Fréttablaðið - 20.03.2008, Side 8

Fréttablaðið - 20.03.2008, Side 8
 20. mars 2008 FIMMTUDAGUR VISSIR ÞÚ … AÐ VILDARKORTSHAFAR VISA OG ICELANDAIR FÁ REGLULEGA SEND GLÆSILEG FERÐATILBOÐ? WW W.VIL DARKLUBBUR.IS Vildarklúbbur WWW.VILDARKLUBBUR .IS ÍS L E N S K A S IA .IS IC E 41526 03 /08 HJÁ VILDARFYRIRTÆKJUM VISA OG ICELANDAIR Handhafar Vildarkorts VISA og Icelandair safna Vildarpunktum hraðar með því að beina viðskiptum sínum til Vildarfyrirtækja Vildarklúbbsins. Frá 17. mars til 1. apríl fá þeir tvöfaldan afslátt í formi Vildarpunkta þegar þeir greiða með kortinu sínu. Meðal Vildarfyrirtækjanna eru: OLÍS, um allt land ÓB, um allt land SÓLNING, Smiðjuvegi 32—34 SÓLNING, Fitjabraut 12, Njarðvík SÓLNING, Austurvegi 58, Selfossi BARÐINN, Skútuvogi 2 TVÖFALDIR VILDAR- PUNKTAR TIL 1. APRÍL AÐALFUNDUR Aðalfundur Byrs verður haldinn miðvikudaginn 9. apríl kl. 16.00 á Hilton Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík. Atkvæðaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir á fundarstað og hefst afhending þeirra kl. 14.30. Stjórn Byrs. KABÚL, FRÉTTABLAÐIÐ Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir utanríkisráðherra lauk ferð sinni til Afganistan með því að ganga á fund Hamid Karzai forseta í gærmorgun. Á fundi þeirra óskaði Karzai sérstaklega eftir því að Íslendingar kæmu með sérþekk- ingu í skógrækt til Afganistans. Hann sagði reyndar að Ísland og Afganistan ættu ýmislegt sameig- inlegt, meðal annars að vera stór lönd, strjálbýl og fjöllótt og þau hefðu bæði orðið fyrir mikilli skóg- eyðingu. Það sem hefði eyðilagt skóginn í Afganistan væru þurrkar, stríð og græðgi, en af þessu þrennu væri græðgin sýnu verst. Loks hló hann og bætti því við að þessi tvö lönd ættu það einnig sam- eiginlegt að hafa sigrað Breta þrisvar sinnum. Kvöldið áður en hún hitti Karzai hafði Ingibjörg snætt kvöldverð með hópi afganskra kvenna, sem allar hafa látið að sér kveða við afar erfiðar aðstæður í heimalandi sínu. Í hópnum voru meðal annars nokkr- ar afganskar þingkonur og eini kvenkyns herforingi landsins. „Þessar konur hafa allar ótrúlega mikla uppsafnaða reynslu af því að takast á við aðstæður sem í raun- inni eru algerlega óviðunandi fyrir konur,“ sagði Ingibjörg, sem fékk að heyra hvernig þær börðust á sínum tíma gegn hernámi Sovét- manna og síðar meir gegn talibana- stjórninni. Sumar þurftu að flýja land, en aðrar þraukuðu í gegnum sannkallað helvíti. „Sumar þeirra sýndu alveg ótrú- legan kjark. Þær ráku í felum skóla fyrir börn á tímum talibananna í og tóku þátt í ótrúlegustu aðgerðum á þessum tíma þar sem þær lögðu bæði sig og sína í mikla hættu.“ Ingibjörg hefur haft þéttskipaða dagskrá þá daga sem hún hefur dvalist í Afganistan. Snemma á miðvikudagsmorgni flaug hún til Maimana, 100 þúsund manna bæjar í norðvestanverðu Afganistan, þar sem íslenska frið- argæslan mun í næsta mánuði hefja nýja starfsemi til viðbótar þeirri starfsemi sem nú þegar er í gangi í höfuðborginni Kabúl. Ragnheiður Kolsöe verður þar þróunarráðgjafi og segir sitt fyrsta verkefni, þegar hún kemur á stað- inn í apríl, verða að fara yfir óskir heimamanna og kanna hvar þörfin er mest og hvar Íslendingar geta helst komið að gagni. gudsteinn@frettabladid.is Ræddu konur og skógrækt Forseti Afganistans óskar eftir því að Íslendingar miðli sérþekkingu í skógrækt til Afganistans. Heim- sókn Ingibjargar Sólrúnar til Afganistan lauk í gær. Í HÖLLU FORSETA Hamid Karzai tjáði Ingibjörgu Sólrúnu að Ísland ætti það m.a. sameiginlegt með Afganistan að hafa sigrað Breta þrisvar sinnum. FRÉTTABLAÐIÐ/GUÐSTEINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.