Fréttablaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 23. apríl 2008 19
UMRÆÐAN
Ari Arnórsson skrifar
um samgöngumál
Vilhjálmur Vilhjálms-son, oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn,
sagði nýlega að við ættum
að fá að aka bílunum okkar
ofan í sjó við Laugarnesið.
Strax. Og hann er ekki
einn um það.
Spyrjum nú: Hvað er best að
gera í samgöngum höfuðborgar-
svæðisins fyrir 30 milljarða? Svari
uppáhaldspólitíkusinn þinn, „nú
Sundabraut auðvitað,“ ætti sá
kannski erindi á spítalann við
Sundin. Og ekki sem læknir. Lækn-
irinn sem var í borgarstjórastóln-
um á undan mínum afbragðs heim-
ilislækni, viðurkennir á sig
skömm. Hann samþykkti í blindni
„nýju“ Hringbrautareyðimörkina.
Þar fuku ekki bara útsvör lítils
hverfis í eina öld heldur er þetta
skrímsli þvert á móti skynsemi.
Hugmyndin, sem var vond á sínum
tíma en passaði við tískuna þá,
varð ekki að rándýrum mistökum
fyrr en 10-20 árum eftir að hún
læsti tönnum í skipulagið. Það
gafst áratugur til að slá skrímslið
af, en nei, með biblíulegri þrjósku
var trölli færður til lífs. Hafi ein-
hver þá trú að „nýja Hringbraut“
sé annað en alvarleg mistök, er
það nákvæmlega það. Trú. Trú í
trássi við staðreyndir. Trú og
skipulag er þekktur, baneitraður
kokkteill.
Skynsemi, ekki trú
En Sundabrautin er verri
kredda. Grátleg gröf fyrir
ofboðslegt magn fjár-
muna. Tugi milljarða!
Hvaðan koma þeir sem
ætla á Kjalarnes? Væri
svarið Kvosin, væri samt
tæp glóra í að borga fyrir
að fara út í sjó undan
Laugarnesi, í göng – fjór-
föld líklega – austur að
Elliðavogi og undir hann
og yfir eyjar og sjó. Laugarnes er
tangi, en umferðarmiðjan er allt
annars staðar. Síðan Sundabraut-
arhugmyndin beit sig í skipulagið
hafa breytingar (tvöföldun Vestur-
landsvegar o.fl.) jafnt og þétt
minnkað skynsemina í rökum fyrir
henni, en hún jafnt og þétt orðið
tröllslegri. Er t.d. meiri þörf fyrir
jarðgöng undir Laugarnes en
Lönguhlíð?
Læknar góðir, gagnfræðingar
og annað gott fólk með peningana
mína í höndunum: Svona gerir
maður ekki! Ekki aftur!
Skynsemi nú, ekki trú. Sunda-
braut með Laugarnesgöngum biti
höfuðið af skömm sem ráðamenn
okkar hafa þegar meitlað á sinn
pólitíska grafstein. Því er enn
hægt að afstýra.
Fyrir Sundabrautarpeningana
er hægt að setja upp almennings-
samgöngur sem virka. Byrja strax
og fá af þeim gott gagn jafnvel
hraðar en þeirri firrtu Laugarnes-
buktar-Kjalarness peningagröf.
Daglegt gagn frá Straumsvík að
Sundahöfn, frá Gróttu að Gljúfra-
steini. Flýta fyrir öllum íbúum,
skera niður umferðarvandamálin,
minnka mengun, plásssóun, olíu-
eyðslu…
Lestir væru enn verri hít
Hvernig almenningssamgöngur
þá? Léttlestir?
Úps, þar er þá kominn frasi sem
gæti toppað Sundabraut í Klepp-
arahjali. „Léttlestir“? Það fæst
ekki einu sinni fólk í einstaka lest-
arvagna nú (þeir eru kallaðir
strætisvagnar, nema þeir komist
hvert sem er á gúmmíhjólunum
sínum, ekki bara sporið sitt), nú á
að hengja marga saman (er það
ekki lest?) og láta ganga… Hvað-
an og hvert? Já, hvaðan? Og
hvert? Hvað mun það leysa? Hver
mun í þeim sitja? Hver mun fyrir
borga?
Slíkt kerfi kostar peningahaf
fyrir útum-allar-koppagrundir
þorpið okkar. Eigi kerfið að standa
undir sér yrði fargjaldið að toppa
leigubílsfar. Hver metri af slíku
(ósveigjanlegu) kerfi kostar íbúð-
arverð, meira en margar millj-
ónaborgir með 10-20 földum
byggðaþéttleika sjá vit í að starta,
fyrir utan landrýmið, sem þá
væntanlega bætist við það sem
fer undir átta akreinar einkabíl-
ismans. Eða á að fara í rokið yfir
þökunum? Á ég að fá lestarteina
yfir húsið mitt? Í gegn um húsið
mitt?
Skynsemi nú.
Höfundur starfar við farartækja-
hönnun.
SEND IÐ OKK UR LÍNU
Við hvetj um les end ur til að senda
okk ur línu og leggja orð í belg um
mál efni líð andi stund ar. Grein ar
og bréf skulu vera stutt og gagn-
orð. Ein göngu er tek ið á móti efni
sem sent er frá Skoð ana síð unni
á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein-
ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni
birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða
í báð um miðl un um að hluta eða
í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt-
inga og til að stytta efni.
BRÉF TIL BLAÐSINS
ARI ARNÓRSSON
Sundabraut til hvers?
Ferðamannaferja eða sam-
gönguæð?
Matthías Kristinsson, fyrrverandi
skólastjóri, skrifar:
Í fréttaviðtali við Pétur Ágústsson,
framkvæmdastjóra Sæferða, í Ríkis-
sjónvarpinu sl. sunnudagskvöld kom
það fram, að til stæði að hætta ferð-
um yfir Breiðafjörðinn yfir vetrarmán-
uðina, en leggja þess í stað aðalá-
herslu á ferðir um ferðamannatímann
á sumrin. Þessi afstaða kemur fólki að
sjálfsögðu afar undarlega fyrir sjónir,
því að á sumrin eru samgöngur á landi
greiðar og er þá síður þörf á ferju eins
og Baldri. Hins vegar er ekki alltaf
gefið að landsamgöngur eða flugsam-
göngur séu fyrir hendi á veturna og er
þá þörfin fyrir ferju á þessari leið afar
brýn og nauðsynleg því fólki sem býr
við norðanverðan Breiðafjörðinn og
á sunnanverðum Vestfjörðum. Þetta
ætti framkvæmdastjóri Sæferða auð-
vitað að vita, sem og fjárveitingavaldið.
Það er því von að spurt sé: Er ferjan
Baldur fyrst og fremst fyrir ferðamenn
en ekki samgönguæð þeirra sem búa
við Breiðafjörðinn?
Allt í lagi, Geir
Stefán Máni rithöfundur skrifar um
eldsneytisverð:
Allt í lagi, Geir. Þú vilt ekki semja við
ofbeldismenn. En hvers á almenn-
ingur að gjalda? Eru meintir ofbeldis-
menn þeir einu sem kaupa eldsneyti
á okurverði? Er ekki lag fyrir hið
opinbera að koma til móts við neyt-
andann og lækka álögur á eldsneyti?
Setja kannski á fast lítragjald í stað
prósentu? Eða er hið opinbera að
nota sér reiði trukkabílstjóranna til að
slá þessu á frest eða drepa málinu
á dreif? Því trúi ég varla. Að lokum:
Geir, þú semur auðvitað ekki við
ofbeldismenn. Þú sýnir einfaldlega
almenningi að þér sé ekki sama um
hann og breytir lögunum þess vegna.
Þetta er ekki „þú og þeir“, Geir. Þetta
erum við; kjósendur; Íslendingar;
almenningur. Og hið opinbera ert þú.
Einn af okkur. Ekki satt?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-0
6
2
8
Alþjóðlegur hópur framúrskarandi kennara frá viðskiptaháskólum beggja vegna
Atlantshafsins sem raða sér í efstu sæti í alþjóðlegum samanburði á MBA-námi
Áhersla á sérfræðiþekkingu, persónulega færni og alþjóðlega færni
Námið fer fram á ensku
Sterk tengsl við atvinnulífið
ALÞJÓÐLEGT MBA-NÁM Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK
INNOVATECHANGE LEAD
*Samkvæmt könnun meðal allra útskrifaðra nemenda frá 2002 til 2007.
95% MBA-nemenda við HR segja að námið hafi gert þá hæfari og betri í starfi.*
91% MBA-nemenda við HR segja að námið hafi aukið möguleika þeirra á vinnumarkaðnum.*
Föstudagur 25. apríl kl. 11.30–13.00 – Kennslufundur með Dr. Joe Pons
Dr. Joe Pons veitir innsýn í kennslustund í MBA-náminu í HR í umræðum um
raundæmi (case). Frábært tækifæri fyrir alla sem eru að velta fyrir sér MBA-námi
á Íslandi eða í útlöndum til að prófa að setjast á skólabekk! Skráðu þig á mba@ru.is
og fáðu raundæmið sent til þín fyrir „tímann“.
Miðvikudagur 14. maí kl. 12.00–13.00 – Stefnumót við nemendur
Fáðu upplýsingar um MBA-námið í HR – kennsluna, aðstöðuna og námið – beint
frá núverandi og fyrrverandi nemendum.
Þorbjörg Jónsdóttir, MBA 2009
Þorgeir Pálsson, MBA 2008
Samúel Guðmundsson, MBA 2007
Fundirnir fara fram í HR, Ofanleiti 2, 3. hæð.
Líttu á vefinn okkar fyrir nánari upplýsingar
um MBA-námið, www.ru.is/mba, eða hringdu
í Hrafnhildi (599 6506) eða Aðalstein (599 6430).
KYNNTU ÞÉR MBA-NÁM Í HÁSKÓLANUM Í REYKJAVÍK BEINT
Í TÍMA HJÁ KENNARA OG Í SAMTÖLUM VIÐ NEMENDUR
Dr. Joe Pons
Þorbjörg
Jónsdóttir
Þorgeir
Pálsson
Samúel
Guðmundsson