Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 32
[ ]Sólgleraugun er um að gera að draga fram núna þar sem sólin er farin að sýna sig. Til dæmis eru þau nauðsyn-leg við aksturinn.
Það var á heitum degi í Flórída síðast-
liðið haust að unnusti Línu Ívarsdóttur
bar upp bónorð og uppskar já sem stað-
fest verður frammi fyrir guði og mönnum
í júní. Með bónorðinu kviknaði draumur
þriggja systra sem nýlega varð að veru-
leika í Brúðarkjólaleigu Línu & Lilju.
„Við vorum stödd í Miami þegar kærastinn bað
mín og í kjölfarið fórum við á brúðarkjólaleig-
ur vestra til að kíkja á kjóla, en það gerðum við
líka hér heima þegar til Íslands kom,“ segir
Lína sem alltaf hefur haft mikinn áhuga á tísku
og fannst vanta meira úrval brúðarkjóla og
fylgihluta að velja úr.
„Við systur vorum lengi búnar að hugsa
hvað við vildum gera við framtíðina og höfðum
oft setið saman á rökstólum, en ekki fundist
neitt koma til greina fyrr en hugmyndinni að
brúðarkjólaleigunni laust niður. Við Lilja tví-
burasystir mín stöndum vaktina í búðinni en
Jóna stóra systir sér um bókhald og breytingar
á kjólum, enda afbragðs saumakona,“ segir
Lína um þær samrýndu systur sem þríeykið í
Brúðakjólaleigu Línu & Lilju er.
„Við erum með yfir sextíu nýja brúðarkjóla
til leigu og sölu, en þeir eru allir frá Bretlandi
og Bandaríkjunum og margir eftir fræga
brúðarkjólahönnuði. Langflestar leigja
sér brúðarkjól, en verð á þeim til
kaups út úr búð er frá 120 þús-
undum upp í hálfa milljón, en
sá dýrasti er sérhannaður,
alskreyttur steinum og perlum.
Í tísku er öll breidd af brúðar-
kjólum, þótt látlausir og lítt
skreyttir kjólar séu enn algeng-
astir, með litlum slóða. Íburðar-
miklir kjólar eru að vinna á og ég
sjálf er rosalega mikið fyrir þá,“
segir Lína sem gengur upp að altar-
inu með sínum heittelskaða í júní.
„Eins og ég horfi á þetta er brúð-
kaupsdagurinn sá eini þar sem kona
getur verið eins og drottning og af
hverju ekki að nýta sér það? Það
gefast næg tilefni seinna á lífsleið-
inni til að skarta látlausari kjólum,
eins og á árshátíðum og öðru sem
á dagana drífur,“ segir Lína af
skynsemi og finnur vel fyrir
tíðum brúðkaupum Íslendinga
sem aldrei hafa verið fleiri.
„Viðtökur hafa verið stór-
kostlegar og óhætt að segja að
við stöndum hér stoltar, enda
aðstaðan æðisleg og ekki síst
fyrir mátun. Við bjóðum upp
á sveigjanlegan mátunar-
tíma á kvöldin og um helg-
ar og erum með úrval
skarts, fylgihluta, borð-
skrauts, brúðarmeyja-
kjóla og senn brúðar-
klæði fyrir herra líka,
auk árshátíðarkjóla og
keppniskjóla fyrir feg-
urðarsamkeppnir.“
Sjá nánar á www.
brudarkjolaleigan.
is.
thordis@frettabladid.is
Drottning í einn dag
Systurnar samrýndu: Jóna og eineggja tvíburarnir Lína og Lilja í Brúðarkjólaleigu Línu & Lilju á Stórhöfða 17. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Guðdómlegir brúðarskór, kórónur, gestabækur,
sápukúlur, hringapúðar, polaroid-myndavélar,
skartgripir og hvers kyns fylgihlutir og brúðarskart
er í fádæma flottu úrvali hjá Brúðarkjólaleigu Línu
& Lilju.
Látlaus og undur-
fagur brúðarkjóll
með litlum slóða
eftir Ronald
Joyce.
s: 557 2010