Fréttablaðið - 23.04.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Þrátt fyrir allskyns uppsteyt í garð dæmigerðrar kynjaskipt-
ingar hef ég með sóma haldið uppi
merkjum kvenlegs yndisþokka
með því að vera átakanlega sein-
fær þegar kemur að vélbúnaði. Ég
er allsendis ófær um að stilla rásir
á sjónvarpinu, vírushreinsa tölv-
una og man aldrei af hvaða tegund
bíllinn minn er. Ólíkt því sem gild-
ir um áhuga á fólki er allt sem ég
vil vita um vélar sjáanlegt á yfir-
borðinu. Kveikja. Nota. Slökkva.
EN lengi má konuna reyna. Einn
dæmalaust góðan veðurdag gekk
ég út úr húsinu mínu allsendis
grunlaus um það óvænta ástaræv-
intýri sem beið úti á stétt. Þarna
stóð hún þrýstin, spengileg og
glansandi fögur. Blá eins og mið-
næturhiminn að vori. Hvorug
þurfti að tala, þetta var ást við
fyrstu sýn. Ég var hennar og hún
var mín.
ENN um sinn er okkur þó meinað
að njótast. Til að vinna mér rétt til
að frelsa ítölsku vespuna mína úr
álögum þarf ég fyrst að klífa fjall-
ið og sigra drekann, sem sagt að
taka stóra mótorhjólaprófið. Sem
eindregin talskona ferðalags út úr
þægindahringnum hafði mér þó
aldrei áður dottið í hug að sitja
heila helgi fyrirlestur um vélbún-
að ökutækja, umferðarhegðun og
þá einstöku tilfinningu þegar mal-
bik skrapast í gegnum gallabuxur.
OG það gekk bara glettilega vel
að skilja orð eins og chopper, end-
uró, dunlóp, krossari, hippi og
hæsæder. Líka páerslæda, krassa,
krúsa og reisa. En þótt ég hafi eitt
sinn í Kína snarlega heyrt muninn
á mandarín og kantónsku er líkleg-
asta niðurstaðan af námskeiðinu
þessi: skilningur á vélbúnaði er
annars eðlis og hlýtur að vera
bundinn í gen. Annaðhvort hef-
urðu hann eða – í mínu tilfelli –
ekki. Eftir að hafa langalengi reynt
með félagsfærni og djúpu innsæi
að skynja hvað töffarinn í hlut-
verki ökukennara var að tala um,
glitti þó í dálítinn vott af samhengi.
Trúlega var hann að meina að fyrir
veturinn væri best að fylla bensín-
tankinn. En bíddu nú við! Mínútu
síðar segir hann að mikilvægt sé
að tæma tankinn fyrir veturinn.
Tæma? Sagðirðu ekki fylla? Thetta
er mjooog skrytid, mig ekki skilja.
TÖFFARINN leit á opinmynntan
sauðinn með þolinmæði manns
sem hefur séð allt: „Ég var að tala
um karbóratorinn“ sagði hann.
Ó. (Muna að spyrja einhvern hvað
karbórator er.)
Ást við
fyrstu sýn
FRÁBÆR TILBOÐ!
SÉRBLAÐ FYLGIR
5.27 13.26 21.27
5.02 13.11 21.22
Í dag er miðvikudagurinn 23.
apríl, 114. dagur ársins.