Fréttablaðið - 22.04.2008, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 22. apríl 2008 13
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 238
5.237 -1,19% Velta: 1.782 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 7,38 -0,27% ... Bakkavör 42,60
-0,23% ... Eimskipafélagið 23,00 -0,65% ... Exista 12,03 -1,72% ... FL
Group 6,59 -1,94% ... Glitnir 16,70 -2,05% ... Icelandair Group 24,10
+0,00% ... Kaupþing 840,00 -1,41% ... Landsbankinn 31,10 -0,64%
... Marel 89,70 +0,00% ... SPRON 5,22 -2,25% ... Straumur-Burðarás
12,23 -0,65% ... Teymi 4,01 +0,00% ... Össur 91,00 +0,00%
MESTA HÆKKUN
ATLANTIC PET. +1,32%
MESTA LÆKKUN
EIK BANKI -2,44%
SPRON -2,25%
GLITNIR -2,05%
Umsjón: nánar á visir.is
„Íbúðalánasjóður er með þessu að teygja sig
eins og hann getur á móti Seðlabankanum og
hávaxtastefnu hans,“ segir Hallur Magnússon
ráðgjafi.
Íbúðalánasjóður hefur þegar lækkað vexti í
kjölfar útboðs á íbúðabréfum sem hófst á föstu-
dag. Vextir af lánum með uppgreiðsluákvæði
verða 5,2 prósent, voru áður 5,5. Vextir af lánum
án uppgreiðsluákvæðis lækka hins vegar mun
minna. Þeir voru 5,75 prósent en verða nú 5,7.
Stjórn Íbúðalánasjóðs segir að vaxtaálag
vegna uppgreiðsluáhættu verði framvegis 0,95
prósentustig, en var áður minna.
Hallur bætir því við að sjóðurinn hafi ekki
farið í útboð á fyrsta fjórðungi ársins. Það styðji
enn fremur við markmið Seðlabankans.
Hallur Magnússon segir að sjóðurinn hefði getað skilað lægri
útlánavöxtum en raunin varð. Sjóðurinn hefði hins vegar boðið
út mikið af bréfum í stuttum lánaflokki, sem hafi hækkað ávöxt-
unarkröfu sjóðsins. „Íbúðalánasjóði hefði verið í lófa lagt að
taka einungis tilboðum í lengri flokkunum.
Enda eru útlán hans fyrst og fremst til langs
tíma. Allar forsendur hefðu því verið til
þess að lækka vexti jafnvel niður í fimm
prósent eða 5,05 prósent miðað við fyrir-
liggjandi forsendur.“
Ingólfur Bender, forstöðumaður Grein-
ingar Glitnis, segir vaxtalækkun sjóðsins úr
takti við við aðgerðir Seðlabankans. „Íbúða-
lánasjóður er ekki að spila með í þessari
hagstjórn, þannig að út frá peningalegu
aðhaldi myndi ég telja þetta neikvætt,“
segir Ingólfur. „En það má raunar segja
sjóðnum til hróss að hann lækkaði vextina
ekki eins mikið og hann hefði í rauninni
getað.“
Ingólfur bætir því við að ekki sé við sjóðinn að sakast heldur
fremur löggjöf um sjóðinn. „Þetta kynni hins vegar að teljast
jákvætt ef litið er til húsnæðismarkaðarins, þar sem lítið er um
að vera um þessar mundir. “ - ikh
Gat lækkað vextina enn meira
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR LÆKKAR VEXTI
Hallur Magnússon og Ingólfur Bender
segja báðir að sjóðurinn hefði getað
lækkað vextina meira en raunin varð.
Skilyrði vegna yfirtöku Marel Food
Systems á hollenska matvæla-
vinnsluvélaframleiðandanum Stork
Food Systems (SFS) hafa verið upp-
fyllt. Tilkynnt var til kauphallar í
gær að evrópsk samkeppnisyfir-
völd hefðu samþykkt kaupin án
skilyrða.
Samkomulag um kaupin á SFS
fyrir 415 milljónir evra var kynnt
28. nóvember sl. Kaupin voru gerð
með fyrirvara um samþykki sam-
keppnisyfirvalda, jákvæða umsögn
starfsmannasamtaka Stork (Stork
Works Council) og að yfirtökutil-
boð eignarhaldsfélagsins London
Acquisition í það sem eftir stendur
af Stork-iðnsamstæðunni í Hollandi
yrði skilyrðislaust.
Í tilkynningu kemur fram að
Marel hafi að fullu fjármagnað
kaupin á SFS með lánsfé og útgáfu
nýrra hluta. - óká
Skilyrði yfirtöku
Marels uppfyllt
Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s
hefur lækkað lánshæfismat Lands-
virkjunar og segir horfurnar nei-
kvæðar. Lánshæfiseinkunn fyrir-
tækisins var áður A+ en er nú A.
Þetta gerist í kjölfar þess að láns-
hæfiseinkunn íslenska ríkisins var
lækkuð á dögunum. Þá endurspegl-
ar þetta ennfremur yfirburði
Landsvirkjunar á íslenskum raf-
orkukmarkaði, að því er fram
kemur í frétt Forbes.
Standard & Poor‘s hefur einnig
lækkað einkunn Landsvirkjunar
vegna langtímaskuldbindinga í inn-
lendum gjaldmiðli úr AA í AA-, en
staðfestir um leið sambærilega ein-
kunn Landsvirkjunar fyrir skamm-
tímaskuldbindingar í bæði innlend-
um og erlendum gjaldeyri. - ikh
Einkunn Lands-
virkjunar lækkar
RAFLÝSTAR GÖTUR Standard & Poor‘s
nefnir yfirburði Landsvirkjunar á íslensk-
um raforkumarkaði sem eina ástæðu
þess að lánshæfismatið er lækkað.
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, var kjörinn
formaður stjórnar Samtaka fjár-
málafyrirtækja (SFF) á stjórnar-
fundi sem haldinn var á föstudag.
Þar skipti stjórnin með sér verk-
um, en stjórnin var kjörin á aðal-
fundi fyrir hálfum mánuði. Sigurð-
ur Viðarsson, forstjóri TM, var
kjörinn varaformaður stjórnar.
Lárus Welding, fyrrverandi for-
maður, og Helgi Bjarnason, fyrr-
verandi varaformaður, sitja áfram
í stjórninni. Samtök fjármálafyrir-
tækja eru heildarsamtök fjármála-
fyrirtækja á Íslandi. Aðildarfélög
eru viðskiptabankar, fjárfestingar-
bankar, sparisjóðir, tryggingafélög,
verðbréfafyrirtæki, eignaleigur og
kortafélög, í allt 42 félög. - ikh
Halldór tekur við
formennsku SFF
Fljúgðu fyrir klink!
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
F
L
U
4
20
35
0
4.
20
08
Þú getur flogið fyrir aðeins 1.990 krónur,
með sköttum, aðra leiðina milli Reykjavíkur,
Akureyrar, Egilsstaða, Ísafjarðar og
Vestmannaeyja frá 24. til 29. apríl, ef þú
bókar á netinu í dag á flugfelag.is
500 sæti eru í boði svo nú er um að gera að
drífa sig á netið og notfæra sér klinktilboðið.
KLINK
T I L B O Ð
1.990kr.
frá 24. til 29. apríl
500 sæti í boði
Aðeins bókanlegt
í dag, frá kl. 10:00