Fréttablaðið - 22.04.2008, Side 33

Fréttablaðið - 22.04.2008, Side 33
ÞRIÐJUDAGUR 22. apríl 2008 17 SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein- ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. UMRÆÐAN Steingrímur J. Sigfússon skrif- ar um utanríkismál Þegar Samfylkingin settist í ríkis-stjórn og formaður flokksins, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varð utanríkisráðherra gerðu eflaust flestir ráð fyrir að breytt yrði um áherslur hvað varðar öryggis- og utanríkismál þjóðarinnar og það jafnvel svo um munaði. Margir kjósendur, ekki síst Samfylkingar- innar, treystu því að flokkurinn myndi standa við loforðin varðandi Íraksstríðið og lista hinna viljugu, Samfylkingin myndi setja fyrir- vara almennt við hernaðarbrölt, draga okkur út úr Afganistan og fjarlægjast um leið hernaðar- bandalagið NATO og utanríkis- stefnu í anda George W. Bush. Þessir kjósendur vakna nú upp við vondan draum einn af öðrum, jafnvel tryggir flokksmenn skrifa í blöð og undrast áherslurnar vegna þess að ekkert bólar á friðar- og afvopnunarboðskapnum. Loforð um pólitískt samráð hafa verið svikin þar til nú að boðað er að halda skuli tvo fundi á ári með for- mönnum stjórnmálaflokkanna. Í stað pólitísks samráðs hefur hins vegar verið unnið hratt að vígvæð- ingu landsins á forsendum NATO ásamt aukinni þátttöku í mörgum af ógeðfelldustu verkefnum hern- aðarbandalagsins, með tilheyrandi kostnaði fyrir almenning í land- inu. Skilyrðislaust samþykki við víg- væðingu NATO Á NATO-fundinum í Búkarest, sem utanríkisráðherra ásamt forsætis- ráðherra flaug til með fríðu föru- neyti eins og víðfrægt er, var tekin afstaða sem er því miður í hróp- legri mótsögn við þau fögru fyrir- heit sem hafa verið gefin um aukna áherslu á friðsamlega alþjóðasam- vinnu. Í fyrsta lagi kom þar fram stuðningur ráðherra við stækkun NATO til austurs, í andstöðu við nágrannaþjóðir, og með ærnum til- kostnaði fyrir skattgreiðendur við- komandi landa, þar sem viðmiðun- in innan NATO er að a.m.k. 2% af landsframleiðslu fari til vígbúnað- ar. Og hér er að sjálfsögðu um að ræða fátækar þjóðir sem síst af öllu mega við auknum útgjöldum. Í öðru lagi var tekin sú eindregna stefna gagnvart Afganistan að auka frekar en hitt umsvif Íslands á þeim slóðum, senda fleiri menn undir vopnum og undir stjórn hern- aðarbandalagsins NATO til að sinna friðargæslu. Sé eitthvað til í þeim orðum utanríkisráðherra að markmiðið sé að stuðla að friði og velsæld, má þá ekki horfa til ann- arra landa sem búa við mikla fátækt í stað þess að hreinsa til eftir herleiðangra og sprengjuregn Bandaríkjamanna á pólitískum for- sendum? Alvopnaðir íslenskir laut- inantar og yfirliðþjálfar við störf á átakasvæðum eru í hróplegri mót- sögn við friðar- og vopnleysis- arf leifð Íslands og ósamrýmanlegir efni og anda nýrra laga um íslensku friðargæsluna en þar segir að hún skuli vera alfarið borgaraleg. Það þriðja og langalvarlegasta sem ráðherrarnir íslensku gerðu á NATO-fundinum í Búkarest er fyrir varalaus stuðningur við, og fagnaðarlæti yfir, uppsetningu bandaríska eldflaugavarnakerfis- ins í Mið- og Austur-Evrópu. Í þágu þess að geta haldið áfram stjörnu- stríðsplönum sínum – þetta er skil- getið afkvæmi þeirra – sögðu Bandaríkjamenn upp ABM-samn- ingnum í júní 2002, einum mikil- vægasta afvopnunar- og griða- samningi í veröldinni. Í staðinn átti að halda áfram að þróa eldflaugavarnakerfin, sem augljóslega voru brot á þeim samningi, og nú er boðuð upp- setning slíkra kerfa í Evrópu með radarstöð í Tékklandi og eldflaug- um í Póllandi. Hvað gerðu Rússar? Þeir sögðu á móti upp samn- ingum um takmörkun hefðbundins vígbúnað- ar í Evrópu og boða viðbúnað af sinni hálfu. Þessi stefna – stefna George W. Bush – er geysilega umdeild og kjósendur Samfylkingarinnar hljóta að gera kröfur á að utanríkisráðherra og formaður flokksins útskýri hvers vegna hún telur rétt að ýta þannig undir vígbúnaðarkapp- hlaup Bandaríkjanna og NATO. Mesta stefnubreyt- ingin er þó fólgin í nýju frumvarpi til varnar- málalaga sem utanríkis- ráðherra hefur lagt fyrir Alþingi. Um það er fjallað í næstu grein undirritaðs. Hið nýja, árásargjarna NATO Í sambandi við hina nýju utanríkis- og öryggismálastefnu, stefnu NATO-væðingarinnar, er ekki síst mikilvægt að gera sér grein fyrir að það er hið nýja NATO sem um ræðir. Þetta er NATO sem hefur horfið frá fyrri skilgreiningum og markmiðum um að vera svokallað varnarbandalag á því landsvæði sem tilheyrði aðildarríkjunum og til þess að vera árásaraðili, gerandi jafnvel í fjarlægum heimsálfum. NATO stóð sjálft í fyrsta sinn fyrir beinum hernaðaraðgerðum með loftárásunum á Júgóslavíu og tók svo við stríðsrekstrinum í Afgan- istan af Bandaríkjamönnum og Bretum á árinu 2004 enda höfðu þeir þá fundið sér verkefni annars staðar eins og kunnugt er. Þetta er hið nýja NATO sem stendur fyrir 70% af öllum útgjöld- um til hermála í heiminum. Sam- hliða því að NATO-ríkin verji með þessum hætti meiri og meiri fjár- munum í styrjaldir eru fleiri ríki heims að vígbúast, ekki síst Rússar og Kínverjar. Almennt má segja að útlit sé fyrir að verið sé að blása lífi í vígbúnaðarkapphlaupið sem margir töldu að mundi ljúka með hruni Sovétríkjanna. Ábyrgð NATO á þeirri endurlífgun er mikil enda eru það enn NATO-ríkin sem standa fyrir yfirgnæfandi meiri- hluta útgjalda til hermála í heimin- um og hvetja þannig til aukinnar vígvæðingar. Í stað þess að leggja lóð sín á vogarskálar afvopnunar gengur hin nýja íslenska NATO- væðingarstefna út á að taka virk- ari þátt í vígvæðingu NATO og allri starfsemi bandalagsins, virkari en Íslendingar hafa nokkru sinni áður gert. Höfundur er formaður Vinstri grænna. NATO-væðing íslenskra utanríkismála I STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Ifö innréttingar 60 cm og 90 cm með handlaug Ifö cornette sturtuklefar 80 cm x 80 cm Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá 10 -15 Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • Fax: 414 1051 • tengi@tengi.is Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Fax: 414 1001 • www. tengi.is Tilboðið gildir til 3. maí eða meðan birgðir endast.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.