Fréttablaðið - 23.04.2008, Síða 48

Fréttablaðið - 23.04.2008, Síða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Þrátt fyrir allskyns uppsteyt í garð dæmigerðrar kynjaskipt- ingar hef ég með sóma haldið uppi merkjum kvenlegs yndisþokka með því að vera átakanlega sein- fær þegar kemur að vélbúnaði. Ég er allsendis ófær um að stilla rásir á sjónvarpinu, vírushreinsa tölv- una og man aldrei af hvaða tegund bíllinn minn er. Ólíkt því sem gild- ir um áhuga á fólki er allt sem ég vil vita um vélar sjáanlegt á yfir- borðinu. Kveikja. Nota. Slökkva. EN lengi má konuna reyna. Einn dæmalaust góðan veðurdag gekk ég út úr húsinu mínu allsendis grunlaus um það óvænta ástaræv- intýri sem beið úti á stétt. Þarna stóð hún þrýstin, spengileg og glansandi fögur. Blá eins og mið- næturhiminn að vori. Hvorug þurfti að tala, þetta var ást við fyrstu sýn. Ég var hennar og hún var mín. ENN um sinn er okkur þó meinað að njótast. Til að vinna mér rétt til að frelsa ítölsku vespuna mína úr álögum þarf ég fyrst að klífa fjall- ið og sigra drekann, sem sagt að taka stóra mótorhjólaprófið. Sem eindregin talskona ferðalags út úr þægindahringnum hafði mér þó aldrei áður dottið í hug að sitja heila helgi fyrirlestur um vélbún- að ökutækja, umferðarhegðun og þá einstöku tilfinningu þegar mal- bik skrapast í gegnum gallabuxur. OG það gekk bara glettilega vel að skilja orð eins og chopper, end- uró, dunlóp, krossari, hippi og hæsæder. Líka páerslæda, krassa, krúsa og reisa. En þótt ég hafi eitt sinn í Kína snarlega heyrt muninn á mandarín og kantónsku er líkleg- asta niðurstaðan af námskeiðinu þessi: skilningur á vélbúnaði er annars eðlis og hlýtur að vera bundinn í gen. Annaðhvort hef- urðu hann eða – í mínu tilfelli – ekki. Eftir að hafa langalengi reynt með félagsfærni og djúpu innsæi að skynja hvað töffarinn í hlut- verki ökukennara var að tala um, glitti þó í dálítinn vott af samhengi. Trúlega var hann að meina að fyrir veturinn væri best að fylla bensín- tankinn. En bíddu nú við! Mínútu síðar segir hann að mikilvægt sé að tæma tankinn fyrir veturinn. Tæma? Sagðirðu ekki fylla? Thetta er mjooog skrytid, mig ekki skilja. TÖFFARINN leit á opinmynntan sauðinn með þolinmæði manns sem hefur séð allt: „Ég var að tala um karbóratorinn“ sagði hann. Ó. (Muna að spyrja einhvern hvað karbórator er.) Ást við fyrstu sýn FRÁBÆR TILBOÐ! SÉRBLAÐ FYLGIR 5.27 13.26 21.27 5.02 13.11 21.22 Í dag er miðvikudagurinn 23. apríl, 114. dagur ársins.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.