Fréttablaðið - 20.03.2008, Síða 40
32 20. mars 2008 FIMMTUDAGUR
Iceland Express-deild kvk:
Keflavík-Haukar 82-67
Stig Keflavíkur: Pálína Gunnlaugsdóttir 22,
TaKesha Watson 18, Ingibjörg Vilbergsdóttir 15,
Susanne Biemer 13, Margrét Kara Sturludóttir 6
(11 frák.), Birna Valgarðsdóttir 3, Hrönn Þorgríms-
dóttir, Rannveig Randversdóttir 2.
Stig Hauka: Victoria Crawford 25, Telma Björk
Fjalarsdóttir 10 (11 frák.), Guðbjörg Sverrisdóttir
10, Unnur Jónsdóttir 6, Kristín Reynisdóttir
5, Ragna Brynjarsdóttir 4 (11 frák.), Bryndís
Hreinsdóttir 3, Kristrún Sigurjónsdóttir 2, Hanna
Hálfdánardóttir 2.
KR-Grindavík 66-78
Stig KR: Candace Futrell 29 (13 frák.), Hildur
Sigurðardóttir 22 (11 frák.), Sigrún Ámundadóttir
8, Guðrún Þorsteinsdóttir 7.
Stig Grindavíkur: Tiffany Roberson 26 (14
frák.), Joanna Skiba 15, Jovana Lilja Stefánsdóttir
13, Petrúnella Skúladóttir 10 (9 frák.), Ingibjörg
Jakobsdóttir 9, Ólöf Helga Pálsdóttir 5.
Enska úrvalsdeildin:
Man. Utd-Bolton 2-0
1-0 Cristiano Ronaldo (9.), 2-0 Cristiano Ronaldo
(19.)
Tottenham-Chelsea 4-4
0-1 Didier Drogba (3.), 1-1 Jonathan Woodgate
(12.), 1-2 Michael Essien (20.), 1-3 Joe Cole (52),
2-3 Dimitar Berbatov (61.), 3-3 Tom Huddlestone
(75.), 3-4 Joe Cole (80.), 4-4 Robbie Keane (88).
HM U-20 kvenna:
Ísland-Ungverjaland 27-35
Mörk Íslands: Karen Knútsdóttir 7, Stella Sigurð-
ardóttir 5/4, Rut Jónsdóttir 3, Auður Jónsdóttir
3/1, Rebekka Skúladóttir 2, Hildigunnur Einars-
dóttir 2, Karólína Gunnarsdóttir 2, Þórey Rósa
Stefánsdóttir 2, Arna Sif Pálsdóttir 1.
Varin skot: Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir 19,
Guðrún Ósk Maríasdóttir 2.
Lengjubikar karla:
Valur-Breiðablik 2-1
Atli Þórarinsson, René Carlsen - Nenad Zivanovic.
Upplýsingar frá fótbolti.net.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI FH-ingurinn Tryggvi
Guðmundsson hefur verið
kallaður inn í landsliðið fyrir
vináttuleikinn gegn Slóvökum
sem fram fer ytra 26. mars
næstkomandi.
Tryggvi kemur í stað Helga
Sigurðssonar Valsmanns sem er
meiddur. - hbg
Knattspyrnulandsliðið:
Tryggvi inn í
stað Helga
TRYGGVI GUÐMUNDSSON Í landsliðinu
sem mætir Slóvökum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI Manchester United er
komið með þriggja stiga forskot í
ensku úrvalsdeildinni eftir 2-0
sigur á Bolton á Old Trafford í
gær. Chelsea varð af dýrmætum
stigum á White Hart Lane í ótrú-
legum 4-4 jafnteflisleik gegn Tot-
ten ham.
Portúgalski snillingurinn Cristi-
ano Ronaldo sá um að afgreiða
Bolton með tveimur mörkum á
fyrstu 19 mínútum leiksins. Fyrst
með skoti í teignum og svo með
frábæru marki beint úr auka-
spyrnu.
Leikur Tottenham og Chelsea
var ótrúleg skemmtun. Þrjú mörk
voru skoruð á fyrstu 20 mínútun-
um og 2-1 fyrir Chelsea í leikhléi.
Joe Cole kom Chelsea í 1-3 í upp-
hafi síðari hálfleiks en Spurs neit-
aði að gefast upp.
Berbatov og Huddlestone jöfn-
uðu fyrir Spurs þegar 15 mínútur
voru eftir af leik.
Cole kom Chelsea aftur yfir en
Robbie Keane bjargaði stigi fyrir
Tottenham með frábæru marki
tveimur mínutum fyrir leikslok. 4-
4 í frábærum leik. - hbg
Tveir leikir fóru fram í enska boltanum í gærkvöld:
Man. Utd komið með
þriggja stiga forskot
CRISTIANO RONALDO Sá til þess enn og aftur í gær að Man. Utd fékk þrjú stig.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Ísland fór ekki vel af
stað í undankeppni U-20 kvenna.
Íslensku stelpurnar töpuðu
opnunarleik sínum gegn Ungverj-
um í Digranesi í gær, 27-35.
Ungverjar leiddu með einu
marki í leikhléi, 16-15, og jafnt
var á með liðunum framan af
síðari hálfleik. Um miðbik
hálfleiksins stungu síðan ung-
versku stelpurnar af og kláruðu
leikinn.
„Ég er eðlilega alveg hundfúl.
Við vorum í tækifæri allan
leikinn en síðan hrynur allt undir
lokin,“ sagði Guðríður Guðjóns-
dóttir, aðstoðarþjálfari íslenska
liðsins.
„Það var fyrst og fremst slæm
nýting á dauðafærum sem felldi
okkur en ég held við höfum farið
með ein 15 opin færi í leiknum
sem er eðlilega allt of mikið. Svo
voru lykilmenn í vörn að klikka
og annað. Það er ekki þetta mikill
munur á liðunum og því er ekki
að neita að niðurstaðan er ákveðið
áfall. Baráttan er samt ekki búin
og við munum halda áfram að
berjast,“ sagði Guðríður að
lokum. - hbg
Undankeppni U-20 kvenna:
Slæmt tap gegn
Ungverjum
ÖFLUG Karen Knútsdóttir átti flottan leik
fyrir Ísland en það dugði ekki til.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Keflavík er komið í
lokaúrslitin um Íslandsmeistara-
titil kvenna sjötta árið í röð eftir
öruggan 15 stiga sigur á fráfar-
andi Íslandsmeisturum Hauka, 82-
67, í þriðja leik liðanna í undanúr-
slitum Iceland Express-deild
kvenna í Toyota-höllinni í Kefla-
vík í gær. Keflavíkurstúlkur héldu
skotsýningu sinni áfram frá því í
síðasta leik og skoruðu 48 prósent
af körfum sínum í leiknum fyrir
utan þriggja stiga línuna.
Keflavík hefur þurft að sætta
sig við silfur á Íslandsmótinu síð-
ustu tvö ár en nú er liðið komið í
mikinn meistaraham og búið að
vinna síðustu ellefu leiki sína í
deild og úrslitakeppni. Pálína
Gunnlaugsdóttir átti mjög góðan
leik og hjálpaði til við að enda sig-
urgöngu Haukstúlkna sem hafa
orðið Íslandsmeistarar tvö undan-
farin ár með hana innanborðs.
„Þetta var allt annað hjá mér en í
síðustu þremur leikjum á móti
Haukum. Við erum að spila rosa-
lega góða vörn, erum með góða
liðsheild og það eru allir að standa
saman. við lögðum upp með að
spila rosalega góða vörn og stoppa
Victoriu Crawford og það hefur
gengið mjög vel,“ sagði Pálína
Gunnlaugsdóttir og bætti við. „Við
erum í meistaraham og ég spái að
við vinnum 3-0 í úrslitunum,“
sagði Pálína að lokum.
„Þetta er búið að vera voðalega
þægilegt, það er ótrúleg stemning
í liðinu og það er rosalega auðvelt
að undirbúa liðið þegar allir eru
svona jákvæðir. Þær eru tilbúnar
að leggja þvílíkt á sig og það skín í
gegn núna,“ sagði Jón Halldór
Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur
sem vill laga eitt fyrir úrslitaleik-
ina.
„Það fer í taugarnar á mér hvað
við erum að skjóta mikið af þriggja
stiga skotum. Ég vil að þær keyri
meira upp að körfunni því við
erum með fljótar stelpur sem eiga
að gera miklu meira af því. Við
erum að leyfa andstæðingunum að
þvinga okkur út fyrir þriggja stiga
línuna en við erum með góðar
skyttur og það er það sem heldur
okkur á floti,“ sagði Jón Halldór
en Keflavíkurliðið hefur skorað 28
þriggja stiga körfur í síðustu
tveimur leikjum.
Kollegi hans hjá Haukum sá
björtu hliðarnar þrátt fyrir sárt
tap. „Ég vil hrósa mínu liðið fyrir
það að hafa ekki hengt haus þegar
útlitið var svart,“ sagði Yngvi
Gunnlaugsson, þjálfari Hauka
sem býst við litlum breytingum á
Haukaliðinu. „Það eru margir leik-
menn sem eru að stíga sín fyrstu
spor og aðrir sem eru að spila í
fyrsta skipti í úrslitakeppni. Ég
held að við séum reynslunni ríkari
og mér líst vel á framhaldið. Lykil-
leikmenn eru með tveggja ára
samning og ég býst við að halda
þeim og ætla sjálfur að þjálfa liðið
áfram nema þá ef ég verð rekinn,“
sagði Yngvi í léttum tón.
Grindavík sótti góðan sigur
gegn KR í Vesturbæinn og staðan í
því einvígi 2-1 fyrir KR. Grinda-
víkurstúlkur, með Roberson og
Skiba, í farabroddi, tóku frum-
kvæðið í upphafi og slepptu því
aldrei. Leiddu 14-26 eftir fyrsta
leikhluta og 32-45 í leikhléi.
Staðan var 47-58 eftir þrjá leik-
hluta og KR náði mest að minnka
muninn í 63-69 en þá stakk Grinda-
vík aftur af. Roberson var frábær
með tvöfalda tvennu og Skiba var
einnig góð. Íslendingarnir Jovana
Lilja og Petrúnella skiluðu einnig
sínu. Hildur Sigurðardóttir og
Candace Futrell voru allt í öllu hjá
KR.
- óój / - hbg
Meistarar Hauka úr leik
Keflavík sópaði Íslandsmeisturum Hauka út úr úrslitakeppninni í gær. Grinda-
vík minnkaði aftur á móti muninn í rimmunni gegn KR með góðum útisigri.
PETRÚNELLA SKÚLADÓTTIR Átti fínan
leik fyrir Grindavík í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KOMNAR Í ÚRSLIT Keflavíkurstúlkur fögnuðu vel í leikslok MYND/VÍKURFRÉTTIR