Fréttablaðið - 06.03.2008, Page 16
16 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Þótt undarlegt megi virð-
ast finnst mörgum þeir
ekki geta á sér heilum
tekið nema að þeir kasti
sér annað slagið til sunds í
ísköldum sjónum. Skiptir þá
engu hvernig viðrar. Blaða-
maður stakk sér til sunds
í Nauthólsvík með vöskum
sjósundshópi frá Íslenskri
erfðagreiningu.
Upphaflega hafði blaðamaður hugs-
að sér að spjalla við sundgarpana
áður en þeir færu í sjóinn en Páll
Gestsson var fljótur að skýra út að
ekki væri talað við neina gesti
nema þeir brygðu sér í sjóinn.
Blaðamaður taldi sig hafa krók á
móti bragði og sagðist ekki hafa
nein sundföt. Hann var rétt búinn
að sleppa orðinu þegar Halldór
Erlendsson réttir honum skýlu og
handklæði. Í örvæntingarfullri til-
raun til að komast hjá áskoruninni
segir blaðamaður að það sé ekki
laus snagi í búningsklefanum.
„Þessa afsökun höfum við ekki
heyrt áður,“ segir Páll og þykir
greinilega nokkuð langt seilst. Það
var því ekki annað að gera en að
fækka fötum og láta slag standa.
„Fyrir fjórum árum kom einn
starfsfélagi okkar með þá prýð-
is hugmynd að við færum saman í
sjósund,“ sagði Páll þegar strunsað
var í kuldanum að sjónum. „Sá hinn
sami hefur hins vegar ekki svo
mikið sem dýft stóru tánni í sjóinn
en hugmyndin var góð og hér erum
við enn.“
Á hverjum miðvikudegi fer þessi
vaski hópur í Nauthólsvík í hádeg-
inu og bregður sér í sund. Eins og
flestir muna voru vetrarhörkur
miklar fyrir skömmu og var þá
vogurinn ísilagður. Það dró þó ekki
máttinn úr mannskapnum, sem
braut góða vök og skellti sér í sjó-
inn sem hrelldi þá með sínu tveggja
stiga frosti. „Við vorum bara stutta
stund ofan í, ekki nema tvær mín-
útur,“ sagði Ólafur Þ. Magnússon
og blaðamaður skalf á beinunum
því ljóst mátti vera að menn myndu
halda sér lengur ofan í þennan dag
þar sem viðraði mun betur.
Útlitið var því ekki bjart við
fjöruborðið því kuldinn læsti sig í
líkamann og því þurfti að reyna að
blekkja hugann, sem var farinn að
gæla við heita pottinn sem bíður
fyrir ofan fjöru. Sundkapparnir
virtust hins vegar fullir tilhlökkun-
ar þegar þeir hlaupu út í sjó og
syntu svo þegar nógu djúpt var
komið. Hvort sem það var af vest-
firskum viljastyrk eða fífldirfsku
fór blaðamaður sömu leið.
Það var engu líkara en togað
væri í slagæðarnar og hendur
verða sem steinrunnar. Það var því
nokkuð erfitt að verða við tilmæl-
um Ólafs sem segir það mun þægi-
legra að synda en standa og kveinka
sér.
Menn skjálfa svo að þeir valda
vart kaffibollanum þegar komið er
upp í hús aftur. Þó fer notaleg til-
finning um kroppinn en Adam var
ekki lengi í paradís. „Nú er þyngsta
mannraunin eftir,“ segir Halldór og
gengur að heita pottinum. Og ef
það þurfti vilja til að hafa sig út í
sjó þá þarf næstum tvöfaldan
skammt af slíku til að koma sér úr
pottinum þegar maður hefur komið
sér vel fyrir þar. Þó kveða reglur
hópsins á um að einungis megi
dvelja í honum fimm sinnum leng-
ur en dvalið var í sjónum, sem var
1,6 gráðu kaldur. Sé einhvern tím-
ann freistandi að brjóta reglur er
það í pottinum þegar sá tími er
útrunninn. jse@frettabladid.is
Sá yðar sem sundlaus er
POTTURINN BÍÐUR Einar nálgast land fullur tilhlökkunar enda er heiti potturinn mun
þægilegri fyrir kroppinn en hinn ískaldi sjór.
SJÓRINN BÍÐUR Guðmundur leiðir hér hópinn, sem getur varla beðið eftir því að
komast í þann salta.
SUNDGARPARNIR Frá vinstri: Ólafur Þ. Magnússon, Eiríkur Hjartarson, Páll Gestsson, Guðmundur Breiðdal, Viðar B. Þorsteinsson,
Halldór Erlendsson, Einar Kristinsson, Áslaug Inga Kristinsdóttir og Höskuldur Steinarsson. Þótt hópurinn sé kenndur við Íslenska
erfðagreiningu koma sumir annars staðar frá. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Mér finnst það,“
segir tónlistarkon-
an Magga Stína
spurð hvort slíta
eigi stjórnmála-
sambandi við
Ísrael. „Það er
það sterkasta
sem við getum
gert í stöðunni og
væri sómasamleg
aðgerð. Og við
eigum að gera það núna!
Eitt er það og ágætt út af fyrir sig
að sýna samstöðu með palestínsku
þjóðinni með því að halda sam-
komur og fundi. Annað er að taka
afstöðu sem þjóð og muldra ekki
ofan í hálsmálið á sér hálfkveðnar
vísur um „áhyggjur af ástandi mála“
eins og ríkisstjórnin hefur gert en
fordæma ekki skilyrðislaust þá við-
bjóðslegu meðferð sem Ísraelsmenn
beita palestínsku þjóðina,“ segir
Magga.
Hún gefur ekki mikið fyrir orð
forsætisráðherra, Geirs Haarde, um
að Íslendingar hafi of lítið vægi til
að hafa áhrif á gang mála. „Það er
einkennilegt hvernig þversagnirnar
ganga hver um aðra þvera í þessum
orðum ráðherrans. Mikilvægi þjóð-
arinnar vefst ekki fyrir honum þegar
sækja á um sæti í Öryggisráðinu,
og afstaða okkar virðist líka skipta
töluverðu máli í Afganistan. Ég skil
bara ekki hvernig mikilvægi okkar
skreppur svona svakalega saman
þegar kemur að þjóðarmorði,“ segir
Magga og er mikið niðri fyrir.
„Þetta er bara hræðilegt og ég
vildi óska þess að íslenska þjóðin
aflaði sér upplýsinga um hvað er að
gerast í Palestínu. Á meðan enginn
gerir það eigum við bara þessa örfáu
hugsjónamenn sem hrópa upp í
eyrun á fólki sem vill ekki hlusta.“
SJÓNARHÓLL
STJÓRNMÁLASAMBAND VIÐ ÍSRAEL
Ekki spurning
MAGGA STÍNA
tónlistarkona.
■ Ungir aðdá-
endur Vladimírs
Pútín Rússlands-
forseta eiga
sér félagsskap
í æskulýðs-
samtökunum Nashi, sem þýðir
einfaldlega Okkar. Hreyfingin var
stofnuð árið 2005 og liðsmenn
hennar eru nú á annað hundrað
þúsund. Hún þykir minna á
Sovétæskuna og sumir hafa líkt
henni við Hitlersæskuna, þrátt
fyrir að Nashi-hreyfingunni sé
beinlínis ætlað að koma í veg
fyrir að ungmenni ánetjist öfga-
hreyfingum. Þess í stað er þeim
innprentað að berjast fyrir fram-
förum og fullveldi Rússlands.
PÚTÍN-ÆSKAN:
UNGIR AÐDÁENDUR
RÚSSLANDSFORSETA
„Það er allt fínt að frétta af mér. Það lá ýmislegt
á hakanum meðan ég var í pólitíkinni en síðan
ég hætti þingmennsku hefur skapast tími til
að kippa því í lag,“ segir Jóhann Ársælsson,
fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar.
„Þar á meðal má nefna sumarbústað-
inn minn sem ég hef nú getað sinnt
meira og svo er það eitt og annað í
húsinu,“ segir Akurnesingurinn.
„En svo byrjaði einn sonur minn á
því að byggja og ég hef mikið verið
í því með honum. Svo er ég í stjórn
Íbúðalánasjóðs en það eru eiginlega
einu afskiptin sem ég hef af stjórnmál-
um. Reyndar fylgist ég alltaf vel með
þannig að stjórnmálin eru aldrei langt
undan, sérstaklega þegar upp koma
mál sem eru á mínu áhugasviði
eins og auðlindamál. Það hefur
verið nokkuð mikið að gerast í þeim málum
að undanförnu og í raun undarlegt hve lítið
hefur verið fjallað um það því stjórnvöld eru
nauðbeygð til að gera eitthvað í málunum frá
því að þau fengu áminningu frá mannrétt-
indanefnd Sameinuðu þjóðanna. Það
er engin þjóð meðal þjóða sem ypptir
öxlum við slíku. Það er því kannski
von á að þessi mál fari á betri brautir
en það er hvergi meirihluti fyrir þessu
fiskveiðikerfi nema á Alþingi og svo
hjá LÍU svo það er alveg ótrúlegt hvað
þeim hefur tekist að verja þetta.“
Hann segist endrum og eins sakna
þingheims og þá sérstaklega
starfsfélaganna en lítið
er um flokkadrætti þegar
kemur að samneyti
þingmanna.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? JÓHANN ÁRSÆLSSON, FYRRVERANDI ÞINGMAÐUR
Nú gefst tími til að taka til hendinni
Kannski níu tugum?
Eða tuttugu?
„Það er ekki ljóst hversu há
greiðslan verður en hún mun
nema tugum þúsunda.“
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON BORG-
ARSTJÓRI
Fréttablaðið 5. mars
Svona eiga sýslumenn
að vera
„Við höfum unnið hratt og
vel og komum hlutum í fram-
kvæmd.“
ÓLAFUR F. MAGNÚSSON BORG-
ARSTJÓRI
Fréttablaðið 5. mars
FATASKÁPADAGAR
HJÁ AXIS helgina 6.-9. mars
Bjóðum fataskápa á sérstökum afslætti aðeins þessa helgi.
Axis býður glæsilega fataskápa í mörgum gerðum. Miklir möguleikar í uppröðun,
viðartegundum, forstykkjum, skúffum og ýmsum auka- og fylgihlutum. Stuttur afgreiðslutími.
Smiðjuvegur 9 - 200 Kópavogur
Sími 535 4300 - Fax 535 4301
Netfang: axis@axis.is
Heimasíða: www.axis.is
Opið:
fimmtudag 9:00-18:00
föstudag 9:00-18:00
laugardag 10:00-16:00
sunnudag 13:00-16:00
Íslensk hönnun og framleiðsla