Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 18
18 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
V
ið höfum aðstöðuna, þekkinguna
og nægt fjármagn“, segir Hogne
Bleie, framkvæmdastjóri
fiskeldisfyrirtækisins Atlantic
Farms. Fyrirtæki hans er eitt
stærsta fiskeldisfyrirtæki
Noregs og stefnir á að framleiða tæp 28 þúsund
tonn af eldisþorski eftir fjögur ár, byggt á eigin
seiðaframleiðslu. Þessi mikla bjartsýni sem
birtist í orðum Bleie einkennir aðra framleið-
endur í þorskeldi í Noregi. Þeir sjá fyrir sér
gríðarlegan vöxt innan greinarinnar á komandi
árum. Óleyst vandamál sem steðja að þorskeld-
inu í Noregi og annars staðar telja þeir fyrir-
stöðu sem verði ýtt úr vegi með fagmennsku í
rekstri og trausti á ríkisstyrkt þróunar- og
rannsóknaverkefni. Bjartsýni þeirra byggir á
laxeldisævintýri Norðmanna þar sem öll
vandamál voru leyst með þeim árangri að
framleiðsla á eldislaxi var 706 þúsund tonn í
fyrra og skilaði Norðmönnum jafnvirði 190
milljarða íslenskra króna í tekjur.
Ævintýri á teikniborðinu
Norðmenn bera höfuð og herðar yfir aðrar
þjóðir þegar kemur að þorskeldi. Árið 2007 var
framleiðsla þeirra um fimmtán þúsund tonn og
gera framleiðendur ráð fyrir tuttugu þúsund
tonna framleiðslu árið 2008. Þetta er þó aðeins
vísir að því sem koma skal ef áætlanir þeirra
ganga eftir. Á næstu fimmtán árum gera
Norðmenn ráð fyrir að auka framleiðslu sína
jafnt og þétt og blása á allar hrakspár vísinda-
samfélagsins, sem vill fara hægar í sakirnar á
meðan vandamál við eldið verða leyst.
Ekki þarf þó að leita langt aftur til að sjá allt
aðra mynd í þorskeldi í Noregi. Framleiðslan
var aðeins 200 tonn árið 2000. Framan af kom
framleiðslan úr áframeldi, en þá er villtur fiskur
fangaður og fóðraður í ákveðinn tíma fyrir
slátrun. Nú er aleldi allsráðandi í kjölfar þess að
seiðaeldisstöðvar náðu tökum á framleiðslu
seiða, en skortur á þorskseiðum hamlaði um
tíma uppbyggingu á matfiskeldi á þorski.
Þrettán stórar seiðaeldisstöðvar eru í Noregi
og tvær í byggingu. Þegar þær hafa allar tekið
til starfa er framleiðslugeta þeirra metin um 100
milljónir seiða. Slíkt seiðamagn gefur framleið-
endum tækifæri til að framleiða gríðarlegt
magn af þorski, allt að 300 þúsund tonn.
Miklar væntingar eru bundnar við þorskeldið
og bjartsýnin grundvallast af laxeldisævintýr-
inu, eins og áður sagði. Í Noregi gera menn sér
vonir um að þorskeldi þróist á sama hátt og
laxeldi, nema kannski hraðar ef eitthvað er.
Árið 1975 var framleiðsla á laxi tæp 900 tonn en
var rúmlega 700 þúsund tonn í fyrra. Eins og
staðan er í dag er þróunin í þorskeldi hraðari en
var í laxeldinu þegar það var að ná flugi um
1980. Í dag er tap á hverju framleiddu kílói um
120 krónur en ef það tekst að gera framleiðslu-
ferlið í þorskeldi arðbært má ætla að þróunin
verði hraðari en í laxeldinu.
Stór fyrirtæki – nægt fjármagn
Hogne Bleie, framkvæmdastjóri Atlantic
Farms, telur allar aðstæður vera fyrir hendi til
að fyrirtæki hans taki flugið. Undir þessi
sjónarmið taka forsvarsmenn annarra þorsk-
eldis fyrirtækja í Noregi sem Fréttablaðið hefur
rætt við að undanförnu. Björn Simonsen,
forstjóri þorskeldisfyrirtækisins Spon Fish ASA
sem er með starfsstöðvar í Norður-Noregi, segir
að takmark fyrirtækisins sé að verða leiðandi á
sviði þorskeldis. „Áætlanir okkar gera ráð fyrir
að framleiða að minnsta kosti tíu þúsund tonn af
þorski árið 2012. Langtímamarkmið okkar er
ekki skilgreint að öðru leyti en því að framleiða
eins mikið og reynsla okkar leyfir þegar þar að
kemur.“ Fyrirtækið framleiðir í dag um sex til
sjö milljónir seiða til eigin nota en getur
framleitt mun meira án þess að miklar fjárfest-
ingar komi til, eins og á við um aðrar seiða-
stöðvar í Noregi. Mikil aukning seiðafram-
leiðslu krefst ekki mikils fjármagns frá því sem
nú er. Til samanburðar eru framleidd um 200
þúsund seiði árlega á Íslandi.
Talið er að norsk þorskeldisfyrirtæki hafi
fjárfest um þrjátíu milljarða íslenskra króna í
þorskeldi frá árinu 2001. Að langmestu leyti er
um hlutafé að ræða. Codfarmers, eitt stærsta
þorskeldisfyrirtæki Noregs, var skráð í
Kauphöllinni í Osló síðla árs 2006. Fyrirtækið
hefur sótt þangað um þrjá milljarða íslenskra
króna á þeim tíma. Greinin fær líka góðan
stuðning frá stjórnvöldum og framlag til
rannsókna- og þróunarverkefna er um tveir
milljarðar íslenskra króna á hverju ári. Vart
þarf að taka fram að slík verkefni á Íslandi eru
ekki styrkt í neinu samhengi við það sem
Norðmenn hafa úr að moða.
Tekið skal fram að tregða hefur verið
innan norska bankakerfisins að veita
fjármagni til reksturs þorskeldis-
fyrirtækja. Því er ljóst að fjármagn
þarf að koma frá fjárfestum í formi
hlutafjár. Það hefur að sögn
framleiðenda gengið ágætlega
hingað til. Fjárþörfin er mikil og
talið að um 35 milljarða
íslenskra króna þurfi til fjárfest-
inga og rekstrar til að framleiða
100 þúsund tonn af eldisþorski.
Mörg af stærri þorskeldisfyr-
irtækjunum eru stórtæk í
laxeldi og þorskeldi enn
lítill hluti af starfsemi
þeirra. Ágæt afkoma hefur
verið í laxeldi og mögulegt að
nýta þann hagnað til þróunar
þorskeldis, sem verður vaxtar- broddur
í norsku fiskeldi þar sem takmörk eru
fyrir aukningu á laxeldi úr því sem
komið er.
Efasemdarraddir
Vöxtur þorskeldis í Noregi er þó ekki
jafn átakalaus og skilja má af framleið-
endum. Vísindasamfélagið bendir á að
nauðsynlegt sé að leysa vandamál
vegna sjúkdóma sem komið hafa upp
auk annarra tæknilegra vandamála við
eldið. Nokkur fyrirtæki hafa líka orðið
fyrir alvarlegum áföllum og dregið
saman seglin eða jafnvel hætt rekstri. Eitt
dæmið er fyrirtækið Marine Harvest, sem
var stærsta þorskeldisfyrirtæki Noregs
um tíma. Vandamál vegna fisksjúk-
dóma hafa orðið þess valdandi að
starfsemin er nú ekki svipur hjá sjón.
Einnig horfa menn til Bretlands þar
sem stærsta þorskeldisfyrirtæki þar í
landi, Johnsons Seafarms, hefur lent í miklum
vanda og er nú að öllum líkindum gjaldþrota.
Boðskapur sjávarútvegsráðherrans
Framleiðendur eru bjartsýnir um framtíð
þorskeldis í Noregi og undir það taka stjórn-
völd. Helga Petersen, sjávarútvegsráðherra
Noregs, segir í viðtali við Fréttablaðið að
stjórnvöld hafi miklar væntingar til
þorskeldisins. „Takmarkið er að
koma á fót framleiðslu sem
grundvölluð er á sjálfbærni
og miklum gæðum. Í
framtíðinni er það mín
von að þorskeldi verði
jafn mikilvægt fyrir
landið og laxeldið
er í dag.“
Upphaf og þróun þorskeldis í Noregi
Tilraunir með þorskklak hófust fyrst árið 1884 í klakstöð í Flödevigen í Suður-
Noregi. Sleppingar náðu hámarki á árunum 1920-50, en þeim var síðan hætt í
byrjun áttunda áratugarins og höfðu þá tilraunir staðið yfir í tæp hundrað ár.
Það var ekki fyrr en á seinni hluta áttunda áratugarins að farið var að
sleppa þorskseiðum sem áður höfðu verið fóðruð. Fyrstu árin gekk framleiðsla
þorsk seiða erfiðlega, en árið 1983 tókst að framleiða verulegt magn seiða.
Matfiskeldi á þorski hófst um miðjan níunda áratuginn. Umsvif voru ekki mikil;
vel undir þúsund tonnum á ári. Áhugi minnkaði fyrir þorskeldi þegar líða fór á
síðasta áratug.
Samstarf um þróun þorskeldis
Til að hraða uppbyggingu matfiskeldis á þorski, bæði með eldisseiðum
og villtum þorski, stendur yfir verkefnið Sats på torsk. Þetta verkefni er á
vegum Norsku sjávarafurðamiðstöðvarinnar (Norsk Sjømatsenter), sem í er
fjöldi félaga og fyrirtækja. Miðstöðin er tengiliður á milli menntastofnana,
rannsóknastofnana og stjórnsýslu og hefur það markmið að hraða þróun
sjávarútvegs og fiskeldis í Noregi.
Risaskref tekin í norsku þorskeldi
Norskir fiskeldismenn ætla að framleiða 200 þúsund tonn af þorski innan fárra ára. Forskot þeirra í eldistækni er mikið og strax árið
2015 ætla Norðmenn að framleiða álíka mikið af eldisþorski og Íslendingar veiða af villtum þorski í dag. Á fimm árum hefur þorskeldi
í Noregi tekið risastökk fram á við enda hefur miklum fjármunum verið varið til uppbyggingar atvinnutækja og þróunarmála.
Fréttaskýring: Þorskurinn er næsta eldisævintýri 1. hluti
´00 ´01 ´02 ´03 ´04 ´05 ´06 ´07 ´08 ´09 ´10 ´11 ´12 ´13
100
90
80
70
60
50
40
30
20
10
0
250
200
150
100
50
0
Seiði
Framleiðsla
Spá um framleiðslu þorskseiða og sláturfisks
Se
ið
af
ra
m
le
ið
sl
a
í m
ill
jó
nu
m
Fram
leiðsla x1.000 tonn
5-10
11-20
21-30
31-40
Þorskeldisfyrirtæ
ki í N
oregi
FYRSTA GREIN AF FIMM
Á morgun:
Þorskeldi á Íslandi – staða og framtíð
FRÉTTASKÝRING
SVAVAR HÁVARÐSSON
svavar@frettabladid.is
Codlink-verkefnið
Codlink-verkefnið er samstarfsvettvangur fimmtán stórra þorskeldisfyrir-
tækja í Noregi. Helsta markmiðið er samvinna í framleiðslu og markaðs-
setningu í þorski. Samvinnan er hugsuð til að flýta þróun þorskeldis.
Takmarkið er að framleiða gæðavöru á fyrir fram skilgreinda markaði þar
sem verð er hærra en gengur og gerist á hefðbundnum mörkuðum.
Fundir eru haldnir fjórum sinnum á ári og er þá upplýsingum dreift á milli
aðila. Verkefnið hefur notið styrkja frá stjórnvöldum.
NOREGUR
Íbúafjöldi: 4,3 milljónir
Flatarmál: 323.900 km2
fjöldi
2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007
15.000
12.000
9.000
6.000
3.000
0
Þorskframleiðsla í Noregi og á Íslandi
Noregur
Ísland
1983
1984
1985
1986
1987
1988
1989
1990
1991
1992
1993
1994
1995
1996
1997
1998
1999
2000
2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
750
650
550
450
350
250
150
50
0
Framleiðsla Norðmanna á eldislaxi
x 1000 tonn
Osló
Björgvin
Þrándheimur
Tromsö