Fréttablaðið - 23.04.2008, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 23.04.2008, Qupperneq 30
 23. apríl 2008 MIÐVIKUDAGUR12 ATVINNA FUNDIR / MANNFAGNAÐIR STYRKIR BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090 Auglýsing um nýtt deiliskipulag og breytingar á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með auglýstar tillögur að nýju deiliskipulagi og breytingum á deiliskipulagsáætlunum í Reykjavík. Sólvallagata 67, Vesturbæjarskóli Tillaga að deiliskipulagi fyrir lóð Vesturbæjarskóla að Sólvallagötu 67 sem gerir ráð fyrir m.a. að lóðirnar að Vesturvallagötu 10 – 12 og Hringbraut 116 – 118 verði sameinaðar lóð Vesturbæjarskóla. Eftir sameiningu er gert ráð fyrir viðbyggingu við skólann meðfram Framnesvegi að Hringbraut. Næst Framnesvegi verður viðbygging á einni hæð en á tveimur hæðum þar fyrir austan og að Hringbraut. Hæsti kóti verður miðaður við mæni aðalbyggingar. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Vegamótastígur 9 Tillaga að breytingu á deiliskipulagi reits 1.171.5 vegna lóðarinnar að Vegamótastíg 9. Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að byggt verði á lóðunum nokkurn veginn í samræmi við fyrra deiliskipulag en að gamli steinbærinn sem áður stóð á Vegamótastíg 7 verði endurreistur á þaki nýbyggingar ásamt gamla húsinu að Vegamótastíg 9. Gerð er tillaga að endurmótun götusvæðis sunnan við Vegamótastíg 9. Öðrum kjallara er bætt undir kjallara í núverandi deiliskipulagi og verður hann notaður fyrir bílastæði með aðkomu frá Grettisgötu. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Melavellir, Kjalarnesi Tillaga að breytingu á deiliskipulagi jarðarinna að Melavöllum á Kjalarnesi. Tillagan gerir ráð fyrir m.a. að heimilt verði að byggja fjögur alifuglahús sunnan við þegar samþykkt alifuglahús á lóðinni þannig að samtals verði sex ný hús. Sömu reglur gilda um þessi hús hvað varðar byggingarreiti og húsagerðir og á áður samþykktu deiliskipulagi. Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna. Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 23. apríl 2007 til og með 7. júní 2008. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 7. júní 2008. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar. Reykjavík, 23. apríl 2008 Skipulagsstjóri Reykjavíkur Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið PÍPARAR Erum með vana pípara á skrá sem eru klárir til vinnu. Kraftafl ehf S: 840-1616 TILKYNNINGAR TILKYNNINGAR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.