Fréttablaðið - 25.04.2008, Side 64
25. apríl 2008 FÖSTUDAGUR
Myndlistarmaðurinn Kristinn Már Pálmason opnar
sýningu í Anima galleríi, Freyjugötu 27, á morgun
kl. 17. Sýningin ber heitið Miðstöðin og á henni má
sjá málverk sem máluð eru út frá hinum táknræna
þætti miðjusetningar. Kristinn freistar þess að
miðla hinum samvirka krafti sem í miðjusetning-
unni er að finna og útfæra hann í samtíma mál-
verki. Í myndunum má sjá kerfi tákna, ímynda og
forma sem innihalda vísanir í tímann, nýaldar-
hyggju, kenningar C.G. Jung um erkitýpur,
trúarbrögð, stjórnmál, eðli „tælandi verðmæta“ og
yfirskilvitið.
Kristinn útskrifaðist frá Myndlista- og handíða-
skóla Íslands árið 1994 og lauk meistaranámi frá
The Slade School of Fine Art, University College
London árið 1998. Hann á að baki 11 einkasýningar
auk þátttöku í fjölda samsýninga og samvinnu-
verkefna.
Kristinn Már hefur komið að ýmiss konar
menningarstarfsemi og var annar stofnenda og
sýningarstjóri Anima gallerís, einn af 10 stofnend-
um Kling & Bang gallerís og höfundur Transistor
tilraunaverkefnisins. Kristinn hefur verið stunda-
kennari við Listaháskóla Íslands síðan árið 1999.
Sýningin Miðstöðin stendur til 17. maí. - vþ
Táknræn miðjusetning Kristins
MIÐILL Málverk eftir Kristin Má Pálmason.
Allar þær sýningar sem nú standa
yfir í Listasafni Reykjavíkur í
Hafnarhúsinu líða undir lok eftir
helgina til þess að rýma fyrir hinu
stórtæka Tilraunamaraþoni sem
fer af stað 15. maí og er liður í
Listahátíð í Reykjavík. Það er því
ekki seinna vænna en að skella sér
í Hafnarhúsið og berja listina
augum því tækifærið gefst ekki
aftur að sunnudegi loknum.
Sýningarnar sem loka eftir helg-
ina eru af ýmsum toga. Þeirra á
meðal má finna sýninguna Mál-
lausir kjarnar eftir Sigurð Guð-
mundsson sem er óumdeilanlega
einn af virtustu listamönnum
þjóðarinnar. Á sýningunni eru um
tuttugu stór ljósmyndaverk sem
aldrei hafa verið sýnd áður og eru
fyrstu ljósmyndaverk Sigurðar
síðan 1980. Sýningunni Þögn lýkur
líka, en hún er samsýning lista-
mannanna Finnboga Péturssonar,
Finns Arnars Arnarssonar, Har-
aldar Jónssonar og Hörpu Árna-
dóttur. Sýningarstjórinn JBK
Ransu fékk listamennina til þess
að gefa sig á vald þagnarinnar og
er áhugavert að sjá hvernig þau
völdu sér ólíka nálgun á viðfangs-
efnið. Ekki væri heldur gott að
missa af myndbandsinnsetningu
Gunnhildar Hauksdóttur, sem ber
nafnið Cultus Bestiae, í D-sal
safnsins. Því er vissara að skoða
hana um helgina.
Síðust en ekki síst á meðal sýn-
inga Hafnarhússins er Ofurhetjur,
sýning á verkum úr smiðju list-
málarans Errós. Líkt og titillinn
gefur til kynna eru ofurhetjur í
aðalhlutverki í þeim verkum sem
á sýningunni eru og hún ætti því
að höfða til allra áhugamanna um
dægurmenningu.
Vert er að minna lesendur á að
frítt er inn á Listasafn Reykjavík-
ur og því engin afsökun tekin gild
fyrir því að missa af herlegheitun-
um. - vþ
Allt að loka, sjáist nú!
MÁLLAUSIR KJARNAR Eitt af verkum Sigurðar Guðmundssonar í Hafnarhúsinu.
LAUGARDAGUR 26. APRÍL KL. 20
PÍANÓTÓNLEIKAR – TÓNÓ RVÍK
HALLA ODDNÝ MAGNÚSDÓTTIR
AÐGANGUR ÓKEYPIS!
SUNNUDAGUR 27. APRÍL KL. 16
FIÐLUTÓNLEIKAR - LHÍ
BJÖRK ÓSKARSDÓTTIR
AÐGANGUR ÓKEYPIS!
ÞRIÐJUDAGUR 29. APRÍL KL. 20
TÍBRÁ: SEMBALTÓNLEIKAR
JORY VINIKOUR LEIKUR
GOLDBERGTILBRIGÐI BACHS.
VERÐ 2000/1600 KR.
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17
og um helgar frá 13-16.
Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is
Stefnumót við safnara III
Hljómfagurt stefnumót við tón-
listarmenn og hljóðfærasafnara!
Sýningarstjórn: Anik Todd og Una
Stígsdóttir Boðið er upp á leiðsögn
fyrir hópa. s. 575 7700
Vissir þú...
...að í Gerðubergi er frábær
aðstaða fyrir ráðstefnur, námskeið,
fundi og veislur? Salir og fundar-
herbergi fyrir 8 - 120 manns.
Sjá nánari upplýsingar:
www.gerduberg.is, s. 575 7700.
Engisprettur
e. Biljana Srbljanovic
sýn. fös. 25/4 örfá sæti laus
Vígaguðinn
e. Yasminu Reza
sýn. lau. 26/4 síðustu sýningar
Ástin er diskó, lífið er pönk
e. Hallgrím Helgason
Nýr íslenskur söngleikur
Frumsýning 1. maí
Sá ljóti
e. Marius von Mayenburg
sýn. fös. 25/4 uppselt
Sólarferð e. Guðmund Steinsson
tvær sýningar 26/4 örfá sæti laus
sýn. sun. 27/4 örfá sæti laus
„Þau eru frábær, öll fjögur…
Þetta er hörkugóð sýning...!“
Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
PBB FBL , 29/3
„Þetta er vel unnin
sýning, skemmtileg og
óvenju skýrt hugsuð.”
MA, MBL 8/4
Bráðfyndið og
ágengt gamanleikrit
Síðustu sýningar
Leikhús
tilboð
vor á m
inni
sviðunu
m
Leikhús
tilboð
vor á m
inni
sviðunu
m
Skoppa og Skrítla í söng-leik
e. Guðmund Steinsson
Uppselt í apríl, tryggðu þér sæti í tíma
Sý i í Kúlunni
Þjóðleikhúsið
Á öllum sviðum lífsins
Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00
mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00.
Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga.
Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is
ningar í r