Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 6. mars 2008 3
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Litir, silki, svartir skór
Það virðist hefð á tískusýningum að þær byrja aldrei á réttum
tíma. Það átti svo sannarlega við á sýningu tískuhúss Christians
Lacroix síðastliðinn fimmtudag. Eins og sannur norrænn maður
mætti ég rétt fyrir uppgefinn tíma en þegar ég kom inn í tæplega
hálf fullan salinn þar sem verið var að ryksuga teppið á sýning-
arpallinum varð mér ljóst að sýningin myndi verða á eftir áætl-
un. 45 mínútum seinna var allt komið á sinn stað, meira að segja
Anne Wintour (Djöfullinn klæðist Prada) sem mætti í fyrsta
skiptið í mjög langan tíma á sýningu Lacroix á fjöldaframleiðslu-
línunni „prêt-à-porter“. Kannski var það þess vegna sem amer-
íska tískupressan var mjög jákvæð í garð Lacroix, Wintour legg-
ur línurnar, hinir blaðamennirnir fylgja svo á eftir.
Nú eru liðin tvö ár síðan tískuhús Christians Lacroix var selt
frá LVMH-lúxussamsteypunni til Falic-bræðranna bandarísku.
Síðan hafa verið gerðar miklar breytingar á starfsemi tískuhúss-
ins, meðal annars á fjöldaframleiðslunni. Lacroix hefur sömu-
leiðis blómstrað í hátískunni sem aldrei fyrr með endurheimtu
hönnunarfrelsi. Tískuhúsið hætti framleiðslu á ódýrari tískulín-
um eins og gallabuxum og bolum sem rýrðu gildi þess. Nú vill
tískuhúsið auka gæði framleiðslunnar, vinna að ímynd tískuhúss-
ins og um leið hækkar verðið. Það er reyndar eins og gerist víðar
um þessar mundir og er hægt að tala um nýja hönnun sem er
kölluð prêt à couture, á milli hátísku og fjöldaframleiðslu (prêt-
à-porter). Nú er lögð meiri vinna í hönnunina, smáatriði verða
miklu mikilvægari, til dæmis útsaumur, ísaumaðar pallíettur og
strútsfjaðrir. Einnig sambland fleiri efna í sömu flíkinni eins og
silki og prjónaefni eða satínborðar á ullarefni. Þessa þróun mátti
augljóslega sjá á sýningunni á dögunum sem var litrík eins og við
var að búast.
Lacroix er oft líkt við listamann og gæti hæglega verið málari
eða leikmyndahönnuður eins og hann vildi ungur verða. Þetta
mátti sjá á handmálaða efninu sem var notað í kápu og kjól.
Sömuleiðis munstur á sléttflaueli sem minnir á steinda kirkju-
glugga. Einnig mátti sjá ótrúlegan leðurfrakka og jakka úr gylltu
leðri með útsaumi í barokkstíl. Kjólar og kápur eru úr þykku, líkt
og vatteruðu efni með gljáandi áferð eða með blúndum sem ull-
arþræðir eru þræddir í. Í lokin varð það svo hertogaynju-silk-
isatín sem með yfirstærðarslaufum eða fellingum í fúksíubleiku,
bláberjalit, anísgulu og pelargoníurauðu sem lokuðu sýningunni.
Helst mátti finna að því hversu stutt hún var og skildi hún áhorf-
endur eftir í lausu lofti.
bergb75@free.fr
Magnað
augnablik
OFT TENGJAST MINNINGAR UM
ÓGLEYMANLEG AUGNABLIK
ÁKVEÐNUM ILMI.
L´Instant Magic er skógarblóma-
ilmur. Ilmur af bergamot, rósum,
fresíum og hvítum musk í bland
við möndlur, sedrusvið og sandal-
við. Kvenleikinn uppmálaður.
Gydja.is
LEIÐRÉTTING Á SLÓÐ Á VEF-
VERSLUN
Þau mistök áttu sér stað á tísku-
síðu Fréttablaðsins síðastliðinn
þriðjudag að vefverslun Sigrún-
ar Lilju Guðjónsdóttur hönnuð-
ar var ranglega nefnd. Hún heit-
ir www.gydja.is og leiðréttist það
hér með.
LÉTT BYL
GJUNNAR
VERÐUR H
ALDIÐ Í S
MÁRALIN
D 12. MA
RS 2008
www.lettbylgjan.is