Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 94

Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 94
58 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÁRÉTT 2. blöðru 6. kusk 8. svörður 9. upphrópun 11. skóli 12. gjamma 14. leiftur 16. utan 17. neðan 18. óðagot 20. forfaðir 21. fimur. LÓÐRÉTT 1. hjartaáfall 3. hljóm 4. lófalestur 5. sarg 7. lausbeislaður 10. einkar 13. efni 15. togvinda 16. upphrópun 19. þurrka út. LAUSN LÁRÉTT: 2. bólu, 6. ló, 8. mór, 9. aha, 11. fg, 12. gelta, 14. flass, 16. út, 17. upp, 18. fum, 20. ái, 21. frár. LÓÐRÉTT: 1. slag, 3. óm, 4. lófaspá, 5. urg, 7. óheftur, 10. all, 13. tau, 15. spil, 16. úff, 19. má. „Ég hélt fyrst að þetta væri eitt- hvert grín. Mjög skrýtið en já, jafn- réttisnefnd Háskóla Íslands var að senda okkur einhvers konar ávít- ur,“ segir Pálmar Pétursson, laga- nemi og ritstjóri Gríms Geitskós. Grímur Geitskór - tímarit laga- nema, á sér langa útgáfusögu en þar er fjallað um ýmislegt á léttum nótum – skotið á mann og annan. Nýlegt tölublað fór illa í jafnréttis- ráð HÍ þó samkvæmt Pálmari sé það mildara en oft áður. Var það ekki síst auglýsing frá Goldfinger sem fór fyrir brjóstið á nefndar- mönnum sem auk þess höfðu eitt og annað við efni blaðsins að athuga. Pálmar furðar sig á verk- lagi nefndarinnar því hann var ekki kallaður fyrir heldur fékk til- kynningu frá forseta lagadeildar þess efnis að verið væri að taka blaðið fyrir. Svo barst honum bókun í pósti. „Þetta er mjög vafa- söm og illa rökstudd bókun. Vitnað af handahófi í einhverjar greinar um stefnu jafnréttisráðs og mis- munun og vísað óljóst til efnis blaðsins. Og svo fór þessi auglýs- ing frá Goldfinger í taugarnar á þeim,“ segir Pálmar. Bókunin er harðorð og tekur fullt tillit til kvartana sem henni hafa borist en í Grími geitskó á að gæta bæði kvenfyrirlitningar og gæta ýmissa fordóma. Telur nefnd- in orðræðu tímaristins hvorki í samræmi við siðareglur HÍ né stefnu skólans gegn mismunun. Nefndin harmar útgáfu slíks efnis sem sé nemendum til minnkunar og til þess fallið að varpa skugga á orðstír skólans. Nýráðinn jafnréttisfulltrúi Háskóla Íslands er Arnar Gíslason og hann skrifar undir bókunina fyrir hönd nefndarinnar. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir tókst ekki að ná tali af Arnari í gær né svar- aði hann skilaboðum. En stærsti súlukóngur norðan alpa var til við- tals. „Ég hef mikil not fyrir lögfræð- inga. Og býst allt eins við því að svo verði í náinni framtíð,“ segir Ásgeir Davíðsson, eða Geiri á Gold- finger. Hann segist alltaf hafa keypt auglýsingu af þeim Órator- mönnum, félagi laganema, allt frá þeim dögum þegar hann rak Næt- urgrillið á sínum tíma. „Alltaf aug- lýst: Hafnarkrá, Skipperinn, Max- íms og nú Goldfinger þar sem er náttúrlega full starfsemi,“ segir Geiri sem furðar sig á því að aug- lýsing frá sér skuli nú gera allt vit- laust í akademíunni. En það sé lík- lega tímanna tákn. jakob@frettabladid.is PÁLMAR PÉTURSSON RITSTJÓRI: VAFASÖM OG ILLA RÖKSTUDD BÓKUN Tímarit laganema sagt varpa skugga á orðstír Háskólans PÁLMAR PÉTURSSON Tímarit laganema er sakað um að boða kvenfyrirlitningu og að þar gæti ýmissa fordóma. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Jens Kr. Guðmundsson hefur undanfarið staðið fyrir ýmsum lesendakönnunum á bloggsíðu sinni. Í nýjustu könnuninni er spurt „Hvert er besta íslenska hljómsveitarnafn- ið?“ Könnun Jens er hávísindaleg og hann byrjaði á því að óska eftir tillögum frá lesendum. Viðbrögð voru góð og Jens tók saman lista yfir þau fimmtán nöfn sem fengu flestar tilnefningar. Nú hafa rúmlega 400 manns kosið. „Spilverk þjóðanna“ hefur tekið afgerandi forystu með 18,4 prósent atkvæða. „Kamarorghest- arnir“ eru í öðru sæti með tólf prósent, svo kemur „Unun“ með 9,6 prósent og Purrkur Pillnikk með 8,3 prósent atkvæða. „Þessi staða kemur mér ekkert á óvart, enda er þetta óviðjafnanlega stórt nafn fyrir litla hljómsveit og lágværa,“ segir Valgeir Guðjónsson, einn Spilverksmanna. Bandið varð til í MH og kom fyrst fram undir þessu nafni árið 1972. Áður höfðu nöfn eins og „Hassanssmjör“, „Egils appelsín“ og „Hljómsveit Árna Vilhjálmssonar“ verið mátuð við tríóið. „Við vorum þrír að velta nafni sveitarinnar á milli okkar,“ segir Valgeir. „Spilverk kom fyrst. Bjólan fór í orðabók og komst að því að spilverk getur þýtt grindverk á milli bása í fjósi. Okkur fannst það ekkert verra. Þjóðanna bættist svo við. Okkur fannst það fyndið og lýsa geigvænlegum skorti á minnimáttar- kennd. Það var lókal húmor hjá okkur að bæta þriðja n-inu við ákveðinn greini fleirtölu nafnorða svo nafnið var alltaf skrifað Spilverk þjóðannna í byrjun.“ - glh „Spilverk þjóðanna“ besta hljómsveitarnafnið „Hann les eins og engill. Og er eldhress,“ segir Hafþór Ragnarsson, tæknimaður hjá Blindrabóka- safninu. Þar er nú unnið hörðum höndum við að ljúka fyrsta áfanga á upp- lestri Biblíunnar, hinnar nýju þýðingar sem kom út fyrir síðustu jól hjá JPV forlagi. Meðal þeirra sem lesa biblíuna til hljóðritun- ar er Sigurbjörn Einarsson biskup. Hann er kominn vel á tíræðisaldurinn, fæddur árið 1911, en að sögn Hafþórs er ekki að sjá að elli kerling sé að ná á honum völdum heldur leikur Sigurbjörn við hvurn sinn fingur. Fréttablaðið hefur greint frá væringum Félags íslenskra leikara og JPV vegna launa sem í boði eru fyrir upplesturinn sem var krónur 5.000 á klukku- stund miðað við innlesið efni. Samkvæmt upplýsing- um frá forlaginu er þetta á misskilningi byggt en þar töldu þeir að þessi væri hinn opinberi taxti sem unnið væri eftir á safninu en ekki einhvers konar gjafataxti. Hafþór bendir á að því fari fjarri að um illdeilur sé að ræða milli safnsins og JPV heldur ráði þar kristilegur náungakærleikur. Aðrir þeir sem lesa Biblíuna fyrir tæknilið Blindrabókasafnsins eru sonur Sigurbjarnar, herra Karl Sigurbjörnsson biskup. Auk þeirra feðga les Guðrún Ásmundsdóttir leikkona einnig inn texta, Þórunn Hjartardóttir sem og faðir hennar, hinn prestlærði Hjörtur Pálsson. Og þá munar líklega um rödd útvarpsmannsins Ævars Kjartanssonar sem einnig les. Í þessari lotu verður lokið við að taka upp lestur Nýja testamentisins og er skammt í land með að það náist. Að sögn Hafþórs er um eitt viðamesta verkefni safnsins að ræða, það að taka upp Biblíuna. Og þá muni um að hafa andrúmsloftið í lagi. „Hér í hljóðveri er notalegt andrúmsloft þessa dagana. Allt á kristilegum nótum.“ - jbg Biskupar og feðgar í hljóðveri SIGURBJÖRN BISKUP Að verða hundrað ára og lætur sig ekki muna um að lesa Biblíuna inn til hljóðritunar. Á ÆFINGU FYRIR RÚMLEGA 30 ÁRUM „Spilverk þjóð- anna“ þykir besta nafnið. VALGEIR GUÐJÓNSSON Niðurstaðan kemur ekkert á óvart. GAMLA MYNDIN „Þetta er bara rétt eftir að Stöð 2 fór í loftið. Þessi múndering er það sem við köllum mjög „eitís“. Það er gaman að sjá þetta fara í hring og koma aftur, þótt það séu helst ungu stelpurnar sem draga þetta fram. Ég gæti hins vegar alveg notað leðurpilsið og stígvélin í dag.“ Valgerður Matthíasdóttir fjölmiðlakona. Myndin er tekin í nóvember 1986. Steingrímur Her- mannsson, fyrrver- andi forsætisráðherra, stóð í ströngu nú í vikunni við að hengja upp sýningu konu sinnar Eddu Guðmunds- dóttur. Þau hjónin eru þá á leið með alla stórfjölskylduna á skíði til Austurríkis. Og gott betur því ævisagnaritari Steingríms og hans fjölskylda verða með í för. En ævi- sagnaritari Stein- gríms er enginn annar en fyrrverandi borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson. Laddi er nýlega kominn heim frá Lúxemborg þar sem hann skemmti, ásamt félögum sínum Steini Ármanni og Hirti Howser, á þorrablóti. Nú er farið að sjá fyrir endann á einhverri farsæl- ustu leiksýningu síðari ára, Laddi 6-tugur, en hundraðasta sýningin nálgast. Hún verður á miðvikudag 30. apríl og lofar plöggarinn Ísleifur Þórhalls- son flugeldasýningu, leynigestum og látum. Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir er ókrýnd drottning Bókamarkaðar- ins í Perlunni. Matreiðslubækur hennar, Í matinn er þetta helst og Seinni réttir, hafa hreinlega mokast út og eru ein mest selda varan. Annars er almennt mikil eftirspurn eftir matreiðslubókum á markaðnum en mjög fáar í boði. - jbg/glh FRÉTTIR AF FÓLKI ...alla daga t... r. ir Allt sem þú þarft... F é bl ðið l d bl ð l d i FÖSTUDAGUR 8. FEBRÚAR 200 8 FYLGIRIT FRÉT TABLAÐSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.