Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 2
2 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR Valgerður, verður þú ekki kom- in á eftirlaun áður en þessu verður breytt? „Ég er voða hrædd um það.“ Þingmenn allra flokka furða sig á að alls- herjarnefnd hafi ekki fjallað um frumvarp um afnám eftirlaunalaga ráðamanna. Valgerður Bjarnadóttir lagði frumvarpið fram í október. Nóatún mælir með 598 kr.kg. noatun.is LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ Gott á fimmtudegi Ungnautahakk SPRENGI VERÐ! LÖGREGLUMÁL Ungmenni undir lögaldri afgreiddu bæði og seldu áfengi á tveimur stórhátíðum í hafnfirskum íþróttahúsum á síð- ustu vikum. „Þetta viljum við ekki hafa og þessu ætlum við að breyta,“ segir Geir Bjarnason, forvarnarfull- trúi Hafnarfjarðarbæjar. Fyrra tilfellið sem um ræðir var árlegt og opið þorrablót á vegum FH í byrjun febrúar í íþróttahúsi félagsins í Kapla- krika. Þar brást dyravarsla að sögn Geirs. „Það voru meðlimir úr forvarn- arnefnd bæjarins á staðnum sem sáu krakka sem þeir þekkja sjálf- ir. Þetta voru krakkar sem fædd- ir eru 1991 og fengu afgreiðslu á barnum,“ segir Geir, sem telur algerlega ólíðandi að sextán og sautján ára ungl- ingar séu á vín- veitingaskemmt- unum í íþróttahúsum bæjarins. Á árshátíð sjálfs Hafnar- fjarðarbæjar í íþróttahúsi Hauka á Ásvöll- um á laugardag- inn hafði að minnsta kosti einn barþjónninn að sögn Geirs ekki aldur til að afgreiða áfengi. Haukar lögðu starfsfólkið til. „Það er staðfest að á Ásvöllum var sautján ára stúlka að vinna á barnum og önnur jafngömul var í fatahenginu. Við hjá Hafnar- fjarðarbæ viljum að starfsfólkið á árshátíðinni sé allt orðið átján ára og helst tuttugu ára. Það má nefna að um hundrað starfsmenn bæjarins fengu ekki aðgang að hátíðinni vegna þess að þeir voru ekki orðnir tvítugir,“ segir Geir. Bæði fjölskylduráð Hafnar- fjarðar og forvarnarnefnd bæj- arins hafa nú ítrekað fyrri bókan- ir sínar frá í nóvember vegna vínveitingaskemmtana í íþrótta- húsunum með opinn aðgang fyrir almenning. Nefndirnar vilja að vínveitingaleyfi séu aðeins veitt í þessum húsum vegna árshátíðar eða skemmtana eigenda þeirra eða vegna leigu undir lokuð einkasamkvæmi. Þrátt fyrir þessa skýru stefnu Hafnarfjarð- arbæjar gerði bæjarlögmaður að sögn Geirs engar athugasemdir þegar sýslumaður bar undir hann hvort veita ætti FH-ingum slíkt leyfi. „Þetta er ekki nógu gott hjá okkur,“ segir Geir, sem kveður viðræður hafnar við fulltrúa FH og Hauka um að stefnu bæjarins verði fylgt. „Svona mál vinnast bara í samvinnu. Þetta eru börnin okkar og íþróttafélögin okkar og við ætlum að gera betur.“ gar@frettabladid.is Börn kaupa og selja áfengi í Hafnarfirði Sautján ára stúlka afgreiddi gesti á árshátíð Hafnarfjarðarbæjar í Haukahúsinu og sextán ára gestir á þorrablóti FH í Kaplakrika gátu keypt áfengi á barnum þar. Forvarnarfulltrúi bæjarins segir nú rætt við íþróttafélögin um breytingar. GEIR BJARNASON Forvarnarfulltrúi Hafnarfjarðar. ÁRSHÁTÍÐ HAFNARFJARÐARBÆJAR Um hundrað starfsmenn sem eru undir tvítugu fengu ekki aðgang að árshátíð Hafnarfjarðarbæjar en innandyra afgreiddi sautján ára stúlka gesti á barnum. MYND/FJARÐARPÓSTURINN LÖGREGLUMÁL Mikið magn af am fetamíni, tugir mogadon- og ritalíntaflna, svo og sprautur og nálar, fundust á Litla-Hrauni við eftirlit í gær. Efnin og sprauturn- ar fundust á tveimur gestum sem ætluðu að heimsækja fanga í fang- elsinu. Við leitina var notaður fíkniefnahundur auk þess sem lög- reglan á Selfossi var kölluð á stað- inn. „Við höfum undanfarið unnið að því að draga úr eiturlyfjaneyslu inni í fangelsinu,“ segir Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður á Litla-Hrauni. „Það er öllum ljóst að töluvert hefur verið um hana. Við höfum því verið með aðgerðir inni í fangelsinu auk þess sem við höfum hert allt eftirlit við komu heimsóknargesta. Fíkniefnahundurinn okkar, hann Moli, var á ferðinni að þessu sinni, ásamt sínum ágæta þjálfara. Afraksturinn var þetta mikla magn fíkniefna og neyslutóla. Þennan árangur má fyrst og fremst þakka að við höfum fíkni- efnahund á Litla-Hrauni og góðan þjálfara með honum. Þetta er sam- stillt átak allra starfsmanna á staðnum, með góðri aðstoð lög- reglunnar á Selfossi, auk þess sem margir fangar vilja að það dragi úr þessari neyslu.“ „Þetta er frábær árangur hjá starfsfólki Litla-Hrauns,“ sagði Páll Winkel fangelsismálastjóri. „Hann ber merki um hve fagleg vinnubrögð eru viðhöfð þar.“ - jss MARGRÉT FRÍMANNSDÓTTIR Forstöðu- maður Litla-Hrauns segir aðgerðir gegn fíkniefnaneyslu fanga hertar. Fíkniefnahundur merkti við tvo heimsóknargesti á Litla-Hrauni: Mikið magn fíkniefna tekið ALÞINGI Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, blandaði sér í umræðuna um gjaldmiðilsmálin á Alþingi í gær. Bjarni Harðarson Framsóknar- flokki spurði forsætisráðherra hvaða áform væru uppi innan for- sætisráðuneytisins í gjaldeyrismál- um. Vék hann að þrengingum í efnahagslífinu, sagði krónuna ekki gallalausa og bankana í erfiðri stöðu. Hann sagði einhliða upptöku evru ekki til umræðu en til væru aðrar lausnir, svo sem upptaka svissneska frankans eins og hann sjálfur hefði fjallað um í greinum í um eitt ár. Svar Geirs H. Haarde var stutt. „Ráðuneytið hefur ekki uppi áform um að beita sér fyrir því að breyta um gjaldmiðil,“ sagði Geir og bætti við: „En ég skal þó viðurkenna að ég hef ekki kynnt mér greinar Bjarna Harðarsonar undanfarið ár um þessi mál.“ Eftir að Jón Magn- ússon, Frjálslynda flokknum, hafði sagt núverandi ástand ómögulegt og Pétur Blöndal Sjálfstæðisflokki að við ættum að halda í krónuna tók Árni Johnsen til máls. „Hún er orðin mjög hvimleið þessi enda- lausa umræða um krónuna og evr- una og menn ættu nú að fara að sjá metnað sinn í að hætta þessu horn- grýtis kjaftæði,“ sagði Árni. Hann kvað Íslendinga eiga að leggja metnað sinn í að halda sjálfstæði, tungunni og krónunni. „Það er mergurinn málsins og þá skiptir máli að hafa vinnufrið fyrir önnur góð mál í þjóðfélaginu án þess að bloggararnir í okkar umhverfi séu að blaðra út og suður.“ - bþs Árni Johnsen segir evruumræðuna hvimleiða og vill frið fyrir blaðrandi bloggurum: Hættum þessu horngrýtis kjaftæði LEIÐIST ÞÓFIÐ Árni Johnsen segir umræðuna um krónuna og evruna vera orðna hvimleiða. UTANRÍKISMÁL Íslensk stjórnvöld hafa formlega viðurkennt sjálfstæði Kosovo. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir utanríkisráð- herra tilkynnti Hashim Thaci, forsætisráðherra Kosovo, þetta bréflega í gærmorgun. Í bréfinu lagði Ingibjörg áherslu á að Kosovo sýndi í verki fulla virðingu fyrir mannréttindum og réttindum minnihlutahópa, eins og ríkið hefði skuldbundið sig til í sjálfstæðisyfirlýsingunni. Yfirvöld í Serbíu viðurkenna ekki aðskilnað Kosovo frá Serbíu. Ingibjörg tilkynnti serbneskum yfirvöldum ákvörð- un íslenskra stjórnvalda í gær. - bj Viðurkenna sjálfstæði Kosovo: Réttindi minni- hluta verði virt INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLA- DÓTTIR ALÞINGI Björn Bjarnason dóms- málaráðherra telur að kanna eigi til hlítar hvernig best yrði staðið að því að nýta rafræn eftirlits- kerfi til að framfylgja farbanni eða fullnustu refsinga. Siv Friðleifs- dóttir, Framsókn- arflokki, spurði ráðherra hvort hann teldi koma til greina að taka upp ökklabönd til að tryggja betur farbann grunaðra saka- manna. Í svari Björns kemur fram að ökklabönd hafi reynst vel, til dæmis í Bandaríkjunum, Bretlandi og Svíþjóð. Þau megi nýta við afplánun vægari refsinga og til að hafa eftirlit með kynferðisafbrotamönnum á reynslulausn. - bþs Björn Bjarnason um ökklabönd: Kanna ber raf- ræn eftirlitskerfi BJÖRN BJARNA- SON VIÐSKIPTI Áformað er að greiða fyrrum viðskiptavinum Sam- vinnutrygginga út þeirra hluti í lok maí. Yfir 50 þúsund einstakl- ingar og fyrirtæki ættu að fá bréf í lok mánaðarins með upplýsingar um eignir sínar. Fréttastofa Útvarps sagði frá þessu í gær. Samvinnutryggingar urðu nýverið að fjárfestingarfélaginu Gift. Þeir sem tryggðu hjá Samvinnutryggingum á árunum 1987 og 1988 verður úthlutað eignum í Gift í maí, gangi áætlanir eftir. Útvarpið hefur eftir formanni skiptanefndar Gift, að þeir sem fái hluti geti átt þá áfram í von um að gengi félagsins hækki. - bj Samvinnutryggingar greiða út: Eignir verða af- hentar í maí LÖGRGEGLUMÁL Tryggja á að svokallað þvagleggsmál endur- taki sig ekki með nýrri reglugerð sem samgönguráðherra hefur undirritað. Reglugerðin skýrir verklags- reglur vegna töku sýna þegar grunur leikur á að ekið hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Hér eftir skal þvagsýni ekki tekið ef beita má öðrum vægari úrræð- um. Breytingin er til komin til þess að koma í veg fyrir að atvik sem upp kom á Selfossi fyrir ári endurtaki sig. Þar var þvagsýni tekið úr konu með þvaglegg gegn hennar vilja á lögreglustöðinni. - bj Ný reglugerð um sýnatökur: Þvagleggsmál ekki endurtekið MENNTAMÁL Ákvörðun rektors Háskólans á Bifröst um að vísa þremur nemendum frá skólanum vegna fíkniefnamisferlis var staðfest á fundi háskólaráðs seinnipart dags í gær. Þetta staðfestir Bryndís Hlöðversdótt- ir, aðstoðarrektor skólans. Ágúst Einarsson, rektor háskólans, rak nemendurna þrjá úr skólanum eftir að fjölmennt lögreglulið leitaði í húsnæði þeirra fyrir síðustu helgi. Lítilræði af kannabisefnum, amfetamíni og kókaíni fannst hjá nemendunum. Ekki náðist í Ágúst við vinnslu fréttarinnar. - bj Fíkniefnamál á Bifröst: Þrír nemendur reknir úr skóla SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.