Fréttablaðið - 06.03.2008, Blaðsíða 12
6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
Hluthafafundur í Landic Property hf. verður haldinn
föstudaginn 14. mars 2008 kl. 11.00 á starfsstöð
félagsins í Kringlunni 4–12, í Reykjavík.
DAGSKRÁ:
1. Breytingar á samþykktum félagsins:
Tillaga er lögð fram um breytingu á grein 2.1. þannig að hluthafafundur
félagsins heimili stjórn lántöku og útgáfu skuldabréfa með breytirétti fyrir
allt að fjárhæð 1.383.116.455 kr. (eða samsvarandi fjárhæð í evrum taki
stjórnin ákvörðun um að nýta sér framangreinda heimild til að skrá
hlutafé félagsins í evrum) til að mæta kaupum á hlutum í fasteigna-
félögum og -sjóðum og skuldbindingum þeim tengdum samkvæmt
kaupsamningi, dags. 13. febrúar 2008. Muni breytirétturinn verða virkur
skv. eftirfarandi: Frá 13. febrúar 2010 um allt að 376.884.702 kr. á genginu
14,0, frá 13. febrúar 2011 um allt að 351.903.548 kr. til viðbótar á genginu
14,7, frá 13. febrúar 2012 um allt að 335.146.237 kr. til viðbótar á genginu
15,435 og frá 13. febrúar 2013 um allt að 319.181.968 kr. til viðbótar á
genginu 16,207. Lagt er til að hluthafar falli frá forgangsrétti sínum til
áskriftar að hinu nýja hlutafé. Heimild þessi skuli gilda fram til 13. febrúar
2013, en falla þá niður að því leyti sem hún hafi ekki verið nýtt.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Framangreindar tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins til frekari
kynningar fyrir hluthafa.
Stjórn Landic Property hf.
HLUTHAFAFUNDUR
Í LANDIC PROPERTY HF.
HEKLA vélasvið
Klettagörðum 8-10, Sími 590 5000, www.hekla.is, velasvid@hekla.is.
Opið 9-19 fimmtudag og föstudag og 12-18 laugardag
Tilboðsverð í dag:
3.200.000 + vsk
Ein af tilboðsvélum dagsins
KOMATSU WA380
Árgerð 1998, ekin 9.500 tíma.
Á GÓÐUM NOTUÐUM TÆKJUM
HJÁ VÉLASVIÐI HEKLU
ERU SAMNINGADAGAR
NÚ
T
B
W
A
\R
E
Y
K
JA
V
ÍK
\
S
ÍA
BANDARÍKIN, AP Hillary Clinton gaf
í gær í skyn að þau Barack Obama
gætu tekið þá ákvörðun að bjóða
sig fram saman, þannig að annað
þeirra yrði varaforsetaefni en hitt
forsetaefni.
„Það getur verið að þetta stefni
þangað. En fyrst verðum við að
ákveða hvort verður efst á seðlin-
um. Ég tel að íbúar í Ohio hafi
greinilega sagt að það eigi að vera
ég,“ sagði hún í sjónvarpi í gær
þegar hún var spurð út í þennan
möguleika.
Clinton vann sigur í þremur
ríkjum af fjórum í forkosningum
á þriðjudaginn. Hún fékk 54 pró-
sent atkvæða í Ohio, 51 prósent í
Texas og 58 prósent í Rhode Island,
en Obama sigraði með 60 prósent
atkvæða í Vermont.
Sigurinn í Ohio skiptir Clinton
verulegu máli því síðustu 44 ár
hefur það aldrei gerst að sigur-
vegari forsetakosninga hafi tapað
í forkosningum í Ohio. Munurinn á
milli þeirra er þó enn það mjór að
Clinton á engan veginn sigurinn
vísan.
„Við erum ennþá með óyfirstíg-
anlega forystu,“ sagði Obama á
þriðjudagskvöld og sagðist sann-
færður um sigur í forsetakosning-
unum í nóvember.
Reiknað er með að næstu vik-
urnar muni aukin harka færast í
baráttu þeirra, en síðustu prófkjör
Demókrataflokksins verða ekki
fyrr en í júní.
Á endanum verða það nærri 800
forystumenn flokksins sem ráða
úrslitum, því þeir ganga óbundnir
til atkvæða á landsþingi flokksins
í lok ágúst.
Deilur þeirra Obama og Clinton
næstu vikurnar koma sér afar vel
fyrir John McCain, sem á þriðju-
daginn tryggði sér meirihluta-
stuðning kjörmanna á landsþingi
Repúblikanaflokksins í haust,
þegar forsetaefni flokksins verð-
ur valið.
McCain getur nú styrkt stöðu
sína í rólegheitum meðan fram-
bjóðendur demókrata rífa hvort
annað niður. McCain hélt í gær á
fund George W. Bush forseta í
Hvíta húsinu og fékk stuðning
hans til framboðs af hálfu Rep-
úblikanaflokksins, en gæti þó
þurft að glíma við harða andstöðu
margra flokksfélaga sinna, eink-
um kristilegra hægrimanna sem
eiga erftt með að sætta sig við að
hann verði forsetaefni flokksins.
Þeir McCain og Bush deildu
hart í forkosningum Repúblikana-
flokksins fyrir forsetakosningarn-
ar árið 2000, og hafa iðulega verið
á öndverðum meiði í lykilmálum á
borð við fjármögnun kosningabar-
áttu, skattalækkanir, hlýnun jarð-
ar og pyntingar.
gudsteinn@frettabladid.is
Clinton og Obama
búa sig undir átök
John McCain nýtur þess að enn er mjótt á mununum milli Hillary Clinton og
Baracks Obama, sem þurfa að berjast hart næstu vikurnar.
HILLARY CLINTON Ánægð með sigurinn sem kom í veg fyrir að hún dytti strax út úr
kosningabaráttunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP