Fréttablaðið - 06.03.2008, Síða 88
52 6. mars 2008 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
Landsliðsmarkvörðurinn Hreiðar Levý Guðmundsson hefur
bundið enda á vangaveltur um framtíð sína með því að fram-
lengja samning sinn við sænska félagið Sävehof. Núverandi
samningur Hreiðars við félagið átti að renna út í sumar en
hann hefur nú skrifað undir nýjan og betri árs samning við
félagið.
„Það er mjög gott að vera búinn að ganga frá þessum
málum og geta horft til framtíðar,“ sagði Hreiðar við Frétta-
blaðið í gær en hann hefur farið á kostum með Säve-
hof í vetur og fær því eðlilega betri samning en hann
var með. „Ég er mjög sáttur við nýja samninginn og
það er einhver hækkun. Svo á ég að fá stærri íbúð
og bíl og eitthvað. Ég get ekki kvartað.“
Hreiðar hefur undanfarnar vikur verið orðaður
við félög í Þýskalandi en af því verður ekki að
þessu sinni að hann fari þangað.
„Það voru nokkur lið í Þýskalandi sem og í
Danmörku sem sýndu áhuga en aldrei neinar
alvöru viðræður. Ég held líka að það sé gott fyrir
mig að taka eitt ár áfram í Svíþjóð þar sem ég fæ að spila
reglulega og held þá vonandi áfram að bæta mig. Eg fram-
lengdi aðeins um eitt ár þar sem ég vil skoða þann mögu-
leika að fara hugsanlega yfir til Þýskalands eftir næsta vetur,“
sagði Hreiðar, sem telur sig hafa valið rétt er hann ákvað að
fara til Sävehof.
„Já, ég er ekki frá því. Hér hef ég fengið mikið að spila og
um leið tækifæri til þess að bæta mig sem markmann. Ég
tel mig geta gert enn betur og því nauðsynlegt að spila
áfram næsta vetur í stað þess að taka áhættuna á
að lenda á bekknum í Þýskalandi. Þess utan verður
næsta tímabil mjög spennandi enda komum við til
með að halda sama liði og eflaust bæta eitthvað
við okkur. Við ættum því að geta gert harða atlögu
að titlinum,“ sagði Hreiðar en Sävehof er í þriðja
sæti sænsku deildarinnar sem stendur.
Liðin fyrir ofan Sävehof eru Hammarby og
Ystad en Sävehof hefur gengið vel með þau í
vetur og gæti gert góða hluti í úrslitakeppninni.
HREIÐAR LEVÝ GUÐMUNDSSON: BÚINN AÐ FRAMLENGJA SAMNING SINN VIÐ SÆNSKA FÉLAGIÐ SÄVEHOF
Hreiðar tekur eitt ár í viðbót í Svíþjóð
FÓTBOLTI Íslenska kvennalandslið-
ið vann öruggan 2-0 sigur á Pól-
landi í fyrsta leik sínum á Algarve
Cup í Portúgal í gær. Dóra Stef-
ánsdóttir og Margrét Lára Viðars-
dóttir gerðu mörkin í seinni hálf-
leik.
Dóra skoraði fyrra markið með
þrumuskoti á 58. mínútu eftir
sendingu Margrétar og Margrét
Lára skoraði síðan seinna markið
á 81. mínútu eftir að hafa sloppið
ein í gegn. Margrét Lára skoraði
þarna í fimmta landsleiknum í röð
og varð jafnframt fyrsti A-lands-
liðsleikmaður Íslands til þess að
skora þrjátíu mörk fyrir landslið-
ið.
„Þetta er fín byrjun en stelpurn-
ar voru svolítið værukærar í fyrri
hálfleik og ekki að finna taktinn.
Ég var mjög ánægður með seinni
hálfleikinn þar sem við náðum að
setja tvö mörk og það er mjög
jákvætt að halda hreinu,“ sagði
Sigurður Ragnar Eyjólfsson lands-
liðsþjálfari.
Hann gaf ungum stelpum strax
tækifæri í hálfleik og þær Rakel
Hönnudóttir og Sara Björk Gunn-
arsdóttir áttu sinn þátt í að rífa
upp leik íslenska liðsins í seini
hálfleik.
„Við gáfum leikmönnum tæki-
færi strax í hálfleik og Sara Björk
og Rakel komu þá inn og stóðu sig
mjög vel. Seinni hálfleikurinn var
miklu betri en sá fyrri, sem er
kannski eðlilegt því þetta var
fyrsti grasleikurinn og leikmenn
því aðeins ryðgaðir,“ segir Sigurð-
ur.
Guðbjörg Gunnarsdóttir lék
þarna sinn fyrsta leik í íslenska
markinu síðan hún tók við stöðu
Þóru Bjargar Helgadóttur sem
aðalmarkvörður liðsins.
„Guðbjörg greip mjög vel inn í,
kláraði það sem hún þurfti að gera
og átti fínan leik,“ sagði Sigurður
og bætti við: „Við höfum ekki enn
fengið á okkur mark í opnum leik í
Evrópukeppninni. Það segir okkur
að vörnin okkar sé mjög sterk.”
Fram undan er leikur gegn
Írlandi á morgun. „Írska liðið er
sterkt, við gerðum 1-1 jafntefli við
þær í fyrra í leik sem hefði getað
farið á hvorn veginn sem var. Þær
eru með vaxandi lið og ég á von á
hörkuleik á föstudaginn. Mótið
mun nýtast okkur mjög vel. Við
ætlum aðeins að breyta hlutum
fyrir næsta leik og prófa okkur
áfram. Það er gott að hafa svona
stutt á milli leikjanna því það eru
sex mánuðir síðan við spiluðum
síðast,“ sagði Sigurður Ragnar að
lokum. - óój
Íslenska kvennalandsliðið vann 2-0 sigur á Póllandi í fyrsta leik sínum á Algarve Cup í Portúgal í gær:
Stelpurnar komust í gang í síðari hálfleik
MARKASKORARARNIR Margrét Lára Viðarsdóttir og Dóra Stefánsdóttir skoruðu mörk-
in gegn Póllandi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Meistaradeild Evrópu:
Real Madrid-Roma 1-2
0-1 Rodrigo Taddei (73.), 1-1 Raul (75.), 1-2 Mirko
Vucinic (90.+2).
Chelsea-Olympiacos 3-0
1-0 Michael Ballack (5.), 2-0 Frank Lampard, 3-0
Salomon Kalou (48.).
Porto-Schalke 1-4 í vítum (1-0)
1-0 Lisandro (86.)
Enska úrvalsdeildin:
Liverpool-West Ham 4-0
1-0 Fernando Torres (8.), 2-0 Fernando Torres
(60.), 3-0 Fernando Torres (81.), 4-0 Steven
Gerrard (83.).
Iceland Express-deild kvk:
KR-Keflavík 59-90
Stig KR: Candace Futrell 23, Hildur Sigurðar-
dóttir 8, Sigrún Ámundadóttir 8, Guðrún Gróa
Þorsteinsdóttir 6, Guðrún Ósk Ámundadóttir 6,
Helga Einarsdóttir 5, Lilja Oddsdóttir 3.
Stig Keflavíkur: Pálína Gunnlaugsdóttir 19,
Susanne Biemer 17, Rannveig Randversdóttir 11,
Margrét Sturludóttir 11, Birna Valgarðsdóttir 10,
TaKesha Watson 7, Hrönn Þorgrímsdóttir 6, Hall-
dóra Andrésdóttir 5, Ingibjörg Vilbergsdóttir 4.
Haukar-Grindavík 87-73
Stig Hauka: Victoria Crawford 42 (10 frák., 5
stoðs.), Kristrún Sigurjónsdóttir 13, Ragna Mar-
grét Brynjarsdóttir 10, Telma Björk Fjalarsdóttir
7 (9 frák.), Hanna Hálfdanardóttir 6, Unnur Tara
Jónsdóttir 4, Kristín Fjóla Reynisdóttir 3, Bára
Fanney Hálfdanardóttir 2.
Stig Grindavíkur: Tiffany Roberson 21 (10 frák.),
Joanna Skiba 18 (9 stoðs.), Petrúnella Skúladóttir
17 (5 þristar), Jovana Lilja Stefánsdóttir 8, Helga
Hallgrímsdóttir 4, Ólöf Helga Pálsdóttir 3, Ingi-
björg Jakobsdóttir 2.
Hamar-Valur 81-66
ÚRSLIT
ÓLYMPÍULEIKAR Kínverjar hafa
ekki í hyggju að veita frægustu
íþróttamönnunum, á komandi
Ólympíuleikum í Peking í haust,
einhverja sérmeðferð í Ólympíu-
þorpinu.
Málið hefur verið tekið upp í
fjölmiðlum í kjölfar þess að
Roger Federer efaðist um að
hann gæti búið með löndum
sínum frá Sviss.
Federer kvartaði mikið yfir
öllu því ónæði sem hann varð
fyrir í Aþenu fyrir fjórum árum.
„Í Ólympíuþorpinu eru allir jafnir
og það sama gildir um alla,“ sagði
Yu Debin, yfirmaður Ólympíu-
þorpsins.
Nýkjörinn besti knattspyrnu-
maður heims, Kaká, mun spila
með Brasilíu á leikunum og mun
búa í Ólympíuþorpinu og þeir eru
fleiri sem verða ekki bara undir
smásjánni í sjálfri keppninni
heldur einnig hjá „minna“
þekktum íþróttamönnum í Ólymp-
íuþorpinu. - óój
Ólympíuþorpið í Peking:
Frægir fá enga
sérmeðferð
> Sigrar hjá Flensburg og Gummersbach
Flensburg vann verulega góðan sigur á útivelli, 24-28,
gegn Lemgo í gær í þýsku deildinni. Alexander Petersson
skoraði þrjú mörk fyrir Flensburg í leikn-
um og Logi Geirsson þrjú fyrir Lemgo.
Flensburg er í öðru sæti deildarinnar,
einu stigi á eftir Kiel. Gummers-
bach lagði svo Montpellier í
Meistaradeildinni, 30-25. Guðjón
Valur Sigurðsson skoraði fjögur
mörk fyrir Gummersbach og
Róbert Gunnarsson tvö. Gum-
mersbach er jafnt Ciudad Real
á toppi riðilsins en hefur leikið
einum leik meira.
KÖRFUBOLTI Keflavík tryggði sér
deildarmeistaratitilinn með
glæsibrag þegar liðið vann 31
stigs stórsigur á KR, 90-69, í
DHL-Höllinni í gærkvöldi.
Keflavíkurliðið er greinilega að
koma upp á réttum tíma því í
leiknum á undan vann liðið 48
stiga sigur á Haukum í Keflavík.
KR var eina liðið sem átti
möguleika á að ná Keflavík en
KR-stúlkur geta nú einbeitt sér að
úrslitaleiknum um 2. sætið við
Grindavík í lokaumferðinni.
Pálína Gunnlaugsdóttir sem var
að verða deildarmeistari þriðja
árið í röð átti mjög góðan leik í
liði Keflavík en annars var það
góður varnarleikur, jöfn stigas-
korun og góð liðsheild sem lagði
grunn að frábærum sigri.
Það skipti ekki máli að Kesha
Watson skoraði aðeins 7 stig í
leiknum ekki síst þar sem
Susanne Biemer og Rannveig
Randversdóttir voru mjög
sterkar í fyrri hálfleik.
Candace Futrell skoraði 19 stig í
fyrri hálfleik og hélt KR inn í
leiknum á stórum stundum en
skorti úthald til að klára leikinn
af sama krafti.
Haukar unnu á sama tíma 14
stig sigur á
Grindavík, 87-
73, þar sem
Victoria
Crawford var
með 42 stig,
10 fráköst
og 5
stoðsend-
ingar í sínum
fyrsta leik og
Haukaliðið
vann
öruggan
sigur á
bikarmeist-
urunum. - óój
Iceland Express-deild kvenna:
Keflavík deild-
armeistari
FÓTBOLTI Chelsea, Roma og Schalke
tryggðu sér sæti í átta liða úrslit-
um Meistaradeildar Evrópu í gær.
Þar með hafa sjö lið tryggt sér
þáttökuseðil á meðal þeirra átta
bestu en Liverpool og Inter bítast
um lokafarseðilinn á Ítalíu þann
ellefta þessa mánaðar.
Leik Real Madrid og Roma á
Santiago Bernabeau var beðið með
talsverðri eftirvæntingu. Roma
vann fyrri leikinn frekar óvænt, 2-
1, og spurning hvernig Rómverj-
um myndi reiða af í gryfjunni á
Santiago Bernabeau í Madrid gegn
geysisterku liði Real.
Það er skemmst frá því að segja
að Rómverjar héldu sínu og rúm-
lega það. Fyrri hálfleikur var frek-
ar tíðindalítill og markalaust í
leikhléi.
Fjörið byrjaði af alvöru er 20
mínútur lifðu leiks. Þá fékk Pepe,
leikmaður Real Madrid, sitt annað
gula spjald og þar með það rauða.
Rómverjar voru fljótir að nýta sér
liðsmuninn og tóku forystuna
tveim mínútum síðar með marki
Taddei og Real í vondum málum.
Heimamenn gáfust ekki upp og
Raul jafnaði leikinn tveim mínút-
um eftir mark Taddeis. Síðustu 15
mínútur leiksins voru fjörugar,
Real sótti af kappi en gáf færi á
sér í vörninni.
Það nýtti Mirko Vucinic sér til
fullnustu í uppbótartíma er hann
skoraði sigurmark Roma í leikn-
um. Magnað afrek hjá Rómverj-
um.
Eins og búist var við lenti Chel-
sea ekki í neinum vandræðum
með Olympiacos á Brúnni. Ball-
ack kom þeim yfir eftir 5 mínútur
og Ballack kláraði rimmuna með
öðru marki á 25. mínútu. Kalou
bætti marki við í upphafi seinni
hálfleiks og þar við sat.
Porto varð að vinna upp 1-0 tap
gegn Schalke á heimavelli í gær
og það gerði Lisandro á 86. mínútu
þó svo Porto væri manni færri
eftir að hafa missti Fucile af velli
átta mínútum fyrir leikslok. Það
varð því að framlengja rimmuna.
Dauðþreyttir heimamenn gáfu
sig alla í þær mínútur sem voru
eftir og náðu að knýja fram víta-
spyrnukeppni.
Þar var Manuel Neuer, mark-
vörður Schalke, hetjan er hann
varði tvö víti á meðan Schalke
skoraði úr öllum sínum spyrnum.
henry@frettabladid.is
Roma sló út Real Madrid
Roma kom skemmtilega á óvart í Meistaradeildinni í gær með því að slá Spán-
armeistara Real Madrid úr keppninni með sigri á Santiago Bernabeau. Chelsea
vann auðveldan sigur á Olympiacos. Dramatík var hjá Porto og Schalke.
GLEÐI Rodrigo Taddei fagnar hér marki sínu gegn Real Madrid innilega ásamt félaga
sínum Juan. Roma er komið í átta liða úrslit keppninnar. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES