Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 84

Fréttablaðið - 06.03.2008, Side 84
48 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR Breska hljómsveitin The Yardbirds spilar á Blúshá- tíð Reykjavíkur 19. mars. Freyr Bjarnason spjallaði við trommuleikarann Jim McCarthy, sem hefur mikl- ar mætur á gítarleikaranum Jeff Beck. „Ísland er indæll staður og athygl- isverður,“ segir Jim McCarthy, sem spilaði síðast með The Yard- birds hérlendis fyrir fimm árum. „Staðir eins og Ísland eru áhuga- verðir því við hefðum aldrei spil- að þar á sjöunda áratunum. Núna förum við þangað og til staða eins og Spánar og Austur-Evrópu sem við hefðum aldrei heimsótt áður. Fyrir nokkrum mánuðum spiluð- um við líka í Bodö í Norður-Nor- egi. Það er mjög fallegur staður og fólkið var skemmtilegt.“ Clapton, Page og Beck McCarthy er meðlimur í einni sögufrægustu hljómsveit heims, enda var The Yardbirds innvígð í Frægðarhöll rokksins árið 1992. Þrír af færustu gítarleikurum heims í gegnum árin hafa spilað með sveitinni, þeir Eric Clapton, Jimmy Page og Jeff Beck, auk þess sem hetjur á borð við Brian May (Queen), Steve Vai (Whit- esnake) og Slash (Guns N´Roses) hafa allar spilað inn á plötu með henni. Eftir að Page hætti í The Yardbirds stofnaði hann The New Yardbirds sem nokkru síðar breyttist í hina goðsagnakenndu Led Zeppelin. Clapton gekk aftur á móti til liðs við John Mayall‘s Bluesbreakers og stofnaði svo aðra merka sveit, Cream. Beck var framúrskarandi McCarthy, sem er annar tveggja upprunalegra meðlima í The Yard- birds, er ekki í vafa um hver sé besti gítarleikari bandsins frá upphafi. „Það er Jeff Beck, engin spurning. Hann er framúrskar- andi og bestur í að spila af fingr- um fram. Hann er mjög fjölbreytt- ur gítarleikari og hefur mikið ímyndunarafl. Hann er líka mjög skapandi og getur gert miðlungs- lag mjög gott.“ Um þessar mundir er gítarleik- ari sveitarinnar 22 ára Frakki, Jean Michel, og segir McCarthy hann ekkert eiga erfitt með að feta í fótspor Becks, Pages og Clap- tons. „Hann er mjög jarðbundinn og hæfileikaríkur einstaklingur og virðist njóta þess mikið að spila,“ segir hann. Þrjár kynslóðir á tónleikum McCarthy, sem er búsettur í Frakklandi, segir að andrúmsloft- ið hafi breyst mikið síðan hann byrjaði að spila. „Þetta snýst miklu meira um viðskipti núna. Það er líka miklu meiri stuðningur á bak við okkur. Búnaðurinn er betri og aðstoðarmennirnir sömu- leiðis. Síðan eru ferðalögin líka auðveldari. Við erum meira í flug- vélum í stað þess að þurfa að húka í rútum. Svo erum við heldur ekki að spila í hverri viku.“ McCarthy segir að allar kyn- slóðir mæti á tónleika hjá The Yardbirds, sérstaklega utan Bret- lands. „Það er líka fyndið þegar maður sér þrjár kynslóðir á sömu tónleikunum, afann, soninn og barnabarnið. Það er frekar skrít- ið,“ segir hann. Tónleikar The Yardbirds á Blús- hátíð Reykjavíkur verða haldnir á Hilton Nordica-hótelinu og hefjast þeir klukkan 20. Betri en Clapton og Page THE YARDBIRDS Hljómsveitin The Yardbirds spilar á Blúshátíð Reykjavíkur 19. mars. Ný plata frá rapparan- um Eminem er væntan- leg á næstunni sam- kvæmt upptökustjóranum Focus sem starfar með honum að plötu. „Platan frá Marshall kemur bráðum út. Við tókum fyrir stuttu upp tvö lög og við höfum samið mikið saman undanfar- ið,“ sagði hann. „Ég bý til taktana og sendi þá til hans.“ Focus bætti því við að hann væri einnig önnum kafinn við næstu plötu Dr. Dre, Detox. Verður það fyrsta plata hans síðan 2004. „Detox kemur út á þessu ári. Ég veit að Dre hefur lagt sig mikið fram undanfarið,“ sagði Focus. Eminem í upptökum EMINEM Rapparinn Eminem er greinilega ekki dauður úr öllum æðum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.