Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 38
6. MARS 2008 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● fermingar
Þótt gjafirnar heilli er það nú
samt veislan sem fermingar-
barnið, Helga Jóna, hlakkar
mest til á fermingardaginn.
Helga Jóna Guðjónsdóttir, sem
verður fjórtán ára í nóvember,
fermist í Hafnarfjarðarkirkju 6.
apríl næstkomandi. Hún og for-
eldrar hennar eru búin að skipu-
leggja daginn út í ystu æsar.
„Ég byrja á því að vakna og fer
svo í greiðslu. Síðan fer ég í ferm-
inguna í Hafnarfjarðarkirkju og
síðan í veisluna. Og svo held ég að
ég bjóði vinkonum mínum heim til
mín um kvöldið,“ útskýrir Helga
Jóna og bætir við að hún og tvær
bestu vinkonur hennar fermist
allar hver í sinni vikunni. „Við
fermumst allar í sitthvorri vik-
unni, í röð, og þannig getum við
mætt í fermingar hinna,“ segir
hún.
Helga Jóna er búin að kaupa
fermingarkjólinn, sem er svartur,
hvítur og bleikur. Pilsið nær niður
fyrir hné og hún segir að það sé
mjög þægilegt að vera í honum.
Spurð hvort hann sé flottur, svarar
hún „já“ á innsoginu.
Utan yfir kjólinn verður hún
svo í svörtum ermum úr nælon-
efni og í afar fallegum skóm. „Þeir
eru með háum hælum, opnir og
með demanti framan á,“ útskýrir
hún áfjáð.
Helga Jóna ætlar líka að vera
örlítið máluð á fermingardaginn.
„En ekki of mikið, bara smá meik
og maskara, ekkert mikið,“ segir
hún.
Bræður hennar tveir fermd-
ust fyrir nokkrum árum og man
hún vel eftir fermingardögunum
þeirra og veit því hvað hún syng-
ur þegar hún segir að aðal til-
hlökkunarefni dagsins sé veislan.
„Ég hlakka mest til veislunnar, að
hitta alla fjölskylduna. En auðvit-
að hlakka ég líka til gjafanna. Ég
veit til dæmis að mamma og pabbi
ætla að gefa mér 150.000 krónur
sem þau setja inn á bók og ég get
ekki tekið út fyrr en ég verð 18
ára,“ segir fermingarbarnið Helga
Jóna Guðjónsdóttir að lokum. - smk
Léttleiki verður í fyrirrúmi í
fermingarveislu Péturs Geirs
Magnússonar, því hann og
dansdama hans, Helga Sigrún
Hermannsdóttir, munu sýna
gestunum samkvæmisdansa.
Pétur Geir Magnússon vonast
til þess að allir gestirnir mæti í
fermingarveisluna hans á dans-
skónum og svífi út á gólfið undir
góðri tónlist; dansinn verður þema
veislunnar og verður tónninn gef-
inn með boðskortunum. Sjálfur er
Pétur Geir síður en svo ókunnur
því að dansa fyrir aðra því hann
er margfaldur Íslandsmeistari í
samkvæmisdönsum og hefur oft
dansað í samkvæmum og á árs-
hátíðum.
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir
mun ferma Pétur Geir í Garða-
kirkju 5. apríl næstkomandi.
„Ég held ég sé ekki eins og
flestir sem láta ferma sig til að
fá gjafirnar því mér finnst þetta
vera stór áfangi í lífi mínu. Ég er
að þessu því mig langar til að fá
kristilegt uppeldi og mér finnst
það flott að innvígjast í lúters trúna
og staðfesta það að ég trúi á guð,“
segir hann. „En auðvitað verður
líka gaman að fá gjafir og pening
og geta ferðast og svona.“
Pétur Geir, sem verður fjórtán
ára í júlí og gengur í Garðaskóla
í Garðabæ, bætir við að honum
þyki sérlega vænt um að athöfnin
fari fram í Garðakirkju því hún sé
fjölskyldukirkjan hans; þar hafi
flestir stórir fjölskylduviðburðir
átt sér stað og þar komi hann oft
því afi hans hvílir þar í garðinum.
Garðakirkja sé ekta kirkja og þar
líði honum vel.
Veislan, sem verður fyrir um
110 manns, verður haldin í Rúg-
brauðsgerðinni, sem er vel við
hæfi því í því húsi er dansskóli
Jóns Péturs og Köru og verður
veislan í stóra danssalnum.
„Veislan skiptir mömmu eig-
inlega meira máli en mig, hún
vill náttúrlega hafa hana perf-
ekt, en það skiptir mig voða litlu
máli hvaða servíettur verða eða
hvernig servíettubrot er notað,“
segir Pétur Geir og hlær. „Ég vona
bara að veislan geti orðið skemmti-
leg fyrir alla, það er aðalmálið.“
Hann bætir við að hann sé svo
heppinn að eiga skemmtilega fjöl-
skyldu sem sé alveg til í að flippa
aðeins og þess vegna ætlar hann
að fara þar fremstur í flokki um
kvöldið með fleiri útspilum en
dansinum og mun tæknin meðal
annars verða nýtt í því skyni.
Hann útskýrir enn fremur að
hann hafi valið að halda veisluna
á laugardagskvöldi í þeirri von að
veislan muni standa sem lengst.
Pétur Geir er búinn að kaupa
fermingarfötin, sem eru ósköp
venjuleg jakkaföt. „En svo mun ég
hafa nokkrum sinnum fataskipti,
meðal annars dansa í kjól fötun-
um,“ segir fermingarbarnið Pétur
Geir, sem byrjaði að æfa dans
fyrir áratug, þá þriggja ára gam-
all. - smk
Fermingarbarnið
dansar fyrir gestina
Pétur Geir Magnússon hefur léttleikann í fyrirrúmi í fermingarveislu sinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Skór með demanti
og örlítið meik
Helga Jóna Guðjónsdóttir hlakkar mikið til að fermast í byrjun apríl, enda verður
stúlkan afar glæsileg til fara þann dag, í bleikum, svörtum og hvítum kjól og skóm
skreyttum demöntum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Jón Bragi Jakobsson hlakkar mikið
til 20. mars næstkomandi, þegar
hann fermist frá Fella- og Hóla-
kirkju í Efra-Breiðholti.
„Ég er að þessu til að játa trú
mína á guð,“ segir hann. „Þetta
er svona eins og þegar maður var
skírður.“
Jón Bragi er í Hólabrekkuskóla
og verður hann fjórtán ára í ágúst.
Hann segist hlakka mikið til ferm-
ingardagsins, sem búið er að skipu-
leggja nokkuð vel.
„Dagurinn verður þannig að við
förum í kirkjuna og svo í veisluna
og svo fer maður heim og sér hvað
maður fékk,“ segir Jón Bragi og
bætir við að stjúpsystir hans hafi
fermst í fyrra svo hann geti vel
ímyndað sér hvernig dagurinn
verði.
Hann telur þó að það sé mun
minna tilstand þegar strákar ferm-
ast en þegar stelpur fermast. „Ég
fer bara í klippingu og í jakkaföt,“
segir hann, en fermingarfötin hans
eru svört, teinótt jakkaföt.
Veislan verður haldin í sal í
Hafnarfirði og segir Jón Bragi að
hann geti átt von á 70 til 80 manns.
„Ég á nokkuð stóra fjölskyldu,“ út-
skýrir hann og hlær.
Spurður hvað sé mesta tilhlökk-
unarefnið segir hann án hiks að
það sé að hitta pabba sinn, sem býr
við Karíbahafið. „Ég hlakka mest
til að fjölskyldan komi öll saman.
Pabbi kemur frá útlöndum og það
verður gaman að sjá hann,“ segir
fermingarbarnið Jón Bragi.
- smk
Minna tilstand hjá strákum
Jón Bragi Jakobsson hlakkar mest til þess að pabbi hans komi frá útlöndum í ferm-
ingarveislu hans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Himneskir herskarar
– Fermingarstyttur
Auðbrekka 4, gengið inn bakatil.
Upplýsingar í síma 862 2783 eða 552 1783.