Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 22
22 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
1997 1999 2001 2003 2005 2007
HEIMILD: HAGSTOFA ÍSLANDS
„Ég held að albestu kaup sem ég hef gert hafi
verið lestarmiðinn góði,“ segir Helgi Pétursson
og verður mjúkur á manninn enda reyndist
lestamiðinn hinn mesti örlagavaldur. „Ég var
skammt fyrir utan London og keypti
lestarmiðann til að koma mér inn í borg
og þegar ég hef nýlokið því erindi mínu
hitti ég konuna og ég er alveg viss um
að það var miðinn sem leiddi mig á
leið til hennar. Svo það þurfa
ekki mikil fjárútlát að
fylgja svona firnagóð-
um kaupum líkt og
þeim sem ég gerði
þarna.“
En gæfan hefur þó
ekki alltaf verið hans
fylgikona í viðskiptunum
eins og hann fékk að reyna
í bílakaupum einum. „Ég festi kaup á frönskum
bíl af gerðinni Simca,“ segir Helgi og ljóminn
frá Lundúnaferðinni forðum rennur af honum.
„Þetta var í upphafi áttunda áratugarins. Það er
reyndar löngu hætt að framleiða þessa bíla
núna og ég held að það útskýri málið. Eitt
af því sem plagaði mig nokkuð við þenn-
an bíl var það að rúðuþurrkurnar virkuðu
aldrei sem getur verið afar hvimleitt þegar
menn vilja aka á norðlægum slóðum.
Ég reyndi þó að bæta úr þessu
með því að taka mér streng til
handargagns og festa tusku á
hann og svo dró ég hann til
skiptis um framgluggann
hjá farþegasætinu og
glugga ökumanns. Þetta
er gamalt og þekkt trix
en afar lýjandi.“
NEYTANDINN: HELGI PÉTURSSON HJÁ ORKUVEITU REYKJAVÍKUR
Lestarmiði leiddi hann til konunnar
Útgjöldin
> Verð á harðfiski í nóvember hvers árs.
Danska flugfélagið Sterling lætur börn
greiða fullt verð fyrir flugmiðann, að
sögn norska dagblaðsins Aften-
posten. Þegar flugmiði er keyptur á
netinu á sterling.com þarf greiðand-
inn að gefa upplýsingar um það hvort
barnið sé undir tólf ára aldri eða ekki
en greiða þarf fullorðinsverð fyrir
miðann.
Aftenposten segir að reglan sé sú
að öll börn yfir tveggja ára aldri greiði
fullorðinsverð hjá Sterling, Ryanair og
Easyjet.
Michael T. Hansen, yfirmaður
hjá Sterling, segir að Sterling skipti
farþegunum í fullorðins- og barna-
hóp af öryggisástæðum. „Við biðjum
fólk að gefa upplýsingar um börn á
aldrinum 2-11 ára af því að þau eru of
ung til að sitja við neyðarútganga. Við
veitum barnaafslátt, til dæmis þegar
við förum í auglýsingaherferðir, en
annars gefum við ekki barnaafslátt,“
segir hann.
■ Flugverð
Fullorðinsverð fyrir
börn hjá Sterling
Í lok febrúar lögðu þrettán þingmenn allra
flokka á Alþingi fram þingsályktunartillögu
þar sem sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra
er falið að hefja undirbúning að setningu
reglna um hámarksmagn transfitusýra í
matvælum. Vilja þingmennirnir að hámarkið
verði tvö grömm í hverjum hundrað grömmum
af fitumagni vörunnar, sem er sambærilegt við
það sem gildir í Danmörku.
Í greinargerð sem fylgir ályktuninni segir að
neysla á transfitusýrum auki líkur á hjarta- og
æðasjúkdómum mun meira en neysla á
mettaðri fitu, sem þó er vel þekktur áhættu-
valdur fyrir slíka sjúkdóma. Þá eykur neysla
transfitusýra hættu á offitu og sykursýki 2.
Elva Gísladóttir, verkefnisstjóri næringar
hjá Lýðheilsustöð, segir að til séu tvenns konar
transfitusýrur. Annars vegar séu þær sem
myndist á náttúrulegan hátt í vömb jórturdýra.
Hins vegar myndist transfitusýrur þegar olía
sé hert en hörð fita er notuð til að matvæli fái
ákveðna eiginleika eins og til dæmis aukið
geymsluþol.
Meðal vara sem mögulega innihalda
transfitusýrur eru smjörlíki, steikingarfeiti,
kökur, kex og franskar kartöflur, auk
djúpsteikts skyndimatar, örbylgjupopps,
snakks og sælgætis. Elva segir það val
framleiðenda hvort þeir noti slíkar vörur,
þar sem til sé steikingarfeiti og smjörlíki
sem innihaldi ekki transfitusýrur. „Það er
alls ekki þannig að það þurfi að taka þessar
vörur af markaði,“ segir Elva. „Það skiptir
máli hvað er notað í staðinn, til dæmis olía
þó það sé skárri kostur að það sé mettuð fita
en transfitusýra.“
Elva segir tvær leiðir mögulegar. Annars
vegar að fara sömu leið og Danir en þá þurfi
að fræða framleiðendur og efla eftirlit.
Eftirlit með merkingum á vöru er í dag í
höndum heilbrigðisnefnda sveitarfélaga. Hin
leiðin sé að fræða neytendur með næringar-
gildismerkingum, sem kosti líka fé. „Það
skiptir máli að svona löggjöf fylgi fé til
eftirlits og fræðslu.“
- ovd
Segir það skipta máli að löggjöf um minna magn transfitusýra í mat á Íslandi fylgi fé til eftirlits og fræðslu:
Vilja minnka herta fitu í mat á Íslandi
OF MIKIÐ AF HERTRI FITU Íslendingar neyta 3,5
gramma af hertri fitu á dag í stað 2 gramma sem
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir æskilega
hámarksneyslu.
„Ef maður leigir með vini sínum getur
uppvask og þvottur
gleymst en við þessu
er gott ráð,“ segir Atli
Fannar Bjarkason
blaðamaður. „Gott er
að ýta undir að vinurinn
verði blankur frekar
snemma í mánuðinum,
til dæmis með því að hvetja hann til
að kaupa alls kyns óþarfa. Svo þegar
hann er að farast úr hungri dæsir
maður yfir óhreina tauinu og býður
meðleigjandanum að þvo og vaska
upp gegn því að þú splæsir máltíð á
veitingastað. Þannig er maður búinn
að láta meðleigjandann vinna í þrjá til
fjóra tíma fyrir svona tvö þúsund kall,
svart. Glatað tímakaup fyrir hann og
þú stendur uppi sem sigurvegari.“
GÓÐ HÚSRÁÐ:
LÁTIÐ VININN VINNA
FYRIR LÉLEGT KAUP
3.100 kr.
3.692 kr.
4.184 kr.
4.777 kr.
4.515 kr.
5.474 kr.
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
U
TI
4
12
62
0
2.
20
08
Höfum opnað nýja og stórglæ
Komið á frábæra opnunarhátíð um helgina.
Fjöldi opnunartilboða, vörukynningar
frá Adidas, Nike og Asics.
Kristall Plús að drekka og blöðrur fyrir börnin.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Opið:
Fim. 11-21
Fös. 11-18
Lau. 10-18
Sun. 13-18