Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 78

Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 78
42 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR Gamanleikarinn Will Ferrell leikur körfu- boltakappann Jackie Moon í grínmyndinni Semi-Pro sem verður frumsýnd hér- lendis um helgina. Ferrell sló fyrst í gegn eins og svo margir aðrir í gam- anþáttunum Saturday Night Live. Aðeins fimm ár eru liðin síðan Ferrell lék sitt fyrsta aðalhlutverk, eða í gamanmyndinni Old School þegar hann lék hinn stórundarlega Frank „The Tank“ Richard. Síðan þá hefur hann leikið í hverjum smellinum á fætur öðrum og má þar nefna Elf, Anchorm- an, Talladega Nights og Blades of Glody. Einnig hefur hann farið með minnisstæð aukahlutverk í Zoolander, Wedding Crashers og Starsky & Hutch á móti nokkrum af félögum sínum úr „Frat Pack“-hópnum, Ben Stiller, Owen Wilson og Vince Vaughn. Sjö ár í Saturday Night Live Hinn fertugi Ferrell fékk leiklistar- bakteríuna er hann stundaði nám við Irvine-menntaskólann í Kaliforníu. Þar vakti hann athygli fyrir að lesa upp daglegar tilkynningar í hátalarakerfið með hinum ýmsu grínröddum. Eftir að hafa útskrif- ast úr háskólanum í Suður- Kaliforníu gekk Ferrell til liðs við spunaleikhópinn The Groundlings og þar kynntist hann Chris Kattan. Varð þeim vel til vina og nokkru síðar gengu þeir til liðs við Saturday Night Live, eða árið 1995. Eftir brösugt gengi fyrsta árið kom Ferrell sterkur inn á sínu öðru ári og sló í gegn með eftirhermum sínum. Sérstaklega þótti hann ná George W. Bush Bandaríkjaforseta vel. Golden Globe-tilnefningar Ferrell yfirgaf Saturday Night Live árið 2002 eftir sjö ára sigurgöngu og varð þá eini meðlimur þáttanna sem var kvaddur af kollegum sínum í lokaþættinum. Síðan hefur hann átt farsælan kvikmyndaferil og tvívegis hefur hann verið tilnefndur til Golden Globe- verðlaunanna. Fyrst fyrir hlutverk sitt í söngvamyndinni The Producers og síðan fyrir Stranger Than Fiction þar sem hann sýndi á sér alvarlegri hlið en venjulega. Næsta mynd Ferrells á eftir Semi-Pro er Step Brothers sem fjallar um tvo ofdekraða náunga (Ferrell og John C. Reilly) sem verða stjúpbræður eftir að einhleypir foreldrar þeirra ákveða að gifta sig. Fáránlegur söguþráðurinn kemur svo sem ekki á óvart, enda ekki við öðru að búast þegar Will Ferrell er annars vegar. freyr@frettabladid.is Fáránleikinn í fyrirrúmi WILL FERRELL Ferrell fer með hlutverk körfuboltakappans Jackie Moon í grínmyndinni Semi-Pro. Grínistinn Þorsteinn Guðmundsson hefur fylgst með ferli Wills Ferrell síðan hann lék í Saturday Night Live. „Hann er svona „late bloomer“. Hann var búinn að vera töluvert lengi að áður en fólk byrjaði að kveikja á honum, sem er ekkert einsdæmi,“ segir Þorsteinn. „Það sem einkennir hann er að hann spilar út frá mjög mannlegum hversdags- legum nótum. Ég held að fólk sjái sjálft sig svolítið í honum. Hann er ekki sá flinkasti en hann er einlægur og virkar eins og kunnuglegur maður úr hversdagslífinu,“ segir hann. „Ég held að það sé svolítið það sem blífur í þessum Hollywood-heimi til lengdar. Þess vegna verða menn ekki svona bólur eins og Jim Carrey. Fólki finnst hann rosalega fríkaður en svo fær það leið á honum.“ Þorsteinn segir Ferrell sjaldnast fara yfir strikið og það hafi fleytt honum langt í Hollywood. „Hann heldur sig við þessar hversdagsað- stæður og svo hefur hann kannski með reynslunni forðast dónaskap og svoleiðis. Hann er frekar penn grínisti og ég held að það sé rosalega vel séð í Hollywood að ráða slíka menn. Hann lendir ekki í neinum stórvandræðum og er reglumaður sem er ekkert að sprauta sig inni á klósetti. Ég get ímyndað mér að hann sé svolítill fagmaður.“ Þorsteinn, sem er einna hrifnastur af Ferrell í Anchorman, segist ekki hafa tekið hann sér til fyrirmyndar í sínu gríni. „Ég var eiginlega kominn langt af stað þegar hann fór að slá í gegn en ég hef mjög gaman af honum.“ - fb Will Ferrell er hvers- dagslegur fagmaður ÞORSTEINN GUÐMUNDSSON Þorsteinn segir að Ferrell spili út frá hversdagslegum nótum í sínum gamanleik. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON > Butler framleiðir Leikarinn Gerard Butler, sem lék í Bjólfskviðu hér á landi og hinni vinsælu 300, hefur stofnað sitt eigið framleiðslufyrirtæki, Evil Twins, ásamt umboðsmanni sínum Alan Siegel. Fyrsta verkefni þeirra verður myndin Law Abidin Citizen og fer Butler þar með aðal- hlutverkið. Tvær myndir til viðbót- ar eru á teikniborðinu, Hanging Tale og Teacher Man. FERRELL Ferrell sló í gegn í sjónvarpsþátt- unum vinsælu Saturday Night Live þar sem hann lék í sjö ár. bio@frettabladid.is Heimildarmyndin The Bohem- ians eftir Þorstein J. verður frumsýnd í Listasafni Reykja- víkur annað kvöld klukkan 20. Myndin fjallar um félagsskap karlmanna í Dublin sem hefur verið starfræktur síðan 1878. Til að vera félagi þarf aðeins tvennt, að vera söngvari eða hafa óslökkvandi áhuga á söng og að vera drengur góður. „Ég hljóðblandaði hana aftur í fyrrakvöld (mánu- dagskvöld) til að vera með þetta alveg eins og ég vildi hafa það,“ segir Þorsteinn J. sem hefur unnið að mynd- inni í tvö ár með hléum. „Það er gaman að hvíla verkefni eins og þetta og koma að því aftur. Þannig skerpist frá- sagnarhátturinn og myndin verður einhvern veginn skýrari.“ Þó að myndin líti út fyrir að vera einföld skrásetning á félags- skapnum segir Þor- steinn að í henni séu þræðir sem gefi henni aukna vídd. „Þarna eru element eins og vinátta og feg- urð og það að halda áfram að syngja þótt rödd- in sé komin á áfangastað fyrir nokkru síðan. Þetta er sam- ræða um fegurðina má segja og hvernig hún birtist.“ Auk þess að frumsýna myndina í Listasafninu hefur Þorsteinn gefið hana út á mynddiski sem er til sölu í Eymundsson. Hvort hún verður sýnd erlendis á eftir að koma í ljós. „Myndin á klárlega erindi til Bretlands- eyja. Þetta var aðeins í annað skiptið sem það fékkst leyfi til að mynda þennan félagsskap og það tók sinn tíma að fá leyfið. En þeir eru búnir að sjá hana og eru ánægðir.“ -fb Samræða um fegurðina THE BOHEMIANS Atriði úr heimildarmynd Þorsteins J., The Bohemians, sem verður frumsýnd annað kvöld. Nýttu þér þetta TILBOÐ og stofnaðu rei kning á spron.is16% vaxtaauki! A RG U S / 08 -0 10 0

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.