Fréttablaðið - 06.03.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
fermingarFIMMTUDAGUR 6. MARS 2008 Fallegar skreytingarí fermingarveisluna
BLS. 6
Sími: 512 50006. mars 2008 — 65. tölublað — 8. árgangur
FERMINGAR
Séntilmenni og dans-
andi fermingarbörn
Sérblað um fermingar
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Búnaðarsamband
Suðurlands 100 ára
Markmiðið að efla bú-
rekstur og standa vörð
um hagsmuni bænda
á Suðurlandi.
TÍMAMÓT 32
STEINUNN VALA SIGFÚSDÓTTIR
Stökk á gylltu og svörtu
kengúruleðurstígvélin
tíska heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
VelduektaMyllu
Heimilisbrauð
- brauðið sem allir
á heimilinu velja
Skráning á
landsbanki.is
28. febrúar til 9. mars
Opið 10–18 alla daga
Spurt er um lið
Fulltrúar liða MA og MH í Gettu
betur sitja fyrir svörum um helgi-
siði og kynþokkafyllsta meðliminn.
FÓLK 46
Flottasta nafnið
Spilverk þjóðanna
þykir flottasta íslenska
hljómsveitar-
nafnið.
FÓLK 58
PÁLMAR PÉTURSSON
Hélt að ávíturnar væru grín
Jafnréttisnefnd Háskóla Íslands óánægð með nýlegt
tölublað tímarits laganema
FÓLK 58
FISKELDI Norskir fiskeldismenn
ætla innan fárra ára að framleiða
allt að 200 þúsund tonn af eldis-
þorski á ári. Eldistækni þeirra
fleygir fram. Bjartsýni þeirra
byggist á góðum árangri í eldi ann-
arra tegunda, en framleiðsla á laxi
nemur rúmlega 700 þúsund tonn-
um á ári. Norðmenn sjá þorskeldi
þróast á sama hátt. Sjávarútvegs-
ráðherra Noregs bindur miklar
vonir við þorskeldi.
Veiðar á þorski í Atlantshafi hafa
dregist saman um hundruð þús-
unda tonna á nokkrum áratugum.
Árið 1980 voru veiddar tvær millj-
ónir tonna í Norður-Atlantshafi en
veiði er nú áætluð um 750 þúsund
tonn. Á fiskveiðiárinu 2007 til 2008
hefur þorskafli við Ísland verið
ákveðinn 130 þúsund tonn og hefur
aldrei verið minni. Björn Ævarr
Steinarsson, sviðsstjóri veiðiráð-
gjafarsviðs Hafrannsóknastofnun-
ar, segir að ekki sé að vænta neinn-
ar aukningar í þorskveiðum á
næstu fimm árum. „Raunar verður
engin aukning nema við fáum inn
sterka nýliðun á næstu tíu til
fimmtán árum. Þess misskilnings
virðist gæta í þjóðfélaginu að þetta
muni gerast á mun skemmri tíma.“
Í þessu ljósi starfa fiskeldismenn í
þeim löndum sem þorskveiði hefur
tíðkast í stórum stíl.
Guðbergur Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka fiskeldis-
stöðva, segir ljóst að Norðmenn
séu komnir á mikið flug á meðan
lítið sé að gerast í þorskeldi annars
staðar. Hann bendir á að yfir hundr-
að fyrirtæki stundi þorskeldi í
sjókvíum í Noregi. „Þar ríkir mikil
bjartsýni og peningar streyma inn
í þorskeldið víðs vegar að. Hér er
það ekki tilfellið.“ Guðbergur segir
að Norðmenn hafi leyst öll vanda-
mál í tengslum við laxeldi og þaðan
sé sjálfstraust þeirra í þorskeldi
komið.
Ýmis vandamál við þorskeldið
eru óleyst en norskir eldismenn sjá
það ekki sem hindrun. „Við höfum
aðstöðuna, þekkinguna og fjár-
magnið,“ segir Hogne Bleie, fram-
kvæmdastjóri Atlantic Farms, í
viðtali við Fréttablaðið. Fyrirtæki
hans er eitt stærsta fiskeldisfyrir-
tæki Noregs og stefnir á að fram-
leiða tæp 28 þúsund tonn af eldis-
þorski eftir fjögur ár, byggt á eigin
seiðaframleiðslu. Það er svipað
magn eldisþorsks og bjartsýnustu
menn á Íslandi telja að verði fram-
leitt í þorskeldi hérlendis árið
2015.
Helga Petersen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, segir í viðtali við
Fréttablaðið að væntingar stjórn-
valda séu miklar til þessa iðnaðar.
„Takmarkið er að koma á fót fram-
leiðslu sem grundvölluð er á sjálf-
bærni og miklum gæðum. Í fram-
tíðinni er það mín von að þorskeldi
verði eins mikilvægt fyrir Noreg
og laxeldið er í dag.“ - shá / sjá síðu 18
Stefna á 200 þúsund tonna
þorskeldi innan fárra ára
Norskir fiskeldismenn stefna á að framleiða gríðarlegt magn af eldisþorski innan áratugar. Áætlanir næstu
sjö ára hljóða upp á að framleiða meira en Íslendingar veiða af villtum þorski í dag.
Áfram í Svíþjóð
Hreiðar Guðmunds-
son hefur framlengt
samning sinn við
sænska félagið
Savehof til
eins árs.
ÍÞRÓTTIR 52
ÚRKOMUSAMT Í dag verður all-
hvöss eða hvöss austanátt, hvassast
syðst. Rigning eða slydda syðra en
snjókoma norðan til, einkum eftir
hádegi. Hiti 1-5 stig syðra annars
frost 0-4 stig.
VEÐUR 4
-3
-3
-3
1
3
FIMMTUDAGUR
VEÐRIÐ Í DAG
EFNAHAGSMÁL „Nefndin er enn að störfum,” segir
Friðrik Már Baldursson, prófessor við Háskólann í
Reykjavík og formaður nefndar fjármálaráðherra
um endurskoðun skattkerfisins. Nefndin hefur
verið að störfum í næstum tvö og hálft ár.
Nefndin hóf störf í október 2005. Hún átti að fara
yfir skattkerfið. Samkvæmt heimildum Fréttablaðs-
ins hefur nefndin ekki komið saman í marga
mánuði.
Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi ríkisskattstjóri,
benti á að hátt hlutfall eignar í Kauphöllinni sé
skráð í skattaparadísum, í Lúxemborg og Hollandi.
Þetta eigi Íslendingar og eignin hlaupi á hundruðum
milljarða. „Svo kann að fara að lítill eða enginn
skattur verði eftir á Íslandi,“ segir Indriði.
Vilji var til þess að getið yrði um eignarhaldið í
skýrslu nefndarinnar. Heimildir Fréttablaðsins
herma að nefndin hafi ekki talið slíkt í samræmi við
skipunarbréf sitt. Samkvæmt yfirlýsingu ráðherra
frá haustinu 2005 átti hún þó að kanna stöðu mála í
löndum sem „ekki eru föst í viðjum skattahugsana
vestrænna ríkja“. - ikh
Nefnd fjármálaráðherra um skattkerfið hefur ekki komið saman í marga mánuði:
Áralöng bið eftir skattaúttekt
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Steinunn Vala Sigfúsdóttir, stigavörðurinn geð-þekki úr Gettu betur, hefur hin síðari ár tekið upp þann sið að kaupa sér jóladress eins og hún var vön að fá sem barn.
„Ég ólst upp við það að fá alltaf jólaföt en þar fyrir utan voru fatakaup ekki daglegt brauð. Ég man að það fylgdi þessum kaupum alltaf mikil spenna en ég mátti auðvitað ekki fara í dressið fyrr en á aðfanga-dag og dáðist að því úr fjarlægð. Í seinni tíð hef ég lagt það í vana minn að kaupa mér sérstakan jóla-kjól,“ segir Steinunn Vala. Fyrir síðustu jól fór hún á stúfana og féll fyrir kjól í dönsku búðinni Munthe plus Simonsen. „Hann er úr silki með útsaumuðu munstri og ofsalega þægilegur, segir Steinunn Vala en þægindi þurfa að einkenna fötin hennar til að þau endi ekki inni í skáp. Steinunn
Vala á síðan skó sem hún festi kaup á í London fyrir nokkru og smellpassa við. „Við fórum tvær stöllur og ætlaði ég að finna mér svört stígvél. Við kunnum greinilega ekki nógu vel á borgina og varð ekkert ágengt. Þegar bílstjórinn kom til að fara með okkur á hótelið vorum við heldur súrar og óánægðar með afraksturinn. Hann var greinilega vanur þessu, tók sveigju, stoppaði fyrir utan skóbúð og sagði að þar myndum við finna stígvélin.“Það kom á daginn og Steinunn Vala keypti stígvél úr kengúruleðri með gylltu fóðri. „Þau voru nú í dýr-ari kantinum en ég varð bara að stökkva á þau,“ segir hún og hlær.
Steinunn Vala hefur verið stigavörður Gettu betur síðustu fimm ár og kann því vel. Hún er verkfræð-ingur að mennt og vinnur á arkitektastofunni Batt-eríinu. „Stefnan er að verða arkitekt en ég vil þó halda sem flestu opnu.“ vera@frettabladid.is
Í barndóm einu sinni á ári
Steinunn Vala fann
langþráð stígvél
eftir ábendingu frá
bílstjóra í London.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
UPP AÐ ALTARINU
Systurnar Lína, Lilja og Jóna
opnuðu nýlega brúðar-
kjólaleigu en hugmyndin að
leigunni kviknaði eftir að Lína
fékk bónorð og hóf leit að
brúðarkjól sem fannst hvergi.
TÍSKA 2
EGG UM ALLT HÚS
Fallegt páskaskraut lífgar svo
sannarlega upp á heimilið
yfir hátíðirnar. Þótt eggin séu
alltaf mest áberandi er líka
eitthvað krúttlegt við kanínur
og unga í glaðlegum litum.
HEIMILI 4
UPPLÝSINGAR O
is
ing Mjódd
RAFMAGNSHITARAR
VERÐ FRÁ 1.990
ne
tv
er
slu
n
ish
us
id.
is
VIÐSKIPTI Gengi hlutabréfa í
deCODE, móðurfélagi Íslenskrar
erfðagreiningar, stóð í 2,03 á
hlutabréfamark-
aðnum Nasdaq við
lokun í gær og
hefur ekki verið
lægra í um fimm
ár. Gengið komst í
1,85 seint í mars
árið 2003, en lægst
komst það í 1,66 í
september 2002.
Gengi félagsins
hefur lækkað úr
3,01 frá því greint
var frá uppsögnum 60 starfs-
manna fyrir síðustu helgi. Þá lýsti
Kári Stefánsson, forstjóri
félagsins, því yfir að erfiðleikar
væru við fjármögnun félagsins
vegna aðstæðna á mörkuðum.
Kári hefur þó sagt að rekstrarfé
til næstu tveggja ára sé tryggt. - bj
Hlutabréf í deCODE falla:
Gengið ekki
lægra í fimm ár
KÁRI
STEFÁNSSON
ÁHRIF FIÐRILDANNA UNIFEM stóð í gærkvöldi fyrir göngu þar sem athygli var vakin á ofbeldi gegn konum í þróunarlöndunum.
Þar fór þjóðþekkt fólk svo sem Þórunn Sveinbjarnardóttir ráðherra, tónlistarkonan Lay Low og Þórunn Lárusdóttir leikkona.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R