Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 31
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Steinunn Vala Sigfúsdóttir, stigavörðurinn geð-
þekki úr Gettu betur, hefur hin síðari ár tekið
upp þann sið að kaupa sér jóladress eins og hún
var vön að fá sem barn.
„Ég ólst upp við það að fá alltaf jólaföt en þar fyrir
utan voru fatakaup ekki daglegt brauð. Ég man að
það fylgdi þessum kaupum alltaf mikil spenna en ég
mátti auðvitað ekki fara í dressið fyrr en á aðfanga-
dag og dáðist að því úr fjarlægð. Í seinni tíð hef ég
lagt það í vana minn að kaupa mér sérstakan jóla-
kjól,“ segir Steinunn Vala.
Fyrir síðustu jól fór hún á stúfana og féll fyrir kjól
í dönsku búðinni Munthe plus Simonsen. „Hann er úr
silki með útsaumuðu munstri og ofsalega þægilegur,
segir Steinunn Vala en þægindi þurfa að einkenna
fötin hennar til að þau endi ekki inni í skáp. Steinunn
Vala á síðan skó sem hún festi kaup á í London fyrir
nokkru og smellpassa við.
„Við fórum tvær stöllur og ætlaði ég að finna mér
svört stígvél. Við kunnum greinilega ekki nógu vel á
borgina og varð ekkert ágengt. Þegar bílstjórinn kom
til að fara með okkur á hótelið vorum við heldur súrar
og óánægðar með afraksturinn. Hann var greinilega
vanur þessu, tók sveigju, stoppaði fyrir utan skóbúð
og sagði að þar myndum við finna stígvélin.“
Það kom á daginn og Steinunn Vala keypti stígvél
úr kengúruleðri með gylltu fóðri. „Þau voru nú í dýr-
ari kantinum en ég varð bara að stökkva á þau,“ segir
hún og hlær.
Steinunn Vala hefur verið stigavörður Gettu betur
síðustu fimm ár og kann því vel. Hún er verkfræð-
ingur að mennt og vinnur á arkitektastofunni Batt-
eríinu. „Stefnan er að verða arkitekt en ég vil þó
halda sem flestu opnu.“ vera@frettabladid.is
Í barndóm einu sinni á ári
Steinunn Vala fann
langþráð stígvél
eftir ábendingu frá
bílstjóra í London.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
UPP AÐ ALTARINU
Systurnar Lína, Lilja og Jóna
opnuðu nýlega brúðar-
kjólaleigu en hugmyndin að
leigunni kviknaði eftir að Lína
fékk bónorð og hóf leit að
brúðarkjól sem fannst hvergi.
TÍSKA 2
EGG UM ALLT HÚS
Fallegt páskaskraut lífgar svo
sannarlega upp á heimilið
yfir hátíðirnar. Þótt eggin séu
alltaf mest áberandi er líka
eitthvað krúttlegt við kanínur
og unga í glaðlegum litum.
HEIMILI 4
UPPLÝSINGAR O
is
ing Mjódd
RAFMAGNSHITARAR
VERÐ FRÁ 1.990
ne
tv
er
slu
n
ish
us
id
.is