Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 68

Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 68
32 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR timamot@frettabladid.is Þorfinnur Þórarinsson, bóndi á Spóastöðum í Biskupstung- um, er formaður Búnaðarsambands Suðurlands og hefur gegnt stöðunni frá árinu 2000. „Ég var kallaður í stjórn Búnaðarsambands Suðurlands árið 1993. Árið 2000 varð ég síðan formaður félagsins. Nú hef ég hins vegar ákveðið að gefa ekki kost á mér áfram,“ segir Þorfinnur. Búnaðarsamband Suðurlands var stofnað á Þjórsártúni sjötta júlí 1908 og svæði félagsins nær yfir Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu. Búnaðarsam- band Suðurlands heldur fast utan um málefni sem snertir aðildarmenn félagsins og hjá félaginu starfa um tuttugu og fimm manns. „Markmið félagsins er að efla búreksturinn og standa vörð um hagsmuni bænda. Þetta gerum við með því að vera með ráðunauta sem aðstoða bændur og einnig lög- bundin verkefni sem Búnaðarsambandið sinnir eins og út- tektir jarðabóta. Helstu verkefnin eru leiðbeiningar í sam- bandi við nautgriparækt, hrossarækt og sauðfjárrækt. Í seinni tíð hafa leiðbeiningar varðandi bókhald, hagfræði og búrekstur verið vaxandi,“ segir Þorfinnur. Búnaðarsambandið sér um búnaðar- og búgreinafélög á svæðinu sem eru fjörutíu talsins. „Þetta er mjög stórt svæði og mjög óvenjulegt því flest búnaðarsamtök ná að- eins yfir eitt svæði en við þrjú. Svo eru þrjátíu til fjöru- tíu prósent af landsframleiðslunni í landbúnaði sem nær yfir þetta svæði. Þeir hafa verið framsýnir þeir menn sem stofnuðu sambandið með því að taka svona stórt svæði undir sig,“ útskýrir Þorfinnur. Á árinu hefur verið efnt til ýmissa atburða tengt afmæli félagsins en í ágúst mun stærsti viðburðurinn verða. „Það verður haldin landbúnaðarsýning á Hellu dagana 22. til 24. ágúst. Það verður toppurinn á þessu stóra afmæl- isári. Halda verður sýninguna í ágúst þar sem 6. júlí er erf- iður tími fyrir bændur í nútíma búskap. Þá er nefnilega heyskapur í fullum gangi,“ segir Þorfinnur að lokum. mikael@frettabladid.is BÚNAÐARSAMBAND SUÐURLANDS: FAGNAR HUNDRAÐ ÁRA AFMÆLI Verja hags- muni bænda Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Guðlaugsson frá Vík í Mýrdal, Hraunbæ 103, Reykjavík, lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 4. mars. Margrét Ögmundsdóttir Guðrún Jónsdóttir Oddur Þórðarson Jóna Jónsdóttir Pétur Eiríksson Guðlaugur G. Jónsson Sigríður Ingunn Ágústsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sólveig Guðmundsdóttir Fellsmúla 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 7. mars kl. 14.00. Einar Norðfjörð Guðrún Norðfjörð Steinar V. Árnason Sigurbjörg Norðfjörð Þorgeir Valdimarsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts móður okkar, tengdmóður, ömmu og langömmu, Lilju Jóelsdóttur frá Siglufirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkrahúsi Akraness, E-deild. Marteinn Þór Kristjánsson Ásta Óla Halldórsdóttir Jóel Kristjánsson Helga Sigurrós Bergsdóttir Bryndís Hrönn Kristjánsdóttir Þórólfur Tómasson Kristján Haraldur Kristjánsson Margrét Þorvaldsdóttir Guðni Kristjánsson Kristbjörg Kemp Jónína Hafdís Kristjánsdóttir Guðmundur Magnússon barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa, langafa og sambýlismanns, Haraldar Guðmundssonar skipstjóra, Grundarbraut 5, Ólafsvík. Fyrir hönd aðstandenda, Pétur Haraldsson. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Már Hall Sveinsson Snæfellsási 3, Hellissandi, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar laugardaginn 1. mars. Útför hans fer fram frá Höfðakapellu mánudaginn 10. mars kl. 10.30. Árni Ásgrímur Hall Másson Rannveig Guðfinnsdóttir Sveinn Hall Másson Aðalheiður Másdóttir Sölvi Guðmundsson Erla Björg Másdóttir Guðmundur Gunnarsson Vilborg Másdóttir afa og langafabörn. 50 ára afmæli Fimmtugur í dag. Í tilefni af því tek ég á móti vinum og vandamönnum í sal iðnaðarmanna, Skipholti 70, föstudaginn 7. mars kl. 20.00. Hlakka til að sjá ykkur, Fannar Eyfjörð Elskuleg dóttir mín, móðir, tengdamóðir, amma, systir, frænka og fyrrum eiginkona, Hafdís Þórarinsdóttir sjúkraliði á Akureyri, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju mánudaginn 10. mars kl. 13.30. Þórdís Brynjólfsdóttir Þórarinn Jakob Þórisson Maren Óla Hjaltadóttir Hanna Bryndís Þórisdóttir Gunnar Jón Eysteinsson Brynjar Davíðsson Gréta Björk Halldórsdóttir Sigurður Heiðar Davíðsson Sylvía Dögg Tómasdóttir Dröfn Þórarinsdóttir barnabörn og aðrir aðstandendur. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda- faðir, afi og langafi, Lúðvík Kjartan Kjartanson stýrimaður, áður til heimilis að Króki 2, Ísafirði, lést á Húkrunarheimilinu Kumbaravogi sunnudaginn 2. mars. Útför hans fer fram frá Kotstrandarkirkju laugardaginn 8. mars kl. 15.00. Anna Jónsdóttir Ólína Louise Lúðvíksdóttir Ásdís Jóna Lúðvíksdóttir Helgi Leifsson Hólmfríður Lúðvíksdóttir Björn Gísli Bragason Kjartan Jón Lúðvíksson Anna Helga Sigurgeirsdóttir Óli Pétur Lúðvíksson Sólveig Ingibergsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ólöf Kristín Erlendsdóttir Háaleitisbraut 36, Reykjavík, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 26. febrúar. Útförin fer fram frá Grensáskirkju föstudaginn 7. mars. kl. 13.00. Margrét Guðjónsdóttir Ingunn Kristín Guðjónsdóttir Guðrún Guðjónsdóttir Björn Stefánsson Guðjón Erlendur Guðjónsson Freyja Sverrisdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Bragi Viðar Pálsson er lést á heimili sínu þann 27. febrúar verður jarðsung- inn frá Möðruvallakirkju í Hörgárdal, laugardaginn 8. mars kl. 13.30. Hafdís Jóhannesdóttir Sigmar Bragason Anna Þóra Ólafsdóttir Viðar Bragason Ólafía K. Snælaugsdóttir Fanndís Viðarsdóttir Kristófer Fannar Sigmarsson Daníel Freyr Sigmarsson Kristín Ellý Sigmarsdóttir Knattspyrnufé- lagið Real Madr- id er stofnað. Real Madrid er nú stærsta og rík- asta fótboltafélag heims og þekkt um allan heim. Liðið er eitt það sigursælasta á síðustu öld og á metið í meistara- deild Evrópu og hefur sigrað níu sinnum, oftar en nokkurt annað lið. Í gegnum tíð- ina hafa með liðinu spilað fjöl- margir heimsþekktir leikmenn sem hafa glatt knattspyrnuá- hugamenn með færni sinni. Þar er helst að nefna þá Zidane, Di Stefano, Ron- aldo, Raul, David Beckham, Luis Figo og Roberto Carlos. Real Madr- id er í hjarta höf- uðborgar Spánar, Madrid, þar sem leikvangur þeirra, Santiago Berna- bue, er sagður einn sá glæsileg- asti í heimi og þar er alltaf fullt en völlurinn tekur áttatíu og fimm þúsund manns í sæti. ÞETTA GERÐIST: 6. MARS 1902 Real Madrid stofnaðSHAQUILLE O’NEAL ÍÞRÓTTA-MAÐUR ER 36 ÁRA. „Einn daginn verð ég að leggja skóna á hilluna og fá mér níu til fimm vinnu eins og allir hinir.“ Shaquille O’Neal hefur þrisv ar sinnum verið valinn besti leik- maður úrslitakeppni NBA- deildarinnar. Hann hefur líka unnið deildina fjórum sinnum með liðunum Los Angeles La- kers og Miami Heat. ÞORFINNUR ÞÓRAR- INSSON „Búnaðar- sambandið hefur fjörutíu félög á sinni könnu.“

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.