Fréttablaðið - 22.04.2008, Side 37
ÞRIÐJUDAGUR 22. apríl 2008 21
Hvers virði er ég? spyr Bjarni Haukur Þórsson í
nýju uppistandi/leikþætti sem hann flutti í fyrsta
sinn á föstudagskvöldið í Salnum í Kópavogi. Mér
finnst Bjarni fyndinn. Hann er lúnkinn að koma
auga á hið skoplega í fari okkar samferðamanna
sinna. Fyndnin hans er dálítið aldursbundin við hans
eigin aldur, karlkyns og víða stéttabundin, en það
má víst ekki segja lengur hér á landi, við efri
millistétt í þjónustugeiranum. Hún er alþýðleg,
góðleg, aldrei meiðandi og ekki klámfengin. Jafnvel
langur kafli um blöðruhálskirtilinn var laus við
sóðaskap. Þetta er sýning fyrir alla aldurshópa því
hún er í miðjunni á samtali sem er víða í gangi í
samfélaginu.
Bjarni hefur vaxið mikið sem flytjandi frá því fór
fyrst að sjá til hans. Ég missti alveg af Hellisbúa-
ævintýrinu, kynntist honum bara í kvenbúningi á
sjónvarpsskjá. Hann er með frekar þröngt svið sem
flytjandi. Rödd hans er ekki mikið sveigjanleg, hann
beitir líkama sínum lítið en af öryggi, svipbrigðin
eru ekki mörg sem hann ræður við, en styrkur hans
er tónfall og tímasetning: tilfinning fyrir því hvenær
línan eða orðið má falla til að ljúka hugsun eða toppa
hana og sprengja salinn. Það kann hann og með því
eru honum allar gáttir opnar að hláturmiðstöð
salarins.
Í hinni smáborgaralegu tilveru okkar hefur
athugull skopleikari eins og Bjarni endalausar lindir
að sækja í: blöðruhálskirtillinn var nefndur, skókaup
kvenna, sparnaðarpredikun fyrir unglinga, ríka
liðið, fjármálaráðgjafinn í bankanum, úttekt á
eyðsluliðum fjölskyldu í eigin húsnæði – hann
stekkur úr einum pollinum í annan með fimlegum
hætti, sullar þar og skvampar smástund og færir sig
svo í þann næsta.
Rétt eins og í Pabbanum er það Sigurður Sigur-
jónsson sem setur einleikinn/uppistandið á svið og
nú eins og þá stingur hann höfðinu út um munninn á
Bjarna, sest að í honum. Sumir leikstjórar hafa slík
áhrif á leikendur sína. Leikarar henda stundum
gaman að því þegar leikstjórar sem lítið gátu leikið
sýndu leikaranum hvernig átti að gera þetta og hitt.
Það truflar ekki þótt við heyrum Sigga tala úr munni
Bjarna en það er óþarfi. Bjarni hefur nefnilega eigin
rödd.
Þessi sýning er yfirkeyrð af sparisjóðnum Byr
sem kostar hana að einhverju leyti en þar á bæ hafa
menn ekki smekk til að kunna að kosta viðburði sem
þennan. Snjallir kostendur halda sig til hliðar,
frekjan í athygli sem gleypir viðburði er landlæg
meðal kostenda á Íslandi. Hún er fyrst og síðast
frumstætt bisnissvit, vanþróuð tæknileg þekking.
Öll ásýnd sýningar Bjarna er merkt Byr: það er
nánast hlægileg yfirkeyrsla og ósmekklegt. Á sama
hátt er smekkvísi Sigurðar og Bjarna illa brugðið
með þessari eftirgjöf. Fólk sem borgar sig á viðburð
sem þennan á að fá skjól fyrir þessum Byr, jafnvel
þó að hann kosti einhverju til og eigi allar auglýsing-
ar í prógramminu. Páll Baldvin Baldvinsson
Fyndinn maður um fjármál
LEIKLIST
Íslenska leikhúsgrúppan sýnir í Salnum:
Hver$ virði €r ég?
Höfundur og flytjandi: Bjarni Haukur Þórsson
★★★
Bjarni Haukur er fyndinn.
Í tilefni þess að í fyrra voru liðin
tuttugu ár frá stofnun Hjallasafn-
aðar og kór safnaðarins tók til
starfa, svo og að nú í vor eru liðin
fimmtán ár frá vígslu Hjalla-
kirkju, verða stórir hátíðartón-
leikar í kirkjunni í kvöld kl.
20.30.
Aðalverkefni tónleikanna er
Messa í B-dúr fyrir fjóra ein-
söngvara, kór og hljómsveit eftir
Joseph Haydn, en verkið er einnig
þekkt undir nafninu Theresíu-
messan. Einnig verður flutt ein-
söngsmótettan Exultate, jubilate
Kv. 165 eftir W. A. Mozart.
Tónskáldið Haydn samdi alls
fjórtán messur og er Theresíu-
messan nr. 12 í röðinni. Verkið er
einstaklega hlýtt og fagurt, en er
um leið áskorun fyrir flytjendur.
Þessi messa hefur ekki oft verið
flutt hér á landi og er það trúlega
vegna þess hve krefjandi hún er
fyrir kórinn.
Mótettuna Exultate, jubilate
samdi Mozart er hann var á sínu
síðasta ferðalagi með föður sínum
í Mílanó 1773. Hann samdi verkið
fyrir Venanzio Rauzzini, sem þá
var einn frægasti „castrato“-
sópran Ítala.
Flytjendur á tónleikunum í
kvöld eru Kór Hjallakirkju,
Kristín Ragnhildur Sigurðar dóttir
sópran, Jóhanna Ósk Valsdóttir
mezzosópran, Einar Clausen tenór
og Þorvaldur Þorvalds son bassi.
Hjörlefur Valsson er konsert-
meistari, Hlín Erlendsdóttir,
Pálína Árnadóttir, Christian
Diet hardt og Helga Steinunn
Torfadóttir leika á fiðlur, Guðrún
Þórarinsdóttir og Laufey Péturs-
dóttir á lágfiðlu, Sigurgeir
Agnarsson á selló, Borgar Magna-
son á kontrabassa, Ármann Helga-
son og Helga Björg Arnardóttir á
klarinett, Einar S. Jónsson og
Jóhann Nardeau á trompet og
Lenka Mátéová á orgel. Stjórn-
andi er Jón Ólafur Sigurðsson,
organisti Hjallakirkju. Miðaverð
er 1.500 krónur. - vþ
Haydn og Mozart í
Hjallakirkju
HJALLAKIRKJA Hýsir mikla tónlistarveislu í kvöld.
Einkaleyfastofan og Menntamálará›uneyti› standa fyrir rá›stefnu
um hugverkaréttindi undir yfirskriftinni Vir›um hugverkarétt
í Norræna húsinu hinn 23. apríl næstkomandi.
Tilefni› er alfljó›legur dagur hugverkaréttar sem haldi› er upp á ár
hvert fyrir tilstu›lan Alfljó›ahugverkastofnunarinnar, WIPO.
Fyrirlesarar eru:
• Erla S. Árnadóttir lögma›ur
• Eyjólfur Pálsson forstjóri EPAL
• Halldór Jörgensson framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi
• Marie Pattullo frá European Brands Associations
• Páll Óskar Hjálmt‡sson tónlistarma›ur.
A› loknum fyrirlestrum ver›a pallbor›sumræ›ur en í pallbor›i taka
flátt flau Ásta Valdimarsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofunnar,
Hör›ur Daví› Har›arson frá Tollstjóranum í Reykjavík og
Gunnar Gu›mundsson frá SFH.
Fundarstjóri er fiorsteinn J. Vilhjálmsson.
Rá›stefnan stendur frá kl. 9 – 12.
Allir velkomnir!
– rá›stefna í Norræna húsinu 23. apríl 2008
Vir›um hugverkarétt
17 - 18 - 24 - 30. apríl
kl 20.00 alla daga
ÞRJÁR SÍÐUSTU
SÝNINGAR Á ÁST