Fréttablaðið - 06.03.2008, Síða 52
6. MARS 2008 FIMMTUDAGUR16 ● fréttablaðið ● fermingar
Bræðurnir Þórólfur og Árni Páll Árna-
synir minnast fermingardagsins með
gleði en það var faðir þeirra séra Árni
Pálson sem fermdi þá báða.
Bræðurnir Þórólfur og Árni Páll Árnasyn-
ir eiga ljúfar minningar frá fermingunni.
Faðir þeirra, séra Árni Pálsson fermdi, þá
báða og sá einnig um fermingarfræðslu
þeirra. Þórólfur fermdist árið 1971, einn af
þremur þann daginn, í sveitasókn en Árni
Páll fermdist í Kópavogssókn og var því
hluti af aðeins stærri hópi.
Þórólfur segir að það að vera prestsson-
ur sé samofið öllu hans lífi. Einnig kenndu
foreldrar bræðranna báðir við skólann sem
hann var í og hitti hann þau því reglulega
þótt hann væri sjálfur í heimavist. Báðir
voru þeir bræður árgangi á undan sínum
jafnöldrum í skóla.
Þórólfur sótti fermingarfræðslu í
Laugar gerðisskóla, með sínum skólasyst-
kinum sem komu af öllu Snæfellsnesi, og
sá faðir hans um fræðsluna. Hann fermd-
ist ári seinna í Rauðamelskirkju á Snæ-
fellsnesi, vorið 1971. Þeir voru þrír strák-
ar sem fermdust sama dag og þætti það ef-
laust frekar óvanalegt í dag.
„Fermingardagurinn var vitanlega eftir-
minnilegur, það að vera nánast „í aðal-
hlutverki“ í litlu samfélagi var sérstakt.
Veislan var fámenn, kaffi og kökur heima
eftir messuna en systkinabörn og þeirra
foreldrar höfðu komið vestur. Þetta var
um hvítasunnuna,“ rifjar Þórólfur upp án
þess að nefna annars konar „aðalhlutverk“
sem honum kunna að hafa hlotnast á öðrum
vettvangi.
Þótt styttra sé frá fermingu Árna Páls
man hann lítið eftir sinni fermingu. Hann
rifjar þó upp að hafa farið venjulega leið
með sínum skólafélögum og talar um að
hafa verið orðinn svo vanur því að vera
prestssonurinn að það skipti engu máli
þegar kom að fermingarfræðslu og ferm-
ingu.
„Skólasystkinin voru hætt að spá í það.
Ég fermdist með mínum skólaárgangi árið
1979 og var þá 13 ára. Pabbi var þá prestur
í Kópavogssókn og þar var fínt að vera.
Mér þótti það ekkert tiltökumál og man
ekki til þess að hafa hugsað sérstaklega út
í að mínar aðstæður væru aðrar en hinna
sem fermdust með mér,“ segir Árni Páll,
sem fannst fermingin ljúf og fín endur-
minning.
Fermingargjöf foreldranna man hann þó
vel þar sem hann fékk ferð til London og
fór þangað með mömmu sinni stuttu síðar.
Þórólfur man einnig vel eftir sínum gjöfum.
„Fermingarpeningarnir voru nú ekki stór
fjárhæð. Þeir voru lagðir inn í bankann og
síðan notaðir í eitthvað smálegt. Aðal ferm-
ingargjöfin frá foreldrunum var svefnpoki,
hann er enn til og nú nýttur sem undirlag
í sólbaði í sumarbústaðnum,“ viður kennir
Þórólfur, ánægður með nýtnina.
Þórólfur bætir við að kristin siðfræði og
það sem hafi verið kennt í kristinfræði og
fermingarfræðslunni hafi örugglega haft
áhrif og mótað lífsviðhorf hans. „Ég held að
það sé erfitt að vera ósammála þeim boð-
skap að hver maður eigi að reyna að koma
fram við náunga sinn eins og hann vill að
komið sé fram við hann sjálfan,“ segir hann
að lokum. - vaj
Fermingin forsmekkur að framtíðinni
Bræðurnir Árni Páll og Þórólfur Árnasynir eiga ljúfar minningar frá fermingardeginum. Þórólfur segir ferm-
inguna hafa haft mótandi áhrif á allt sitt líf. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Þórólfur er á leið í kirkjuna á Rauðamel, annar í
röðinni.
Árni Páll ásamt ömmu sinni, Önnu Árnadóttur, og
afa, Páli Geir Þorbergssyni,
Veislulist og Skútan, Hólshrauni 3 - Hafnarfirði - 555 1810