflutningsráðs.
ORF Líftækni er eina fyrirtækið í heiminum sem
framleiðir sérvirk prótein mannslíkamans í fræjum
byggplöntunnar. Próteinin, sem kallast vaxtarþættir,
gegna mikilvægu hlutverki í líkama mannsins.
Vaxtarþættir sem framleiddir eru á rannsóknastof-
um hafa mikið notagildi við rannsóknir á stofn-
frumum, krabbameini, vefjaverkfræði, í ofnæmis-
fræðum og við lyfjaframleiðslu.
Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins, segir að með tilkomu framleiðslutækni þess
verði framleiðsla á vaxtarþáttum mun hagkvæmari
og öruggari en áður. Hingað til hafi próteinin fyrst
og fremst verið framleidd í bakteríum og spendýra-
frumum, sem er bæði flókið og dýrt.
Byggplönturnar eru ræktaðar í nýju 2.000
fermetra hátæknigróðurhúsi í Grindavík. Sérstakar
náttúrulegar aðstæður hér á landi veita fyrirtækinu
samkeppnisforskot þar sem ræktun byggs í gróður-
húsum krefst mikillar orku í formi jarðhita og
rafmagns.
Björn Lárus segir verðlaunin hafa mikla þýðingu
fyrir fyrirtækið. „Í þeim felst viðurkenning á þeirri
tækniþróun sem fyrirtækið hefur staðið fyrir, auk
þess sem þau auðvelda okkur markaðssetningu og
sölustarf erlendis.“ - aá
ORF Líftækni hf. fékk Nýsköpunarverðlaunin 2008:
Fremst í heimi á sínu sviði
NÝSKÖPUNARVERÐLAUNIN VEITT Heilbrigðisráðherra, Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, veitti þeim Birni Lárusi Örvar, Einari Mäntylä
og Júlíusi B. Kristinssyni Nýsköpunarverðlauninn 2008.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL „Þessi dómur gefur lín-
una sem við getum búist við að dóm-
arar fylgi. Hæstiréttur á þó enn
eftir að taka á málinu,“ segir Erlend-
ur Þór Gunnarsson, lögmaður Helga
Rafns Brynjarssonar, um dóminn
sem féll á þriðjudag þar sem
Gaukur Úlfarsson bloggari var
dæmdur til að greiða Ómari Valdi-
marssyni 300 þúsund krónur í
miskabætur vegna umfjöllunar um
hann á síðu sinni.
Helga Rafni var hótað líkams-
meiðingum og fleiru að ósekju
vegna misskilnings um að hann
hefði banað hundinum Lúkasi sem
aldrei drapst. Helgi Rafn var sakað-
ur um að hafa sparkað í hann þar
sem hann var ofan í íþróttatösku á
tjaldsvæði á Akureyri.
Erlendur segir málið enn vera í
rannsókn hjá lögreglu. „Miðað við
þann tíma sem rannsóknin hefur
tekið reikna ég með því að fá ítar-
lega og vandaða niðurstöðu frá lög-
reglunni í hendurnar von bráðar.
Annars er okkar mál rannsakað
sem refsimál, þar sem þess er kraf-
ist að þeir sem skrifuðu og hótuðu á
netinu verði dæmdir til refsinga og
greiðslu bóta.“
Í dómnum yfir Gauki voru skrif á
netinu færð undir prentlögin, sem
til þessa hafa aðeins náð yfir skrif í
dagblöðum og öðru prentuðu efni.
Erlendur segir það vera jákvætt
skref að færa prentlögin yfir á skrif
á netinu þar sem þau eigi það til að
fara úr böndunum. - mh
Áhrif dóms vegna ummæla á bloggsíðu augljós á Lúkasarmál:
Bloggdómur gefur línuna
ERLENDUR ÞÓR GUNNARSSON Telur
bloggdóm jákvæðan og gefa línuna í
Lúkasarmálinu svokallaða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA