Fréttablaðið - 20.03.2008, Side 20
20 20. mars 2008 FIMMTUDAGUR
Franski konungurinn hafði
tekið við völd-
um eftir að
Napóleon hafði
flúið frá Frakk-
landi. Napó-
leon, sem var
í hálfgerðri út-
legð, sagði skil-
ið við konu sína
og son og ákvað
að snúa aftur.
Napóleon kom
aftur á megin-
land Evrópu 1.
mars og náði
að safna 340.
þúsund manna
her á stuttum
tíma og hrifsaði til sín völd-
in á ný. Þessi end-
urkoma Napóleons
til Parísar og tími
hans við völd á ný er
oft kallaður hundr-
að dagarnir. Á þess-
um tíma var Napó-
leon orðinn ansi
slæmur af gyllinæð
vegna stöðugrar setu
á hesti sínum. Hann
gat aðeins setið stutt
á baki og það háði
honum til dæmis
þegar hann barðist
í Waterloo þar sem
hann var ávallt að
fara af baki og á.
ÞETTA GERÐIST: 20. MARS 1815
Napóleon aftur í ParísHENRIK IBSEN LEIKRITASKÁLD
FÆDDIST ÞENNAN DAG 1828.
„Minnihlutinn getur haft
rétt fyrir sér en meirihlutinn
hefur alltaf rangt fyrir sér.“
Henrik Ibsen var norskur leik-
ritahöfundur sem náði heims-
athygli með leikritum á borð
við Pétur Gaut, Brúðuheim-
ilið, Þjóðníðing og Heddu
Gabler. Sagt er að verk Ibsens
séu hvað oftast sett upp á eftir
verkum Shakespeares.
Kristinn Ólason Skálholtsrektor er
kominn norður til Akureyrar og flyt-
ur þar tvo ólíka fyrirlestra um bæna-
dagana. Báðir tengjast þeir kristinni
trú.
„Ég fjalla í dag um kristinn mann-
skilning út frá þeim textum sem
varðveittir eru í Biblíunni. Sá fyrir-
lestur er á vegum Félags áhuga-
manna um heimspeki á Akureyri.
Biblíutextarnir gefa okkur myndir
af manneskjunni á meira en þúsund
ára tímabili,“ segir Kristinn aðspurð-
ur um þann boðskap sem hann ætlar
að bera Akureyringum. Athugasemd
um að mannlífið hafi tekið allnokkr-
um breytingum frá því Biblían var
rituð svarar hann með kristilegu um-
burðarlyndi.
„Vissulega eru kirkjunnar menn í
nútímanum oft að túlka texta sem eru
nær 2000 ára gamlir og það er ekki
alltaf vandalaust. En textarnir fjalla
um grundvallarspurningar mannlífs-
ins og eiga því við á öllum tímum. Þeir
eru sá brunnur sem við sækjum í og
þess vegna er predikað út frá þeim í
kirkjunni á hverjum sunnudegi. Þeir
þurfa bara að orðast upp á nýtt með
hverri kynslóð.“
Í Glerárkirkju verður dagskrá á
morgun, föstudaginn langa, með töl-
uðu orði, tónlist og kaffiveitingum.
Þar ætlar Kristinn að ræða um bar-
áttu góðs og ills. Hann kveðst þá
meðal annars líta til lífsgæða sem séu
takmörkunum háð.
Hvað á hann við? „Takmörkun lífs-
gæða hefur alltaf verið til staðar,
hvort sem er vegna sjúkdóma, styrj-
alda, afbrota eða annarrar mannlegr-
ar niðurlægingar. Við vitum að alls-
staðar þar sem líf verður til þá er það
jafnframt dæmt til að deyja. Þetta
eru skorður sem öllu mannlegu lífi
eru settar.
En kristin trú varpar tilteknu ljósi
á líf mannsins og gefur því ákveðna
merkingu. Grunnstef trúarinnar
gerir ráð fyrir því að Kristur hafi
verið sonur Guðs, hann hafi dáið
fyrir mannkynið og síðan risið upp
til að gefa lífi allra manna nýja merk-
ingu.“ gun@frettabladid.is
KRISTINN ÓLASON SKÁLHOLTSREKTOR: MEÐ TVÖ ERINDI UM TRÚMÁL Á AKUREYRI
Með upprisu gaf Kristur
lífi manna nýja merkingu
„TEXTAR BIBLÍUNNAR FJALLA UM GRUNDVALLARSPURNINGAR MANNLÍFSINS OG EIGA ÞVÍ VIÐ
Á ÖLLUM TÍMUM. Þeir eru sá brunnur sem við sækjum í þess vegna er predikað út frá þeim á
hverjum sunnudegi,“ segir Kristinn Skálholtsrektor. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
timamot@frettabladid.is
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Árnýjar Guðríðar Enoksdóttur
frá Hópi, Grindavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Víðihlíð í Grindavík.
Þorsteinn Guðmundsson Rungnapha Guðmundsson
Kristín Guðmundsdóttir Helgi Þór Magnússon
Þorvaldur Guðmundsson Somphop
Birgir Ingi Guðmundsson
Þórlaug Guðmundsdóttir Þorlákur Grímur Halldórsson
ömmubörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Guðný Ingibjörg
Bjarnadóttir
Vallargötu 7, Sandgerði,
lést mánudaginn 17. mars á Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja.
Jón Ásmundsson Helga Karlsdóttir
Kristín Ásmundsdóttir Jón Árni Ólafsson
Ragnheiður Ásmundsdóttir Magnús Árnason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, amma og lang-
amma,
Guðrún Lilja Halldórsdóttir
Barðaströnd 10, Seltjarnarnesi,
lést á landspítalanum 17. mars síðastliðinn.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Örn Ármann Sigurðsson
Halldór Ármann Sigurðsson
Anna Sigurbjörg Sigurðardóttir
Magnús Ármann Sigurðarson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir sendum við til allra sem
sýndu okkur samúð og vináttu vegna
andláts eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Þráins Sigtryggssonar
skipstjóra og útgerðarmanns
Grundarbraut 26, Ólafsvík.
Guðbjörg Elín Sveinsdóttir
Egill Þráinsson Hrefna Guðbjörnsdóttir
Pálína Þráinsdóttir Ingvar Sigurðsson
Bryndís Þráinsdóttir Valur Magnússon
Sigurbjörg Þráinsdóttir Þröstur Kristófersson
Björk Þráinsdóttir Lárus Einarsson
Berglind Þráinsdóttir Heimir Maríuson
Sigtryggur Þráinsson Margrét Helgadóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar,
Þorbergur Kristjánsson
Brúnahlíð,
verður jarðsunginn frá Grenjaðarstaðarkirkju
laugardaginn 22. mars kl 14.00.
Kristín Þorbergsdóttir Ægir Eiríksson
Guðný Þorbergsdóttir Sverrir Haraldsson
Þuríður Kristjana Þorbergsdóttir Gísli Gunnarsson
Árni Þorbergsson Sigrún Óladóttir
og fjölskyldur.
Ástkær sambýliskona, móðir, tengdamóðir
og amma,
Hólmfríður Davíðsdóttir
Hlíðarhjalla 69,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þriðju-
daginn 18. mars. Útför verður auglýst síðar.
Gunnar Ásmundsson
Davíð Guðmundsson Hulddís Guðbrandsdóttir
Ásgeir Sigurðsson Arndís Kristjánsdóttir
Kolbrún Marín og Róbert Dagur.
Ástkær faðir og bróðir okkar,
Birgir Gunnarsson
lést á gjörgæsludeild Landspítalans sunnudaginn
2. mars síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda
Guðbjörn Helgi Birgisson
Gunnar Gunnarsson
Ólafur Gunnarsson
Sigrún Edda Gunnarsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir