Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 42
6. MARS 2008 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● fermingar
Fermingarundirbúningurinn er
sjálfsagt langt á veg kominn á
heimilum þeirra landsmanna sem
láta ferma og þeir allra skipu-
lögðustu búnir að kaupa föt og
panta tíma í klippingu og greiðslu
fyrir fermingarbarnið. Salurinn,
skreytingarnar og veitingarnar
frágengnar og einhverjir með
fallega sálmabók í sigtinu.
Sálmabækur þurfa flest
fermingarbörn að eiga, að
minnsta kosti þau sem stað-
festa trú sína í kirkju.
Sálmabækurnar fást bæði
í svörtu og hvítu, annað hvort
með eða án áletrunar. Þær má
nálgast á ýmsum stöðum, þar á
meðal í Kirkjuhúsinu, Blóma-
vali og í Garðheimum, þar sem
stykkið kostar frá 1.740 krón-
um og upp úr. Borga þarf auka-
lega fyrir áletrun í sálmabæk-
urnar, en löng hefð er fyrir því
að annað hvort nafn fermingar-
barnsins eða valin orð úr bæn
eða sálmi séu letruð á þær.
- mmr
Byggir á gamalli hefð
Sálmabækur fást í hvítu og svörtu. Hægt er að fá áletrun á bækurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
41
32
7
02
/0
8
North Face Aleutian
svefnpoki
Þægilegur að -2C°
Mesta kuldaþol -19C°
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Fermingartilboð
9.990 kr.
Verð áður 12.990 kr.
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Fermingardagurinn er yndis-
legur í allri sinni dýrð. Merkis-
dagur í lífi barns og fjölskyldu
þess, og ekkert til sparað í
gleði, hátíðleika, veislu og feg-
urð. Þetta veit María Másdóttir
listfræðingur, blómaskreytir
og eigandi Blómahönnunar í
Listhúsinu í Laugardal, en hún
á heiðurinn að fallegum ferm-
ingarskreytingum sem sjást
hér á myndum.
„Mér finnst svo ánægjulegt hve
margir foreldrar koma með ferm-
ingarbörn sín til okkar og hve
ákveðnar skoðanir unglingarnir
hafa á því hvernig þeir vilja hafa
veisluumgjörð fermingardags
síns,“ segir María þar sem hún
leggur lokahönd á fallega borð-
skreytingu með grænum orkíd-
eum.
„Orkídeur eru vinsælar til
skreytinga nú og notadrjúgar því
af einu blómi má klippa niður blóm
og lauf í mismunandi skreytingar.
Þannig má setja hluta blómanna í
vasa á veisluborðið og annan hluta
í litla blómakubba á gestabókar-
borðið, eða ofan í kertaluktir til
skrauts með fermingarkertinu,“
segir María, sem í fórum sínum á
glitrandi og litríkar glimmer kúlur
sem unglingarnir heillast mjög af.
„Það má segja að strákarnir
vilji síst bleikan lit í sínar skreyt-
ingar, en annars séu þeir opnir
fyrir breiðu litavali og þar á meðal
rauðu. Stelpurnar eru meira fyrir
þema og vita upp á hár hvað þær
vilja, um leið og þær eru opnar
fyrir öllum litum og nýjungum,“
segir María samtímis því að hún
setur kristilegt kerti ofan í fallega
kertalukt.
„Við lánum blómavasa, kerta-
luktir og annað undirlag í fallegu
úrvali, þannig að blóm, kerti og
skrautkúlur eru það eina sem
keypt er. Það nýtur aukinna vin-
sælda því oft liggur mikill pen-
ingur í slíkum munum sem svo
detta úr tísku og fólk situr uppi
með í stórum stíl. Kostnaður við
gerð fermingarskreytinga er því
miklu lægri en áður var, og þótt
tíska í skreytingum sé nú fremur
látlaus, er hún samt mjög ákveð-
in yfirlýsing með glamúr og feg-
urð.“ - þlg
Unglingar vita hvað þeir vilja
Bleikar orkídeur í glærum vasa sem einnig nýtast í lítinn blómakubb og fallegt ferm-
ingarkerti í glitrandi steinum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Dásamleg kertaskreyting fyrir fermingar-
drenginn í fallegri lukt með hvítri rós
og hvítum perlum, ásamt silfruðum og
bláum glimmerkúlum.
Bleikar orkídeur með perluskrauti í
litlum vasa á gestabókarborðið.
Hluti smáatriða í skvísulegri kerta-
skreytingu fyrir fermingarstúlkuna með
bleikum og silfruðum glimmerkúlum og
bleikum orkídeum.
Grænar orkídeur falla að smekk beggja
kynja og fallegt að sjá litlar blómakúlur
fljóta um í stóra vasanum.