Fréttablaðið - 06.03.2008, Síða 4

Fréttablaðið - 06.03.2008, Síða 4
4 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR Komdu núna í Bílaland B&L og kynntu þér kostina Glæsilegt úrval lúxusbíla ALLIR INNFLUTTIR OG ÞJÓNUSTAÐIR AF UMBOÐI VEÐURSPÁ Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 6° 8° -1° 3° 5° 10° 8° 5° 4° 6° 10° 12° 4° 7° 21° 12° 25° 17° 3 Á MORGUN 10-15 m/s á Vestfjörðum annars mun hægari 18 ÞRIÐJUDAGUR 3-10 m/s -3 0 -3 -3 -3 2 1 5 1 -3 10 7 7 10 8 10 17 -2 -1 2 11 0 -1 2 10 10 12 18 STORMHVIÐUR SYÐRA Núna með morgninum verður hvöss suðaustan- og austanátt á suð- urhluta landsins og má búast við stormhviðum við fjöll. Síðan hvessir smám saman annars staðar en lægir að sama skapi suðvestan til. Snjókoma syðra með morgninum en síðar slydda og rigning. Fer að snjóa nyrðra í dag. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur EFNAHAGSMÁL Skuldir heimilanna við lánakerfið námu tæplega 1.552 milljörðum króna við lok síðasta árs, samkvæmt tölum frá Seðla- banka Íslands. Þetta er rúmlega sautján prósenta aukning frá árinu 2006, þegar skuldirnar námu um 1.323 milljörðum króna. Skuldirnar vaxa hraðar en hagkerfið, en þær voru um 122 prósent af vergri landsframleiðslu í árslok 2007. Í árslok 2006 var hlutfallið 114 prósent, og 90 prósent árið 2000, að því er fram kemur í morgunkornum Glitnis í gær. - bj Skuldir heimilanna aukast: Sautján prósenta aukning 2007 LÖGREGLUMÁL Karlmaður á þrítugsaldri var tekinn vegna vörslu á tugum gramma af fíkniefnum í fyrradag. Um var að ræða amfetamín, LSD, maríjúana og hass. Það voru lögreglumenn af höfuðborgarsvæðinu og Suður- nesjum sem unnu saman, en sam- starf þessara tveggja lögregluliða hefur farið mjög vaxandi. Húsleit var gerð á tveimur stöðum, í Hafnarfirði og á Suðurnesjum, í húsnæði sem maðurinn hafði til umráða. Talið er að fíkniefnin hafi verið ætluð til sölu. Maður- inn sat inni í fyrrinótt og var hann yfirheyrður í gær. - jss Karlmaður handtekinn: Tekinn með LSD og hass SVEITASTJÓRNARMÁL Ólafur F. Magnússon borgarstjóri brást reiður við spurningu Óskars Bergssonar, borgarfulltrúa Framsóknarflokksins, í fyrradag. Óskar spurði hvort það gæti veri að Ólöf Valdimarsdóttir, aðstoðar- kona Ólafs F., hefði veitt borginni ráðgjöf um að rífa ætti húsin við Laugaveg fjögur og sex. Ólafur sagði borgarstjórn setja niður við nærveru Óskars og sagði spurningarnar um aðstoðar- konu Ólafs F. „ósmekklegar.“ Óskar sagði fullt tilefni til þess að spyrja út í málið, ekki síst í ljósi þess að ef svo væri yki það ekki við níu prósent traust borgar- stjórnar, sem væri „sögulegt lágmark“. - mh Ólafur F. Magnússon: Ósáttur við nærveru Óskars BANDARÍKIN, AP Hæstiréttur í Kaliforníu tekur innan þriggja mánaða afstöðu til þess hvort samkynhneigðum skuli heimilað að ganga í hjónaband. Til þess þurfa dómarar hans að komast að niðurstöðu um hvernig skilgreina skuli hjónabandshugtakið. Málflutningur fór fram í gær í sex málum, sem komið hafa upp frá því dómstóllinn stöðvaði hjónavígslur samkynhneigðra í ríkinu árið 2004. Meira en 4.000 pör gengu í hjónaband þar veturinn 2004, en dómstóllinn ógilti þau öll. - gb Hæstiréttur í Kaliforníu: Mun skilgreina hjónabandið HITAMÁL Í KALIFORNÍU Meðan málflutn- ingur fór fram var efnt til mótmæla. FRÉTTABLAÐIÐ/AP BREIÐAVÍK „Mér finnst of mikil áhersla lögð á að leita að vondum mönnum sem komu að Breiðavík og vil fá að leiðrétta minn hlut,“ segir Kristján Sigurðsson, fyrrver- andi forstöðumaður á vistheimil- inu Breiðavík, um nýlega skýrslu nefndar sem kannaði starfsemi í Breiðavík á árunum 1952 til 1979. Kristján tók við sem forstöðu- maður árið 1955 og var þar í eitt ár. Hann segir að eitt af fyrstu verk- um sínum við komuna í Breiðavík hafa verið að rífa í burtu timbur- búr í kjallara hússins með aðstoð piltanna en í því sögðust drengirn- ir hafa verið lokaðir í refsingar- skyni. Róbert Spanó, formaður Breiðavíkurnefndarinnar, segist ekki geta tjáð sig efnislega um málefni einstakra starfsmanna en bendir á umfjöllun nefndarinnar um störf hans. Þar kemur meðal annars fram að vistmenn þess tíma segi að umönnun hafi almennt verið góð í tíð Kristjáns. Hins vegar kemur fram að í frásögn eins vistmannsins sé ekki hægt að greina hvort innilokun í klefanum hafi verið beitt í tíð Kristjáns eða þess forstöðumanns sem tók við af honum. Kristján telur að af lestri skýrslunnar geti skilist að grunur leiki á að hann hafi látið reisa klef- ann aftur þótt það sé af og frá. Í frásögnum kom þó fram að fjórir af þeim átján drengjum sem vistaðir voru í Breiðavík í tíð Kristján kváðust hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu eldri drengs sem þar var. Í frásögnum vistmanna af líkam- legu ofbeldi af hálfu starfsmanna gætti töluverðs misræmis að mati skýrsluhöfunda. Í skýrslunni er vísað í álitsgerð dr. Gísla H. Guð- jónssonar um Breiðavík en í henni kemur fram að hann telji meiri líkur en minni á því að vistmenn hafi þurft að sæta illri meðferð og/ eða ofbeldi af hálfu annarra vist- manna á þessu tímabili. Þá telur hann einnig meiri líkur en minni á því að vistmenn hafi þurft að sæta minni háttar líkamlegum refsing- um af hálfu starfsmanna. Komast nefndarmenn þó að þeirri niður- stöðu að gæta þurfi varfærni þegar dregnar eru ályktanir af frásögn- um um illa meðferð og því séu ekki nægar forsendur fyrir að álykta á sama veg og dr. Gísli gerir í álits- gerð sinni. Við það er Kristján þó ekki sáttur. „Er ég kannski sekur vegna vafans? Ég tel að vistin í Breiðavík hafi ekki haft góðar afleiðingar á drengina sem þar voru vistaðir. Hins vegar finnst mér umræðan hafa verið full öfga- kennd og leitin að vondum körlum gengið of langt,“ segir Kristján sem einnig saknar þess að mennt- unar sinnar hafi ekki verið getið í skýrslunni. karen@frettabladid.is Þykir umræða um Breiðavík öfgafull Fyrrverandi forstöðumaður í Breiðavík gagnrýnir vinnubrögð nefndar um Breiðavíkurskýrslu. Sá vafi sem ríki um sína stjórnunarhætti sé óþægilegur. Leit að sökudólgum hafi gengið of langt og hann vilji leiðrétta sinn hlut. BREIÐAVÍK Kristján bendir á að hann var ráðinn til tveggja ára sem forstöðumað- ur Breiðavíkur, hins vegar þóttu honum aðstæður óhæfar fyrir börn og einangrun óviðunandi og því hafi hann sagt starfi sínu lausu eftir eitt ár. FYRRVERANDI FORSTÖÐUMAÐUR BREIÐAVÍKUR Kristján Sigurðs- son hefur alla tíð starfað með börnum og kemur enn að þeim störfum þótt hann sé kominn á níræðisaldur. Honum finnst sá vafi um að hann hafi beitt ofbeldi slæmur og ekki til marks um góð vinnubrögð. Hann hafi viljað láta bóka í skýrslu Breiðavíkurnefndar frásögn sína um að ofbeldi hefði hann aldrei beitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI FORMAÐUR BREIÐAVÍKUR- NEFNDAR Róbert Spanó segist ekki geta tjáð sig efnislega um málefni einstakra for- stöðumanna en vísar í skýrsluna um málið. ORKUMÁL Rafmagn fór af nokkr- um götum í Reykjavík um klukkan 19 í gærkvöldi vegna bilunar á háspennustreng. Viðskiptavinir verslunarinnar Nóatúns í Nóatúni létu myrkrið ekki slá sig út af laginu og héldu matarinnkaupum áfram, enda kassakerfið í gangi, þökk sé vararafstöð. Samkvæmt upplýs- ingum frá bilanavakt Orkuveitu Reykjavíkur var rafmagnið komið aftur á eftir um hálfa klukkustund. Viðgerð á strengn- um bíður þó þar til í dag. - bj Rafmagnslaust í hálftíma: Versluðu áfram í myrkrinu MYRKRAVERK Viðskiptavinir verslunar- innar Nóatúns létu rafmagnsleysið ekki trufla sig. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÉTTABLAÐIÐ, AP Forseti Ekvadors, Rafael Correa, sakar Kólumbíustjórn um að hafa, með árás sinni á skæruliða innan landamæra Ekvadors, viljað koma í veg fyrir að skæruliðarnir létu lausa fleiri gísla. Correa studdi fullyrðingar þessar engum sönnun- um, en þetta sagði hann á fundi með forseta Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva. Correa fór á fund Silva til að afla stuðnings í deilu sinni við Kólumbíu- stjórn út af árásinni á laugardag. Correa krefst þess að sem flest ríki fordæmi skilyrðislaust árásir Kólumbíuhers á laugardaginn á bækistöðvar skæruliðasveita FARC innan landamæra Ekvadors. Í árásinni féll meðal annars einn af leiðtogum sveitanna, sem boða marxíska byltingu en stunda fíkniefnasmygl og mannrán í stórum stíl. Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefur sagt hættu á stríði. Venesúelastjórn hefur, rétt eins og Ekvador, sent þúsundir hermanna að landamærum Kólumbíu og býr sig undir átök. „Ef þessum verknaði verður látið órefsað er þessi heimshluti í hættu, vegna þess að næst gæti höggið riðið á Perú, eða Brasilíu, Venesúela, Bólivíu, eða hvaða landi hér sem er,“ sagði Correa í gær. - gb Spenna magnast enn milli grannríkja í Suður-Ameríku: Forseti Ekvadors safnar liði VIÐ LANDAMÆRI KÓLUMBÍU Ekvadorskir hermenn á eftirlits- ferð í frumskóginum skammt frá landamærum Kólumbíu. NORDICPHOTOS/AFP GENGIÐ 05.03.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 131,0144 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 66,06 66,38 130,79 131,43 100,30 100,86 13,458 13,536 12,749 12,825 10,703 10,765 0,6374 0,6412 106,37 107,01 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.