Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 14

Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 14
14 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR SAMKEPPNISMÁL Forsvarsmenn heildverslunarinnar Innnes fá ekki að vita hver eða hverjir bentu Samkeppniseftirlitinu á meint brot Innness á samkeppnislögum. Áfrýjunarnefnd samkeppnis- mála telur sér í nýlegum úrskurði óheimilt að úrskurða um kröfu Innness þar sem rannsókn Sam- keppniseftirlitsins er enn í gangi. Í kjölfar fréttaflutnings af meintu samráði á matvörumark- aði í október á síðasta ári sendi Samkeppniseftirlitið frá sér til- kynningu. Þar var skorað á þá sem teldu sig hafa upplýsingar um samkeppnisbrot að koma ábend- ingum til eftirlitsins. Samkeppnis- eftirlitið fékk fjölda ábendinga, og fékk í nóvember húsleitarheimild hjá Innnesi og öðrum fyrirtækj- um. Rannsóknin stendur enn yfir, en í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála kemur fram að hún beinist að hugsanlegu ólög- legu samráði smásöluaðila og birgja. Innnes fór í kjölfar húsleitar- innar fram á að fá húsleitarbeiðn- ina og öll gögn sem henni fylgdu. Einnig var óskað eftir upplýsing- um um nöfn þeirra sem komið hefðu ábendingum um fyrirtækið á framfæri. Kröfu Innness um að fá nöfn þeirra sem kvörtuðu var hafnað. Kröfunni var vísað til áfrýjunar- nefndar samkeppnismála. Nefnd- in vísaði málinu frá, þar sem hún fjallar einungis um ákvarðanir Samkeppniseftirlitsins eftir að lokaniðurstaða hefur fengist. Ólafur Björnsson, forstjóri Inn- ness, vildi ekki tjá sig um málið, en sagði í tölvupósti að það væri til skoðunar hjá fyrirtækinu. - bj Áfrýjunarnefnd samkeppnismála vísar frá kröfu heildverslunarinnar Innness: Vilja nöfn þeirra sem kvörtuðu NEITA Samkeppniseftirlitið neitar að afhenda heildsölunni Innnesi upplýs- ingar um það hverjir komu ábendingum um meint brot á samkeppnislögum á framfæri. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA UNDIRBÝR HÁTÍÐARHÖLD Munkur þessi í Bútan var að útbúa skreytingar fyrir hátíðarhöld þar í landi þegar myndin var tekin af honum. Kosningar verða haldnar þar í lok mánaðarins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Volkswagen – kolefnisjafnaður útblástur Passat F í t o n / S Í A FÆREYJAR Vel á þriðju milljón króna hefur safnast í fjársöfnun fyrir íbúa Skálavíkur í Færeyjum en þetta 300 manna samfélag varð mjög illa úti í óveðri um mánaða- mótin janúar-febrúar. Er tjónið talið velta á milljónum króna þar sem höfn, fiskverkunar- hús, verslun og vegir skemmdust mikið. Auk þess eyðilögðust nær allir bátar byggðarlagsins og þá skolaði stórum hluta kirkjugarðs- ins á haf út. „Við ætlum að safna til 14. mars og þá sendum við pening- ana til Skálavíkur,“ segir Niels J. Erlingsson, einn aðstandenda söfn- unarinnar. Hann segir Linjohn Christiansen, bæjarstjóra Skála- víkur, ætla að taka við peningunum en íbúunum verði sjálfum falin ráð- stöfun þeirra. Bæjarráð Ísafjarðar samþykkti á fundi sínum á mánudaginn 200 þús- und króna framlag úr bæjarsjóði. Er þar minnt á framlag Færeyinga vegna snjóflóðsins á Flateyri 1995 þar sem leikskólinn Grænigarður var að mestu byggður fyrir söfnun- arfé frá Færeyingum. Hvetur bæj- arráð íbúa og fyrirtæki til að leggja söfnuninni lið. „Þarna varð sem betur fer ekki manntjón,“ segir Halldór Halldórs- son, bæjarstjóri á Ísafirði. „En það er alltaf eitthvað sem ekki er alger- lega bætt af tryggingafélögum. Við vitum að þetta er ekki mikið en vonumst til að þetta hjálpi til.“ Söfnunarreikningurinn er númer 0565-14-607914 í Glitni og er kenni- talan 270366-3019. - ovd Bæjarráð Ísafjarðar hvetur íbúa og fyrirtæki til að leggja Skálavíkursöfnuninni lið: Miklar skemmdir urðu í óveðrinu FRÁ SKÁLAVÍK Í FÆREYJUM Sjór gekk á land, braut niður mannvirki við höfnina og eyðilagði sjóvarnargarð. MYND/PALLA Á LAVA OLSEN VINNUMARKAÐUR Efling stéttarfé- lag og Samiðn hafa sent bygginga- fyrirtækinu Stafnás greiðslu- áskorun og hefur fyrirtækið því frest fram á föstudag til að greiða starfsmönnum laun. Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðn- ar, segir að verði ekki af því verði Samiðn að setja upp launakröfur fyrir hvern starfsmann. Efling á hátt í sjötíu félagsmenn hjá Stafnási og Samiðn hátt í fjörutíu. Mennirnir hafa ekki fengið laun í þrjár vikur. Finn- björn segir að sumir þeirra séu búnir að leggja fram kröfur hjá félaginu og farnir heim eða til annarra starfa og enn aðrir séu enn við störf hjá Stafnási. „Við verðum með fund með starfsfólk- inu á föstudaginn og þá sjáum við endanlega hvernig staðan er,“ segir Finnbjörn. - ghs Efling og Samiðn um Stafnás: Fá frest þar til á morgun

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.