Fréttablaðið - 22.04.2008, Side 48

Fréttablaðið - 22.04.2008, Side 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Karenar D. Kjartansdóttur Í dag er mánudagurinn 21. apríl, 112. dagur ársins. Árið 2003 voru boðaðar skipu-lagsbreytingar innan Ríkis- útvarpsins í framhaldi af tölvupósti Markúsar Arnar Antonssonar, þáverandi útvarpsstjóra, til sam- starfsmanna. Þar kvartaði hann undan vinstri slagsíðu innan Ríkis- útvarpsins, sérstaklega í Speglin- um, sem hann uppnefndi Hljóðvilj- ann. Meðal annars var Speglinum fundið það til foráttu að fjalla gagn- rýnið um gildi þess að koma hinum stórhættulega efnavopnaframleið- anda Saddam Hussein frá völdum til að vernda alla heimsbyggðina. ÍSLENSKIR stuðningsmenn frels- unarinnar urðu svo ægilega glaðir þegar íslenskir sprengjusérfræð- ingar fundu sprengjukúlur sem hugsanlega kannski voru taldar hafa einhvern tímann innihaldið sinnepsgas. Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, steig stríðsdans og sagði að um heims- viðburð væri að ræða. Rannsóknir leiddu aftur á móti í ljós að hylkin innihéldu aldrei efnavopn. Leit að gereyðingarvopnum var svo hætt formlega árið 2005 eftir milljarða dollara leit og stuðningsmenn frels- unarinnar hættu að tala um að nauðsynlegt hefði verið að koma Hussein frá völdum heldur hefði þetta allt verið gert til að bjarga Írökum þótt meginrök Bandaríkja- manna fyrir innrásinni hefðu verið meint efnavopnaeign. EN aftur að Speglinum. Eftir á að hyggja sýnist mér að ástæður þess að Spegilsmenn voru bendlaðir við vinstri slagsíðu á sínum tíma sé sú að þeir öfluðu frétta af Íraksmálum í öðrum fjölmiðlum en bandarísk- um og breskum. Tungumálakunn- átta þáttastjórnenda leyfði þeim nefnilega að kanna þýsk og frönsk sjónarmið í þessum efnum. Það hugnaðist íslenskum ráðamönnum greinilega ekki ef marka má skrif og viðbrögð á þessum tíma, svo sem hjá Birni Bjarnasyni og Mark- úsi Erni. NÚ er komið í ljós að meintir „sjálfstæðir sérfræðingar“ sem útskýrðu og rökstuddu nauðsyn innrásarinnar á sínum tíma voru á mála varnarmálaráðuneytisins. New York Times afhjúpaði áróð- ursherferð Pentagon um helgina og hefur nú sýnt fram á að menn með sérfræðiþekkingu þáðu laun fyrir að lýsa yfir stuðningi sínum við innrásina. Margir viðurkenna nú að hafa talað gegn betri vitund af ótta við viðbrögð varnarmálaráðuneyt- isins. Fréttir frá Bandaríkjunum voru allan tímann meingallaðar. ÞAÐ er illt til þess að vita að vand- aðir fjölmiðlamenn hafi þurft að sitja undir ámæli og þola níð af hálfu yfirmanns síns fyrir að lepja ekki allt gagnrýnislaust upp úr bandarísku pressunni. Spegillinn 5.30 13.26 21.24 5.06 13.11 21.18 TÖFFARI SEM HUGSAR FYRIR ÖLLU KIA CEE´D SPORTY WAGON. 7 ÁRA ÁBYRGÐ. RÍKULEGUR STAÐALBÚNAÐUR: • álfelgur • loftkæling • USB-tengi fyrir iPod • 6 diska geislaspilari • aðgerðastýri • rafræn stöðugleikastýring • sex öryggispúðar • upplýsingatölva www.kia.is KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. is KIA á Ís landi er í e igu HEKLU Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi * 7 ára/150.000 km verksmiðjuábyrgð vegna galla í aflrás og 5 ára/150.000 km verksmiðjuábyrgð vegna galla í öðrum hlutum bílsins. Þetta á við um Kia cee’d í öllum EB löndum (auk Noregs, Sviss, Íslands og Gíbraltar) ÞÚ GERIR FRÁBÆR KAUP! Í KIA cee´d Sporty Wagon færðu meiri akstur, meira olnbogarými og meiri þægindi fyrir minni pening - án þess að fórna frábæru útliti og aksturseiginleikum. Þú færð einnig 7 ára ábyrgð, ríkulegan staðalbúnað og getur valið beinskiptan 115 hestafla dísilbíl sem eyðir aðeins 4,7 lítrum á hundraðið, eða 120 hestafla sjálfskiptan bensínbíl sem eyðir 6,9 lítrum á hundraðið. Ó ! • 1 1 4 7 5

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.