Fréttablaðið - 29.04.2008, Síða 2
2 29. apríl 2008 ÞRIÐJUDAGUR
Ferskir í fiski
Plokkfiskur Nóatún mælir með
798 kr.kg
Sóley, eruð þið Ólafur yfirlýstir
andstæðingar?
„Ég vil ekki lýsa því yfir að svo
stöddu en gef frá mér yfirlýsingu ef
til þess kemur.“
Sóley Tómasdóttir varaborgarfulltrúi og
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri hafa átt
í orðaskaki um mannréttindaráð Reykja-
víkur og gefið út nokkrar yfirlýsingar af
því tilefni.
HEILBRIGÐISMÁL Landspítalinn hefur
ákveðið að fresta breytingum á
vaktafyrirkomulagi geislafræð-
inga, skurðhjúkrunarfræðinga og
svæfingarhjúkrunarfræðinga um
fimm mánuði, til 1. október. Þetta
tilkynntu þau Anna Stefánsdóttir og
Björn Zoëga, starfandi forstjórar,
Landspítalans á blaðamannafundi í
gær.
Megn óánægja hefur verið meðal
starfsmanna og hafa fjörutíu
geislafræðingar af rúmlega fimm-
tíu sagt upp og 96 af um 104 skurð-
og svæfingahjúkrunarfræðingum
vegna breytinganna. Hafa skurð-
hjúkrunarfræðingar meðal annars
bent á að þeir telji breytingarnar
vega að öryggi sjúklinga þar sem
þær myndu hafa það í för með sér
að sérhæfður hjúkrunarfræðingur
í hjartaskurðaðgerðum gæti verið
kallaður til í bráðatilfelli á kvenna-
deild og öfugt.
Anna tilkynnti á fundi í gær að
vegna sjónarmiða sem fram hefðu
komið frá starfsmönnum yrði
lengri tími gefinn til samráðs. Hún
segir að ætlast verði til þess að
skurðhjúkrunarfræðingar fái
aukna þjálfun sem miði að því að
þeir geti sinnt fleiri og fjölbreytt-
ari verkefnum af öryggi. Hvorki
Anna né Björn sögðust í gær vita
til þess að uppsagnir hefðu þegar
verið dregnar til baka en vonast
væri til þess að svo yrði.
Vigdís Árnadóttir, trúnaðar-
maður á skurðdeild við Hring-
braut, segir að sjálfri finnist sér
sem verið sé að fresta vandanum
um nokkra mánuði. „Ég er ekki
viss um að fólk sé tilbúið að fara í
gegnum allan þennan pakka aftur
að nokkrum mánuðum liðnum,“
segir hún. Áætlanir um frekari
þjálfun skurðhjúkrunarfræðinga
gaf hún lítið fyrir og benti á að
þjálfun í aðgerðum, svo sem hjarta-
aðgerðum, tæki mun lengri tíma en
þá fimm mánuði sem nú væru til
stefnu. Starfsmennirnir sem um
ræðir funda klukkan fjögur í dag
og ákveða hver næstu skref verða í
málinu.
Bæði Vigdís og Elsa B. Friðfinns-
dóttir, formaður Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, ítreka að ekki
hafi verið skipulagðar hópupp-
sagnir heldur hafi hver og einn
starfsmaður tekið ákvörðun út frá
sínum forsendum. „Ég hef engar
tölur en heyri að einhverjir séu
búnir að ráða sig annað og ein-
hverjir hafi ákveðið að halda
áfram,“ segir Elsa um stöðuna eftir
fundinn í gær. karen@frettabladid.is
Fresta breytingum á
vöktum á Landspítala
Hjúkrunarfræðingar og geislafræðingar funda í dag um ákvörðun um að fresta
fyrirhuguðum breytingum á vöktum. Ekki er vitað til að neinn hafi dregið upp-
sögn til baka en forsvarsmenn spítalans vonast til að ró og sátt náist.
FÁ ÞJÁLFUN Skurðhjúkrunarfræðingar
hafa meðal annars bent á að nýtt fyrir-
komulag vegi að öryggi sjúklinga.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
TILKYNNA FRESTUN Á BREYTINGUM Þau Anna Stefánsdóttir og Björn Zoëga, starf-
andi forstjórar á Landspítalanum, tilkynntu í gær að breytingum á vaktarfyrirkomu-
lagi yrði frestað um fimm mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SLYS Eldri kona, sem flutt var á
sjúkrahús eftir brunann í þjón-
ustuíbúðum aldraðra að Dalbraut
á sunnudag, lést af sárum sínum á
sjúkrahúsi aðfaranótt mánudags.
Konan hlaut mikil brunasár og
hafði verið haldið sofandi í önd-
unarvél.
Eldurinn kom upp í íbúð kon-
unnar. Málið er í rannsókn hjá
lögreglu og segir Friðrik Smári
Björgvinsson, forstöðumaður
rannsóknardeildar, að ekki sé enn
vitað um eldsupptök.
Þrír aðrir voru fluttir til
aðhlynningar á sjúkrahús og fleiri
leituðu þangað vegna gruns um
reykeitrun. Allir eru á batavegi.
Tveir slökkviliðsmenn fengu
vott af reykeitrun og voru til
eftir lits og öryggis yfir nótt á
sjúkrahúsi. Þeim heilsast báðum
vel og voru mættir til vinnu í
gærkvöld.
Rýma þurfti eina álmu á tveim-
ur hæðum og þurftu nítján íbúar
að gista hjá ættingjum sínum.
Stella Víðisdóttir, sviðstjóri vel-
ferðarsviðs Reykjavíkurborgar,
segir að hreinsunarstarf eftir
brunann gangi vel. Fyrstu íbúar
fluttu inn í gær og vonast er til að
aðrir geti flutt inn í dag.
Stella segir að verið sé að fara
yfir öll atvik og starfsmönnum
sem íbúum standi áfallahjálp til
boða. Vel hafi gengið að rýma
húsið og starfsmenn hafi brugð-
ist rétt við. - kóp
Bruninn í þjónustuíbúð að Dalbraut í fyrradag:
Eldri kona lést eftir bruna
MIKILL REYKUR Nítján íbúar þurftu að
flýja heimili sín eftir brunann að Dal-
braut. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
ALÞINGI Frumvarp Valgerðar
Bjarnadóttur,
varaþingmanns
Samfylkingar-
innar, um breyt-
ingar á eftir-
launalögum, er
enn á borði
allsherjar-
nefndar. Birgir
Ármannsson,
formaður
nefndarinnar,
segir ekki enn ljóst hvort málið
verði afgreitt á þessu þingi. Hann
kallar eftir afstöðu ríkisstjórnar-
innar.
„Mér finnst eðlilegt að náð
verði sem víðtækastri samstöðu
um málið, hvort sem leið Valgerð-
ar verður farin eða önnur. Í
stjórnarsáttmála liggur fyrir að
tekið verður á málinu og það
verður gert, hvort sem það næst á
þessu þingi eða ekki,“ segir
Birgir. - kóp
Eftirlaunafrumvarp Valgerðar:
Enn hjá alls-
herjarnefnd
BIRGIR
ÁRMANNSSON
PARÍS, AP Nicolas Sarkozy
Frakklandsforseti verður æ
óvinsælli, samkvæmt nýrri
könnun sem birt var í gær.
Í könnun franska markaðs-
fræðafyrirtækisins BVA kemur
fram að 64 prósent þátttakenda
höfðu neikvætt viðhorf til
Sarkozy meðan einungis 32
prósent höfðu jákvætt viðhorf til
forsetans. BVA segir að þetta sé
hæsta óánægjuhlutfall með
forseta síðan fyrirtækið hóf að
gera slíkar kannanir árið 1981.
Sarkozy lofaði miklum efna-
hags- og félagslegum umbótum í
kosningabaráttu sinni en virðist
ekki hafa staðið vaktina vel, að
mati samlanda sinna. - kg
Frönsk skoðanakönnun:
Óvinsældir
Sarkozy aukast
ÓVINSÆLL Samkvæmt könnunum er
Sarkozy óvinsælasti forsetinn í mörg ár.
EFNAHAGSMÁL Stjórnvöld sýndu ekki nægilegt aðhald
í peninga- og ríkisfjármálum á meðan á stórfram-
kvæmdunum á Austurlandi stóð. Þess vegna eru
stýrivextir nú mun hærri en áður var ætlað að þeir
þyrftu að vera.
Þetta er mat Seðlabanka Íslands sem birtist í
svörum bankans við spurningum þingflokks
Framsóknarflokksins um efnahagsmál.
Spurt var hvort bankinn teldi ríkisstjórnina hafa
gengið nógu langt í þá átt að draga úr þenslu. Í
svarinu segir að á sínum tíma – þegar framkvæmd-
irnar á Austurlandi voru í farvatninu – hafi verið
talið að með hjálp aðhaldssamrar stefnu í peninga-
og ríkisfjármálum mætti koma í veg fyrir langvar-
andi frávik verðbólgu frá markmiði. Talið hafi verið
að hækka þyrfti stýrivexti í nálægt tíu prósent.
„Ýmsar ákvarðanir stjórnvalda í kjölfarið hafa hins
vegar orðið til þess að draga úr því aðhaldi sem
opinber fjármál hefðu getað veitt,“ segir í svarinu.
Tíndar eru til breytingar á útlánastefnu Íbúðalána-
sjóðs, lækkun tekju- og neysluskatta og „nokkuð
dýrar aðgerðir í tengslum við nýgerða kjarasamn-
inga“. Þá hafi fjárfesting sveitarfélaga verið mikil.
Að auki segir Seðlabankinn að við bætist „mikil
útlánabylgja í kjölfar einkavæðingar bankanna sem
þöndu efnahagsreikning sinn ört út í krafti einstak-
lega órýrs erlends fjármagns.“ - bþs
Seðlabankinn segir stjórnvöld ekki hafa sýnt nægilegt aðhald á uppbyggingarskeiði:
Stjórnvöld stuðluðu að þenslu
DAVÍÐ ODDSSON formaður bankastjórnar Seðlabankans.
BANDARÍKIN, AP Flutningabílstjór-
ar mótmæltu í gær verðhækkun-
um á eldsneyti með hópakstri
umhverfis verslunarmiðstöðina
National Mall í Washington.
Þeyttu þeir óspart flautur sínar
með tilheyrandi fyrirgangi.
Eftir hringaksturinn um
verslunarmiðstöðina lögðu
bílstjórarnir ökutækjum sínum
við nálægan leikvang og héldu
mótmælafund í miðborginni
nálægt þinghúsinu. Bílstjórarnir
vilja meðal annars að þingið hætti
að styrkja stóru olíufélögin, losi
um olíu úr varabirgðum og stöðvi
útflutning á olíu frá Alaska til
annara landa. - gar
Vörubílstjórar í Washington:
Óku í hóp gegn
bensínhækkun
GAZA, AP Palestínsk kona og
fjögur börn hennar létu lífið
þegar heimili þeirra sprakk í
átökum Ísraelshers og Palestínu-
manna í norðurhluta Gaza í gær.
Hvorug fylkingin vill axla ábyrgð
á sprengingunni og kenna báðir
hinum um.
Palestínumenn segja ísraelskt
loftskeyti hafa lent á húsinu.
Ísraelsmenn halda því hins vegar
fram að sprengjur Palestínu-
manna hafi hrokkið í gang í
loftárás Ísraela og þannig valdið
sprengingunni.
Börnin voru á aldrinum fimm-
tán mánaða til sex ára og létust
samstundis. Móðir þeirra lést á
sjúkrahúsi skömmu síðar. - kg
Átök í norðurhluta Gaza:
Kona og fjögur
börn létu lífið
Konan sem
lést eftir
eldsvoða á
Dalbraut á
sunnudag
hét Sigríður
Ingimars-
dóttir. Sig-
ríður, sem
var 84 ára
gömul, var ekkja Vilhjálms
Árnasonar hæstaréttar-
lögmanns. Hún lætur eftir sig
fimm uppkomin börn.
Lést eftir elds-
voða á Dalbraut
SPURNING DAGSINS